Skoðanakönnun gerð um viðhorf Íslendinga til endurskoðunar á stjórnarskrá

Viðhorf Íslend­inga til end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár verður kannað af Félags­vís­inda­stofnun. Til­gang­ur­inn er m.a. að „draga fram sam­eig­in­leg grunn­gildi íslensku þjóð­ar­innar“ og kanna við­horf til til­lagna sem komið hafa fram að breyt­ingum á stjórn­ar­skrá.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, í sam­ráði við full­trúa allra ann­arra flokka sem sæti eiga á Alþingi, hefur ákveðið að fela Félags­vís­inda­stofnun HÍ að kanna við­horf Íslend­inga til stjórn­ar­skrár­innar og end­ur­skoð­unar hennar.

Í frétt á vef Stjórn­ar­ráðs Íslands vegna þessa segir að í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar hafi komið fram að rík­is­stjórnin vilji halda áfram heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar í þverpóli­tísku sam­starfi með aðkomu þjóð­ar­innar og nýta meðal ann­ars til þess aðferðir almenn­ings­sam­ráðs og á könn­unin að vera liður í því. „Meg­in­mark­miðið með við­horfskönn­un­inni er að draga fram sam­eig­in­leg grunn­gildi íslensku þjóð­ar­innar, að kanna við­horf til til­lagna sem komið hafa fram á und­an­förnum árum að breyt­ingum á stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins og kort­leggja sýn almenn­ings á þau við­fangs­efni stjórn­ar­skrárend­ur­skoð­unar sem tekin eru fyrir á þessu kjör­tíma­bili.“

[adspot]Gögn úr könn­un­inni eiga einnig að nýt­ast í tengslum við rök­ræðukönnun sem haldin verður 9. og 10. nóv­em­ber 2019 um afmörkuð atriði stjórn­ar­skrárend­ur­skoð­un­ar­innar.

Þjóðaratkvæði árið 2012

Þann 20. októ­ber 2012 var kosið um til­lögur stjórn­laga­ráðs um nýja stjórn­ar­skrá. Um var að ræða alls sex spurn­ingar en sú fyrsta var hvort við­kom­andi vildi að til­lögur stjórn­laga­ráðs yrðu lagðar til grund­vallar frum­varpi að nýrri stjórn­ar­skrá.

Alls sögðu 64,2 pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði já við þeirri spurn­ingu. Kjör­sókn var 49 pró­sent. Þrátt fyrir þetta hefur ný stjórn­ar­skrá ekki tekið gildi, tæp­lega sjö árum síðar.

Í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar sem birt var þann 30. nóv­em­ber 2017 segir að rík­is­stjórnin vilji halda áfram heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar og að nefnd um málið muni hefja störf í upp­hafi nýs þings. „Rík­is­stjórnin vill halda áfram heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar í þverpóli­tísku sam­starfi með aðkomu þjóð­ar­innar og nýta meðal ann­ars til þess aðferðir almenn­ings­sam­ráðs. Nefnd um málið mun hefja störf í upp­hafi nýs þings og leggur rík­is­stjórnin áherslu á að sam­staða náist um feril vinn­unn­ar.“

Í febr­­úar 2018 skip­aði for­­sæt­is­ráð­herra nefnd um stjórn­­­ar­­skrár­­mál sem skipuð er öllum for­­mönnum þing­­flokk­anna. Mark­mið nefnd­­ar­innar er að leggj­­ast í heild­­ar­end­­ur­­skoðun á stjórn­­­ar­­skránni.

[adspot]Þann 23. febr­­úar hitt­ust allir for­­menn þing­­flokk­ana á fyrsta for­m­­lega fund­inum um stjórn­­­ar­­skrár­­mál. Katrín Jak­obs­dóttir for­­sæt­is­ráð­herra fyrir hönd Vinstri Grænna, Inga Sæland fyrir Flokk fólks­ins, Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son fyrir Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn, Berg­þór Óla­­son fyrir hönd Mið­­flokk­inn vegna for­­falla Sig­­mundar Dav­­íðs Gunn­laugs­­son­­ar, Helgi Hrafn Gunn­­ar­s­­son fyrir Pírata en hann tók setu á þessum fundum fyrir hönd Pírata en engin for­­maður hjá þeim. Logi Ein­­ar­s­­son fyrir Sam­­fylk­ing­una, Bjarni Bene­dikts­­son fyrir Sjálf­­stæð­is­­flokk­inn og Þor­­gerður Katrín Gunn­­ar­s­dóttir fyrir Við­reisn.

Bjarni telur ekki þörf á heildarendurskoðun

Á sjö­unda fundi nefnd­­ar­inn­ar, þann 8. októ­ber 2018 til­kynnti Bjarni Bene­dikts­son nefnd­inni að hann vildi láta færa til bókar að hann telji þess ekki þörf að end­­ur­­skoða stjórn­­­ar­­skránna í heild sinni heldur vinna á­fram með helstu ákvæði, auð­lind­ir, umhverfi, þjóð­ar­at­kvæði og fram­sals­á­kvæði. I fund­ar­gerð fund­ar­ins er haft eftir Bjarna að hann beri „samt virð­ingu fyrir að menn sjái þetta með mis­mun­andi hætti en hann telji að hóp­ur­inn sé kom­inn á kaf í umræðu um atriði sem séu fyrir utan það sem hann telji þörf á að ræða.“

Vinna nefnd­ar­innar hefur þó haldið áfram og Katrín sagði það síð­ast í Kast­ljósi í gær að hún bindi vonir við að það muni takast að end­ur­skoða hluta stjórn­ar­skrár­innar á þessu kjör­tíma­bili svo að hægt verði að sam­þykkja þær breyt­ingar í byrjun þess næsta. Hún bindi einnig vonir við að heild­ar­end­ur­skoðun nái að eiga sér stað á næstu tveimur kjör­tíma­bilum.

Fyrstu skrefin í þessa átt voru stigin í maí síð­ast­liðnum þegar tvö frum­vörp voru sett inn sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem varða breyt­ingar á stjórn­ar­skránni. Ann­ars vegar er um að ræða frum­varp um umhverf­is­vernd og hins vegar frum­varp um auð­lindir í nátt­úru Íslands. Frum­vörpin verða til umsagnar til 30. júní, og getur fólk skilað athuga­semdum fyrir þann tíma.

Í frum­varp­inu þar sem fjallað er um auð­lindir í nátt­úru Íslands, er lögð til breyt­ing sem er orðuð svo: „Auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyra íslensku þjóð­inni. Nýt­ing auð­linda skal grund­vall­ast á sjálf­bærri þró­un. Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki eru háð einka­eign­ar­rétti eru þjóð­ar­eign. Eng­inn getur fengið þessi gæði eða rétt­indi tengd þeim til eignar eða var­an­legra afnota. Hand­hafar lög­gjaf­ar­valds og fram­kvæmd­ar­valds fara með for­ræði og ráð­stöf­un­ar­rétt þeirra í umboði þjóð­ar­inn­ar. Veit­ing heim­ilda til nýt­ingar á nátt­úru­auð­lindum og lands­rétt­indum sem eru í þjóð­ar­eign eða eigu íslenska rík­is­ins skal grund­vall­ast á lögum og gæta skal jafn­ræðis og gagn­sæ­is. Með lögum skal kveða á um gjald­töku fyrir heim­ildir til nýt­ingar í ábata­skyn­i.“

Meirihluti fylgjandi nýrri stjórnarskrá

Kannanir sýna að meiri­hluti lands­manna er fylgj­andi því að Íslend­ingar fá nýja stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili. Í könn­un MMR sem fram­kvæmd var dag­ana 18. til 22. októ­ber 2018 kom fram að 34 pró­sent aðspurðra töldu það vera mjög mik­il­vægt að lands­menn fái nýja stjórn­ar­skrá, 18 pró­sent kváðu það frekar mik­il­vægt, 19 pró­sent hvorki mik­il­vægt né lít­il­vægt, 11 pró­sent frekar lít­il­vægt og 18 pró­sent mjög lít­il­vægt. Því töldu 52 pró­sent lands­manna það mik­il­vægt að fá nýja stjórn­ar­skrá en 29 pró­sent að það væri lít­il­vægt.

[adspot]Konur reynd­ust lík­legri til að segja end­ur­nýjun stjórn­ar­skrár mik­il­væga, eða 56 pró­sent, heldur en karl­ar, 49 pró­sent.

Hlut­fall þeirra sem kváðu breyt­ingar á stjórn­ar­skrá mjög mik­il­vægar fór vax­andi með auknum aldri en 41 pró­sent þeirra 68 ára og eldri sagði mjög mik­il­vægt að Íslend­ingar fái nýja stjórn­ar­skrá, sam­an­borið við 28 pró­sent þeirra 18 til 29 ára.

Íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, eða 54 pró­sent, voru lík­legri en þeir búsettir á lands­byggð­inni, 48 pró­sent, til að telja stjórn­ar­skrár­breyt­ingar mik­il­væg­ar.

Stuðn­ings­fólk Pírata (90 pró­sent), Flokks fólks­ins (85 pró­sent) og Sam­fylk­ingar (83 pró­sent) reynd­ist lík­leg­ast til að segja það mik­il­vægt að lands­menn fái nýja stjórn­ar­skrá á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili en stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks (66 pró­sent), Mið­flokks (60 pró­sent) og Fram­sókn­ar­flokks (41 pró­sent) reynd­ist lík­leg­ast til að segja það lít­il­vægt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár