Stór markaður fyrir svokölluð gervi-læk hjá Facebook

Facebook er vin­sæl­asti sam­fé­lags­mið­ill heims en þrátt fyrir það hefur mið­ill­inn ekki farið var­hluta af gagn­rýni. Helsta vanda­mál Facebook er að mið­ill­inn stjórnar því hvað not­endur hans sjá í frétta­veitu sinni, segir víd­eó­blogg­ar­inn Derek Muller í mynd­bandi þar sem hann fer ofan í kjöl­inn á því sem hann telur vera van­kanta Facebook.

Lítill hluti fylgjenda sér Facebook-færslurnar


Muller heldur úti Youtube-rásinni Veritasium þar sem hann birtir mynd­bönd um vís­indi. Hann notar einnig Twitter, Instagram og Facebook til að miðla efni sínu og láta fylgj­endur sína vita þegar hann birtir ný mynd­bönd. Fyrir um ári síðan hafði hann 109.000 fylgj­endur á Facebook en samt sem áður fékk hann til­kynn­ingu um það að efnið sem hann deildi á miðl­inum næði að hámarki til níu þús­und fylgj­enda.

Hann fór að rann­saka þetta nánar og komst að því að færslur sem hann birtir ber­ast ein­ungis til um 3 pró­senta fylgj­enda í fyrstu. Ef þessir fylgj­endur sýna færsl­unni ekki áhuga dreif­ist hún ekki frekar en ef hún fellur í kramið hjá not­end­unum, það er margir læka hana, skrifa athuga­semd og deila birt­ist hún í frétta­veitum hjá fleiri fylgj­endum og jafn­vel víðar. Þess vegna skiptir miklu máli að vera með virkan hóp fylgj­enda til þess að fá aukna dreif­ingu.

Virkni fylgjenda minnkaði eftir því sem þeim fjölgaði


Muller greiddi Facebook fyrir aug­lýs­ingu í til­raun til að safna fylgj­endum að Facebook-síðu Veritasium og það skil­aði sér mjög fljótt með yfir 80 þús­und nýjum fylgj­endum. Samt sem áður minnk­aði hlut­falls­leg dreif­ing þeirra færslna sem hann birti. Þegar hann hafði um 2.000 fylgj­endur náðu vin­sæl­ustu færslur hans til allt að 4.000 manns vegna þess að þær dreifð­ust einnig til vina fylgj­end­anna. Með auknum fjölda fylgj­enda minnk­aði hlut­fal­leg útbreiðsla og færsl­urnar birt­ust í frétta­veitu um 6.000 manns. Þetta vakti for­vitni Muller sem fór að athuga betur þessa nýju fylgj­endur.

Stærsti hluti þeirra kom frá fátæk­ari hlutum jarðar en flestir voru þeir frá Egypta­landi, Indlandi, Fil­ipps­eyjum, Pakistan, Bangla­desh, Indónesíu, Nepal og Sri Lanka. Alls voru 80 þús­und fylgj­endur frá þessum löndum en fæstir af þeim sýndu færsl­unum við­brögð. Þegar Muller fór að skoða hvern og einn fyrir sig fyllt­ist hann grun­semdum. Hann taldi líkur vera á því að ekki væri um raun­veru­lega not­endur að ræða því margir þeirra höfðu lækað fleiri þús­und fylgj­enda­síður.

[caption id="attachment_27875" align="alignnone" width="848"] Mark Zuckerberg, auð­kýf­ing­ur­inn og hinn umdeildi stofn­andi Facebook. Mynd: EPA[/caption]

Stór markaður fyrir læk


Muller gerði ráð fyrir að þessir fylgj­endur væru starfs­menn svo­kall­aðra „smellu­bæja“ þar sem fólk starfar við það að smella á aug­lýs­ingar og læka síður hjá fyr­ir­tækjum sem hafa keypt læk. Rúmlega 1400 millj­ónir not­enda eru skráðir á Facebook, en það þarf ekki að vera að um raun­veru­lega not­endur sé að ræða. Facebook hefur verið gagn­rýnt fyrir að reyna ekki að sporna við gervi­not­endum sem oft á tíðum eru afurðir smellu­bæja. En hvers vegna að kaupa læk?

Mark Zuckerberg, auðkýfingurinn og hinn umdeildi stofnandi Facebook. Mynd: EPA
Mark Zuckerberg, auð­kýf­ing­ur­inn og hinn umdeildi stofn­andi Facebook. Mynd: EPA

[quote font="0" align="right"]Á bak­við þessi læk er illa launað verka­fólk frá fátæk­ari hlutum jarðar.[/quote]

Breska dag­blaðið The Guardian fjall­aði um málið og sagði að mögu­legir við­skipta­vinir líti á fjölda læka og fylgj­enda á Facebook og Twitter áður en þeir ákveði hvaða fyr­ir­tæki þeir vilji skipta við. Því hafi mynd­ast stór mark­aður fyrir læk. Einföld leit á Google sýnir ótal nið­ur­stöður þar sem hægt er að kaupa læk og þar með fylgj­endur að fylgj­enda­síðum sínum á ein­faldan hátt. Á bak­við þessi læk er illa launað verka­fólk frá fátæk­ari hlutum jarðar.

Sýndarkötturinn varð vinsæll


Blaða­maður BBC, Rory Cellan-Jones, var meðal þeirra fyrstu til að varpa ljósi á gervi-læk. Árið 2012 stofn­aði hann fylgj­enda­síðu fyr­ir­tækis sem var upp­spuni og aug­lýsti á Facebook. Líkt og hjá Muller jókst fylgj­enda­hóp­ur­inn hratt en þegar hann skoð­aði þessa fylgj­endur nánar sá hann að þeir voru flestir frá Egypta­landi og Indónesíu en eng­inn frá Banda­ríkj­unum eða Bret­landi.

Muller end­ur­tók rann­sókn Cellan-Jones og stofn­aði aðdá­enda­síðu sem fékk nafnið Virtual Cat, eða sýnd­ar­kött­ur­inn. Í lýs­ingu síð­unnar skrif­aði hann að þar myndu birt­ast óþol­andi færslur og því væri hver sá sem lækar síð­una lík­lega rugl­aður. Loks keypti hann læk af Facebook, eða rétt­ara sagt, hann keypti aug­lýs­ingu af Facebook þar sem fjöldi fylgj­enda var áætl­aður. Hann ákvað að miða mark­hóp­inn við Banda­ríkin, Kanada, Bretland og Ástralíu í til­raun til að sjá hvort þar væri einnig að finna gervi­fylgj­endur. Lækin stóðu ekki á sér og hann fékk fleiri læk en Facebook hafði gert ráð fyrir. Þegar hann rann­sak­aði fylgj­endur sína virt­ust þeir vera alvöru mann­eskjur en þegar betur var að gáð sást að þeir höfðu gerst fylgj­endur þús­unda síðna. Einn fylgj­end­anna hafði til að mynda lækað 37 þús­und síður.

Enginn staðfesti að hann væri raunverulegur fylgjandi


Hátt í þrjú hund­ruð fylgj­endur höfðu lækað sýnd­ar­kött Muller. Í til­raun til þess að fá við­brögð frá þessum fylgj­endum skrif­aði hann færslu þar sem hann útskýrði að síðan væri gerð í til­rauna­skyni og að hann óskaði eftir við­brögðum fylgj­enda til þess að sanna að þeir væru raun­veru­legir. Færslan birt­ist í 8 frétta­veitum en eng­inn not­enda sýndi færsl­unni við­brögð og því birt­ist hún ekki í fleiri frétta­veitum.

Muller seg­ist hafa leitað til Facebook varð­andi þá óvirku 80 þús­und fylgj­endur sem eru að síðu hans Veritasium þar sem hann hafi óskað eftir að þeim yrði hent út. Hann fékk engin svör en Facebook sendi út yfir­lýs­ingu eftir að fjöl­miðlar fjöll­uðu um málið þar sem kom fram að það væri eðli­legt að fólk hefði marga fylgj­endur. Það gæti sann­ar­lega verið að fólk hefði lækað síð­una um sýnd­ar­kött­inn vegna þess að það hafi gaman að köttum, ekk­ert sé athuga­vert við þessa fylgj­endur. Í mars sendi Facebook svo út til­kynn­ingu þess efnis að fyr­ir­tækið hyggð­ist eyða not­endum sem hefðu verið óvirkir í langan tíma af fylgj­enda­síðum sam­fé­lags­mið­ils­ins.

[caption id="attachment_27951" align="alignnone" width="678"] Læk er ekki sama og læk hjá Facebook. Mynd: Wikipedia[/caption]

Facebook_like_thumb.000
Facebook_like_thumb.000

 

Á Facebook eru allir auglýsendur


Gagnrýni Muller vakti mikla athygli en meðal þeirra fjöl­miðla sem fjöll­uðu um mál hans eru BBC, Mashable og Fox Business. Muller segir að vanda­mál Facebook sé að ekki séu skýr mörk á milli aug­lýsenda, þeirra sem fram­leiða efni og les­enda. Hann ber þetta saman við Youtube. Þar fá þeir sem fram­leiða efni greitt eftir því hvaða efni þeirra er vin­sælt. Aug­lýsendum er boðið að kaupa aug­lýs­ingar sem birt­ast áður en mynd­böndin eru spiluð. Þau greiða Youtube fyrir það, sem síðan greiðir fram­leið­end­unum fyrir að hafa fram­leitt efnið.

Við­skipta­módel Facebook er öfugt en þar þurfa fram­leið­endur að greiða Facebook fyrir að efnið birt­ist aðdá­endum. Aug­lýsendur greiða einnig Facebook fyrir aug­lýs­ingar sem birt­ast í frétta­veit­unni rétt eins og allar aðrar færslur. Þannig fá aug­lýsendur og fram­leið­endur efnis sama pláss í frétta­veit­unni og þurfa að kepp­ast um það. Muller segir að í raun séu allir aug­lýsendur á Facebook í sam­keppni um dreif­ingu og pláss í frétta­veitum not­enda.

The New Yorker hent út fyrir nekt


Annað sem gagn­rýnendur Facebook hafa bent á er rit­stjórn­ar­legt vald mið­ils­ins. Eins og Muller hefur bent á er helsta vanda­mál sam­fé­lags­mið­ils­ins að hann ákveður hvað not­and­inn sér. Vissu­lega er öllum frjálst að birta það sem þeim dettur í hug en brjóti efnið í bága við skil­mála Facebook er því eytt út af síð­unni.

Það kom ber­sýni­lega í ljós í #freethenipple bylt­ing­unni þar sem Facebook eyddi öllum myndum sem sýndu geir­vörtur á kven­fólki. Blý­ant­steikn­ing af brjósti er meira að segja ekki leyfi­leg. Sömu­leiðis var Facebook-síðu banda­ríska dag­blaðs­ins The New Yorker tíma­bundið hent út af miðl­inum fyrir að birta skop­mynd af nöktu fólki. Þar voru það tveir punktar sem fóru fyrir brjóstið á rit­skoð­un­arteymi Facebook – sem sagt teikn­aðar kven­manns­geir­vörtur.

En rit­skoð­unin nær ekki aðeins yfir nekt. Tveimur vikum eftir árás­irnar á rit­stjórn­ar­skrif­stofur franska tíma­rits­ins Charlie Hebdo fór Facebook einnig að rit­skoða myndir sem sýndu Múhameð spá­mann. Mark Zuckerberg, fram­kvæmda­stjóri og stofn­andi Facebook, svar­aði gagn­rýni á rit­skoð­un­ar­stefnu sam­fé­lags­mið­ils­ins. Hann sagð­ist styðja tján­ing­ar­frelsi að fullu en taldi þó að rit­skoðun á Facebook væri nauð­syn­leg. Ef ekki væri fyrir hana myndi verða lokað fyrir aðgang að miðl­inum þar sem birt væri efni sem er ólög­legt í sumum löndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár