Neitar að hafa talað um „brottvísunarbúðir“

Dóms­mála­ráð­herra segir að það verði að vera hægt að ræða flótta­manna­mál af yfir­vegun. Hún seg­ist ekki hafa haft orð á því að það verk­lag sem í umræð­unni í gær var kallað „brott­vís­un­ar­búðir“ væri í vinnslu hér­lendis.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

„Það hvernig við tökum á móti fólki og það hvernig við búum í hag­inn fyrir þá sem ýmist eru að bíða eftir afgreiðslu eða hafa fengið nið­ur­stöðu er hvort tveggja meðal þeirra brýnu verk­efna sem við þurfum að skoða nánar og sem verður að vera hægt að ræða af yfir­vegun.“

Þetta segir Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra á Facebook í dag en orð hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í gær vöktu mikla athygli.

Var hún spurð út í verk­lag við brott­vísun ein­stak­linga sem dvelj­ast ólög­lega í land­inu. „Ég sagði að slíkt verk­lag væri alltaf í skoðun. Þá vís­aði ég til þeirrar fram­kvæmdar sem nær öll Evr­ópu­ríki, þ.á m. Norð­ur­löndin, grípa til þegar búið er að taka ákvörðun um brott­vísun. Ég hafði þó ekki orð á því að slíkt verk­lag sem í umræð­unni var kallað „brott­vís­un­ar­búðir“ væri í vinnslu hér­lendis,“ skrifar hún.

„Allt í samræmi“ sem hún hefur áður sagt

Áslaug Arna segir að stað­reyndin sé á hinn bóg­inn sú að sam­kvæmt til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins skuli vera til staðar slíkt búsetu­úr­ræði þegar öll önnur væg­ari úrræði eru tæmd. „Við höfum ekki inn­leitt þá til­skipun að fullu þrátt fyrir skuld­bind­ingar þess eðlis í Schengen sam­starf­inu.“

Hún segir enn fremur að öll viljum við „vanda okkur í þessum við­kvæmu málum, þá sér­stak­lega þegar málin snúa að börnum. Þar þarf hvort í senn að móta heild­ar­stefnu sem hægt er að koma sér saman um og eins að finna lausnir á praktískum atriðum. Allt er þetta í sam­ræmi við það sem ég hef áður sagt.“

Kjarninn fjall­aði um málið í gær en Áslaug Arna sagði í svari sínu á Alþingi að skoða þyrfti ákveðin úrræði. „Það hafa verið umræður í Evr­ópu­löndum um ákveðin úrræði, að hafa fólk á ákveðnu svæði, sem við höfum til dæmis ekki fram­fylgt með breyt­ingum á okkar lög­um. Það er víða í lönd­unum í kringum okkur þar sem þessu er háttað þannig að aðilar eru á ákveðnu svæði eftir að þeir fá til dæmis neitun frá báðum stjórn­sýslu­stigum til að það sé hægt að fram­kvæma þetta með auð­veld­ari hætti. Það ger­ist þá ekki að aðilar séu týndir í sam­fé­lag­inu og ekki sé hægt að fram­fylgja ákvörð­un­um. Það eru laga­breyt­ingar sem þyrfti að ráð­ast í en ann­ars erum við að skoða verk­lagið í heild sinni í þessu eins og öðru,“ sagði hún.

Þingmaður VG sagði hugmyndina fráleita

[links]Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, sagði undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag að hún myndi berj­ast fyrir því að fólk sem hingað sækir fengi sann­gjarna, rétt­láta og mann­úð­lega máls­með­ferð. Hún von­ast til þess að aðrir þing­menn, og sér­stak­lega þeir sem hafa tjáð sig um orð dóms­mála­ráð­herra, muni standa með sér í því. Þing­mað­ur­inn sagði að hug­myndin væri frá­leit og ekki koma til greina.

Hún sagði jafn­framt að það sem um ræðir væri að sjálf­sögðu ekk­ert annað en flótta­manna­búðir eða jafn­vel bara fang­elsi og að ekki kæmi til greina að setja slíkt á lagg­irnar af hálfu þing­flokks Vinstri grænna.

Spjótin standa á VG

Fjöl­margir þing­menn gagn­rýndu orð dóms­mála­ráð­herra á sam­fé­lags­miðlum í gær. Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka, sagði meðal ann­ars að hug­myndin væri arfa­slæm.

Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­maður Pírata, gerði athuga­semdir við mál­flutn­ing dóms­mála­ráð­herra á Face­book í gær. „Þegar for­sæt­is­ráð­herra sagði í stefnu­ræðu sinni að end­ur­skoða ætti hags­muna­mat flótta­barna hugs­aði ég, hvað þýðir það í alvöru Katrín? Nú er dóms­mála­ráð­herra búin að gefa okkur smjör­þef­inn af því sem koma skal. Geymum flótta­börn í fanga­búð­u­m!“ skrif­aði hún á Facebook.

„En við skulum ekki kalla það fanga­búð­ir, VG gæti fund­ist það aðeins of óþægi­legt – köllum það frekar „af­mörkuð brott­vís­un­ar­svæði“ – miklu meira pent.“

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, þing­maður utan flokka og fyrr­ver­andi VG-liði, sagði á Twitter í gær að það væru djúp von­brigðin verið væri að „íhuga þennan ómann­eskju­lega mögu­leika að safna saman á einn stað fólki sem ákveðið hefur verið að vísa burt“. Hún spurði enn fremur á hvaða veg­ferð rík­is­stjórn – leidd af VG – væri þegar kemur að mál­efnum flótta­fólks og hæl­is­leit­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár