GrabTaxi að verða risi í Asíu - Gjörbreyttur leigubílamarkaður

Fyr­ir­tækið GrabTaxi er svipað og Uber, fólk pantar sér leigu­bíl í gegnum app. Það er á nokkrum mán­uðum orðið eitt vin­sælasta leigu­bíla­fyr­ir­tæki Suð­austur-Asíu og vext hratt víðar í Asíu. Í gær lauk það fjár­mögnun upp á 350 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 50 millj­örðum króna, en í heild hefur það aflað 650 millj­óna Banda­ríkja­dala, nálægt 90 millj­örðum króna. Í dag eru 75 þús­und bílar á vegum fyr­ir­tæk­is­ins í sex löndum Asíu, en mest vax­andi mark­að­irnir eru Indónesía og Indland.


GrabTaxi raises $350 million from investors http://t.co/p2i5KKz0MN pic.twitter.com/ex5cG6t1LF


— ABS-CBN News (@ABSCBNNews) August 19, 2015

Ekki er hægt að segja annað en að þetta séu risa­vaxnir leigu­bíla­mark­aðir enda íbúar Suð­austur-Asíu um 700 millj­ónir. Asía í heild er svo með 4,4 millj­arða íbúa, eða um 62 pró­sent af öllu fólki á jörð­inni. Sama hvernig á mynd­ina er horft, þá er mark­að­ur­inn ógn­ar­stór og veltan í leigu­bíla­við­skiptum mikil á degi hverjum.

Á meðal þeirra fjár­festa sem lögðu fyr­ir­tæk­inu til fé í hinni nýaf­stöðnu fjár­mögnun er kín­verska fyr­ir­tækið Didi Kuaidi. Það varð til við sam­ein­ingu tveggja kín­verskra app-leigu­bíla­fyr­ir­tækja og hefur þegar lokið fjár­mögnun upp á tvo millj­arða Banda­ríkjdala, eða sem nemur tæp­lega 270 millj­örðum króna. „Það eru engin áform um það í augna­blik­inu,“ segir Cheryl Goh, vara­for­seti GrabTaxi, aðspurð um hvort félagið sé að sam­ein­ast kín­verska ris­anum, en tækni­vef­ur­inn Tech Crunch beindi þessum spurn­ingum til hennar.

Tæknibreyting á stöðnuðum markaði


Með til­komu snjall­síma og app-leigu­bíla­fyr­ir­tækja, sem Uber er þekkt­ast fyrir, hefur gríð­ar­lega mikil innri breyt­ing orðið á leigu­bíla­mark­aði í heim­inum. Til­tölu­lega stöðn­uðu fyr­ir­komu­lagi leigu­bíla var svo gott sem snúið á hvolf, með til­komu nýrrar og aðgengi­legrar tækni, og hefur almenn­ingur vítt og breitt um heim­inn tekið þessar breyt­ingu opnum örmum. Fólk getur ein­fald­lega hjálpað öðru fólki að kom­ast leiðar sinnar og fengið greitt fyrir, án þess að þurfa að standa á götu­horni við mis­jafnar aðstæður. Og í ljósi þess hversu útbreiðslan hefur verið hröð, einkum hjá Uber, er þjón­ustu­stigið hátt og bið­tími lít­ill. Snjól­bolti er kom­inn af stað sem ekki verður stöðv­aður.

Ekki fyrirséðar breytingar


Eins og margt annað sem teng­ist hraðri inn­komu snjall­síma inn í líf fólks­ins þá sáu ekki margir fyrir að leigu­bíla­mark­aður heims­ins færi í gegnum þessa end­ur­nýjun sem nú er í gangi. Frá því árið 2012, þegar Uber hóf starf­semi, hefur virði félags­ins hækkað upp í 50 millj­arða Banda­ríkja­dala, um sjö þús­und millj­arða króna, og not­endur þjón­ust­unnar eru yfir átta millj­ónir í 290 borgum. „Ég biðst af­sök­un­ar á því að við séum ekki í Reykja­vík. Ég lofa því að Reykja­vík verður einn af okk­ar mörk­uðum,“ sagði Ryan Gra­ves, yf­ir­maður alþjóða­starf­semi Uber, í við­tali við mbl.is á dög­unum. Hann er fyrsti starfs­maður Uber og sit­ur í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins, en hann hélt erindi um nýsköp­un­ar­mál í Háskól­anum í Reykja­vík á dög­unum. Vafa­lítið mun ekki líða á löngu þar til Uber verður komið með starf­sem­ina til Reykja­víkur, en mik­ill hraði hefur ein­kennt útbreiðsl­una eins og áður segir. Það er heldur ekki úti­lokað að önnur svipuð fyr­ir­tæki munu spretta upp og bjóða þjón­ustu sem þessa.

Allra augu á Asíu - Hver vinnur kapphlaupið?


En þrátt fyrir að Uber hafi náð mik­illi fót­festu, einkum í borgum Banda­ríkj­anna og Evrópu, þá er mik­il­væg­asta mark­aðs­svæðið í Asíu. Þar er flest fólk og íbúa­þró­unin er einnig á þann veg að borg­ar­sam­fé­lög eru að stækka hratt, með til­heyr­andi vaxt­ar­á­hrifum fyrir leigu­bíla­mark­að­inn. Allt helst því í hendur; miklar innri breyt­ingar á mark­aðnum með nýrri tækni, gríð­ar­lega fjöl­menn sam­fé­lög og vax­andi mark­aðir að auki.

GrabTaxi var stofnað í Malaísu, í júní 2006, og er með starf­semi í 26 borgum Suð­austur-Asíu. Þrátt fyrir að Uber sé með starf­semi í þeim öllum, er GrabTaxi leið­andi í öllum borg­unum. Samkvæmt fréttum TechCrunch er Alibaba sagt fylgj­ast náið með þróun mála þessa daga hjá GrabTaxi og þá einkum aðkomu Didi Kuaidi að fyr­ir­tæk­inu. Kín­verski ris­inn er með 90 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í Kína, en sam­keppni er sífellt að verða meiri.

Til marks um umfang starf­sem­innar hjá GrabTaxi í Asíu þá segir Anthony Tan, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, í sam­tali við Tech Crunch, að bók­anir á hverjum degi séu um 110 þús­und. En lík­legt er að þeim muni fjölga ört á næstu miss­erum. Miklir hags­munir eru í húfi enda geta skap­ast mikil verð­mæti hjá fyr­ir­tækjum sem ná góðri fót­festu á mörk­uðum sem eru að stækka ógn­ar­hratt.

https://www.youtube.com/watch?v=7jSVnDEg0iY

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár