Spurt og svarað um aðgerðir fyrir námsmenn

Ég er að ljúka fram­halds­skóla en er ekki komin með sum­ar­starf. Get ég skráð mig í sum­ar­nám? Ég er atvinnu­laus og vil efla færni mína á vinnu­mark­aði. Hvaða nám stendur mér til boða?

Í öðrum hluta aðgerða­á­ætl­unar stjórn­valda sem kynnt var í Safna­hús­inu í dag er sér­tök áhersla meðal ann­ars lögð á náms­menn. 2,2 millj­örðum króna verður varið til að skapa 3.000 tíma­bundin störf í sumar fyrir náms­menn 18 ára og eldri og 300 millj­ónum króna til að efla nýsköpun meðal ungra frum­kvöðla gegnum Nýsköp­un­ar­sjóð náms­manna. Auk þess verður 800 millj­ónum króna veitt til að bjóða sum­arönn í fram­halds- og háskólum sem nýt­ist bæði nem­endum og fólki á atvinnu­leysis- eða hluta­bótum.

Hér að neðan má finna svör við nokkrum spurn­ingum varð­andi aðgerðir fyrir náms­menn. Svörin eru fengin af heima­síðu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins

[adspot]

Ég hef áhuga á háskólanámi í haust, kemst ég að?

Háskólum verður gert kleift að mæta mögu­legri nem­enda­fjölgun í kjöl­far efna­hags­á­hrifa af heims­far­aldri kór­ónu­veiru. Áhersla verður lögð á náms­leiðir sem draga úr færni­bili á vinnu­mark­aði og mæta þörfum atvinnu­lífs­ins fyrir menntað starfs­fólk í und­ir­mönn­uðum starfs­greinum, t.d. fag­há­skóla­nám í heil­brigðis- og tækni­greinum, kenn­ara­nám og hag­nýtt nám fyrir nem­endur með íslensku sem annað mál.

Fyrir hverja eru sérstök námsúrræði?

Nám á sum­arönn er sniðið fyrir ein­stak­linga á atvinnu­leys­is­bótum eða hluta­bótum sem geta aukið færni sína með við­bót­ar­námi og end­ur­menntun. Jafn­framt er námið ætlað nem­endum sem stunda hefð­bundið háskóla- og fram­halds­skóla­nám eða eru að hefja slíkt nám.

Hvenær verða sérstök námsúrræði í boði?

Sumarnám verður í boði á háskóla- og fram­halds­skóla­stigi. Háskólum verður jafn­framt gert kleift að mæta mögu­legri nem­enda­fjölgun í haust með áherslu á náms­leiðir sem draga úr færni­bili á vinnu­mark­aði.

Hvaða skólar/fræðsluaðilar taka þátt í sérstökum námsúrræðum?

Á háskóla- og fram­halds­skóla­stigi verður í boði sum­ar­nám bæði hjá opin­berum skólum og einka­að­ilum. Námið verður aug­lýst m.a. á heima­síðum við­kom­andi skóla.

[links]Fyrir hverja eru sérstök námsúrræði?

Nám á sum­arönn er sniðið fyrir ein­stak­linga á atvinnu­leys­is­bótum eða hluta­bótum sem geta aukið færni sína með við­bót­ar­námi og end­ur­menntun. Jafn­framt er námið ætlað nem­endum sem stunda hefð­bundið háskóla- og fram­halds­skóla­nám eða eru að hefja slíkt nám.

Hvers konar nám verður í boði í sumar?

Á fram­halds­skóla­stigi er um að ræða ann­ars vegar kynn­ing­ar­á­fanga svo sem um nýsköpun, tækni og listir og hins vegar áfanga sem eru hluti af náms­brautum skól­anna. Jafn­framt verður boðið upp á stuttar starfs­náms­leiðir.

Á háskóla­stigi er um að ræða stuttar hag­nýtar náms­leiðir á grunn- og meist­ara­stigi, und­ir­bún­ings­nám fyrir umsækj­endur fyrir háskóla­nám og end­ur­menntun fyrir fag­að­ila.

Hvernig verður framkvæmd námsins háttað?

Nám verður ýmist í stað­námi, dreif­námi/blönd­uðu námi eða fjar­námi:

  • Náms­á­fangar í stað­námi geta verið t.d. nokkrir tímar, hálfur/heill dagur í nokkrar vikur.
  • Náms­á­fangar í dreif­námi eða blönd­uðu námi þar sem námið er fyrst og fremst í fjar­námi en nem­endur hitt­ast ein­staka sinnum með kenn­ara/leið­bein­anda.
  • Náms­á­fangar í fjar­námi.

Ég er að ljúka framhaldsskóla í vor og hef ekki fengið sumarstarf. Get ég skráð mig í sumarnám?

Boðið verður upp á und­ir­bún­ings­nám fyrir nem­endur sem munu hefja háskóla­nám í haust. Nánari upp­lýs­ingar verður að finna á heima­síðum háskól­anna.

Ég er atvinnulaus, hef ekki lokið framhaldsskóla og vil efla færni mína á vinnumarkaði; hvaða nám stendur til boða?

Nám á sum­arönn er m.a. sniðið fyrir ein­stak­linga á atvinnu­leys­is­bótum eða hluta­bótum sem geta aukið færni sína með við­bót­ar­námi og end­ur­menntun.

Ég er í háskólanámi og hef ekki fengið sumarvinnu; get ég flýtt fyrir mér í námi með sumarnámi?

Kannski. Það er mik­il­vægt að kanna á heima­síðum háskól­anna hvort við­kom­andi nám er metið til ECTS ein­inga. Margt nám að sumri er ekki ein­inga­bært og nýt­ist því ekki til stytt­ingar náms. Nám sem ekki er ein­inga­bært getur samt sem áður nýst til símennt­unar.

Ég er atvinnulaus/í skertu starfshlutfalli, á atvinnuleysisbótum/hlutabótum; hvaða rétt á ég til náms?

Samkvæmt núgild­andi lögum er þeim sem eru á atvinnu­leys­is­bótum heim­ilt að stunda nám á háskóla­stigi að hámarki 10 ECTS ein­ingum án þess að komi til skerð­ingar atvinnu­leys­is­bóta. Hluta­bóta­leið er ætlað að við­halda ráðn­inga­sam­bandi og er tíma­bundið úrræði til 1. júní og á því ekki við um nám á atvinnu­leys­is­bótum.

Ég er í fullri vinnu/hlutastarfi; get ég nýtt mér sérstök námsúrræði?

Ýmsir náms­á­fangar verða í boði í dreif­námi/blönd­uðu námi eða í fjar­námi og hægt að taka með vinnu.

Skerðist réttur minn til atvinnuleysisbóta/hlutabóta ef ég skrái mig í nám?

Allt nám umfram 10 ECTS skerðir atvinnu­leys­is­bætur í hlut­falli við fjölda ein­inga, sem dæmi þá skerðir nám sem er 15 ECTS ein­ingar atvinnu­leys­is­bætur um 50%. Atvinnu­leys­is­bætur falla niður við 20 ECTS ein­inga nám.

Er námið lánshæft hjá LÍN?

Á háskóla­stigi er ein­ungis sum­ar­nám sem metið er til ECTS ein­inga láns­hæft hjá LÍN. Nám á sum­arönn til­heyrir und­an­gengnu skóla­ári. Náms­maður þarf að ljúka að lág­marki 15 ECTS-ein­ingum á sum­arönn til að eiga rétt á sum­ar­láni. Aldrei er veitt meira lán en sem nemur 20 ECTS-ein­ingum á sum­arönn og 80 ECTS-ein­ingum sam­tals á hverju náms­ári. Sækja þarf sér­stak­lega um lán á sum­arönn. Umsókn­ar­frestur til að sækja um lán hjá Lána­sjóði íslenska náms­manna á sum­arönn 2020 er til og með 15. júlí 2020.

Fram­halds­skóla­nemar sem stefna á stúd­ents­próf eða sam­bæri­legt próf geta ekki fengið náms­lán. Hins vegar eru náms­lán veitt fyrir lög­gilt iðn­nám og annað við­ur­kennt starfs­nám á fram­halds­skóla­stigi sem skipu­lagt er af við­eig­andi starfs­greina­ráði. Námsmenn geta líka átt rétt á náms­lánum þegar þeir eru að vinna á samn­ingi ef umsamin laun eru lægri en grunn­fram­færsla náms­manns­ins. Þegar upp­hæð náms­lán­anna er reiknuð er farið með nema­launin eins og aðrar tekjur skv. reglum sjóðs­ins og geta skert lánin.

Ég er námsmaður og fæ ekki vinnu yfir sumarið, hvað geri ég?

Vegna aðstæðna á vinnu­mark­aði í kjöl­far far­ald­urs COVID-19 er ljóst að ekki verða jafn­mörg sum­ar­störf í boði fyrir þá náms­menn sem nýta sum­arið til starfa. Á grund­velli fjár­magns frá ríki munu ríki og sveit­ar­fé­lög skapa allt að 3.500 störf fyrir náms­menn yfir sum­ar­tím­ann til þess að hindra það að náms­menn verði tekju­lausir og geti haldið áfram námi á kom­andi hausti.

Svör við fleiri spurn­ingum má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár