Mikil ólga á mörkuðum eftir að Sviss hætti að tengja franka við evru

Seðla­banki Sviss kom mörgum í opna skjöldu í morgun með því að hætta að tengja gengi sviss­neska frank­ans við evr­una og lækka stýri­vexti enn frekar. Stýri­vext­irnir voru lækk­aðir um 0,5 pró­sent, og eru nú -0,75 pró­sent.

Und­an­farin ár hefur frank­inn verið tengdur við evr­una, þannig að gengi frank­ans sé alltaf 1,2 sinnum hærra en evra. Lækkandi gengi evr­unnar und­an­farið hefur haft það í för með sér að búist var við því að á end­anum þyrfti Sviss að hætta að tengja frank­ann við evr­una. Það er hins vegar aðeins mán­uður síðan bank­inn sagð­ist ætla að halda sig við fast­geng­is­stefn­una og því kom tíma­setn­ingin á til­kynn­ing­unni í morgun mörgum á óvart.

Í til­kynn­ing­unni frá sviss­neska seðla­bank­anum kemur fram að fast­gengi hafi verið tekið í notkun þegar mikil óvissa ríkti á fjár­mála­mörk­uðum og að það hafi komið í veg fyrir miklar hremm­ingar sviss­neska hag­kerf­is­ins. Gengið hafi þá verið mjög yfir­verð­lagt, en gripið var til aðgerð­anna í sept­em­ber 2011. „Þótt gengi sviss­neska frank­ans sé ennþá hátt þá hefur yfir­verð­lagn­ingin minnkað frá því að við kynntum lág­marks­gengið. Hag­kerfið gat nýtt sér þetta tíma­bil til þess að venj­ast nýjum aðstæðum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í til­kynn­ing­unni kemur einnig fram að nýlega hafi breyt­ingar orðið á pen­inga­mála­stefnum stærstu gjald­miðla­svæð­anna og búast megi við því að það auk­ist á næst­unni. Evran hafi veikst tals­vert gagn­vart Banda­ríkja­dal og það hafi haft sömu áhrif á gengi frank­ans gegn Banda­ríkja­dal. Í þessum aðstæðum sé ekki hægt að rétt­læta fast­geng­is­stefnu lengur.

Þar er átt við aðgerðir sem búist er við að Evr­ópu­sam­bandið ráð­ist í í næstu viku til þess að örva hag­kerfið á evru­svæð­inu. Meðal ann­ars er búist við því að til­kynnt verði um stór­tæk kaup á rík­is­skulda­bréfum. Aðgerð­irnar eru taldar verða virði einnar trilljónar evra. Margir búast við því að þá muni gengi evr­unnar lækka enn frekar.

Dýfur á mörkuðum


Hluta­bréfa­mark­aðir í Evrópu hrundu í kjöl­far til­kynn­ing­ar­innar, en náðu flestir jafn­vægi á ný fyrir lokun. Und­an­tekn­ingin frá því var sviss­neski mark­að­ur­inn sem tók stærstu dýfu sína í 25 ár. SMI vísi­talan hafði lækkað um 8,67 pró­sent við lok dags­ins.

Úra­fram­leið­and­inn Swatch lækk­aði um 15 pró­sent á mörk­uðum og í við­tali við BBC líkti fram­kvæmda­stjóri félags­ins, Nick Hayek, ákvörðun seðla­bank­ans við flóð­bylgju sem hefði skollið á sviss­nesku efna­hags­lífi.

Þegar til­kynnt hafði verið um aðgerðir seðla­bank­ans í morgun hrundi evran um tæp­lega 30 pró­sent gagn­vart frank­anum en náði sér svo aðeins á strik. Lækkunin nemur nú 13 pró­sentum. Breyt­ingin á gengi frank­ans gagn­vart íslensku krón­unni var 15,30 pró­sent, í gær var gengið 127,770 en í lok dags­ins í dag var það orðið 147,320, sam­kvæmt Seðla­banka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár