Íslamska ríkið hörfar − Eru endalokin í nánd?

Með skelf­ingu og hörmu­legum voða­verkum hefur Íslamska rík­inu tek­ist að ná undir sig tölu­verðu land­svæði í Mið-Aust­ur­löndum. Nú eru hryðju­verka­sam­tökin aftur á móti á flótta og þá er ráð að spyrja um fram­tíð þeirra.

Kúrdar búa sig undir að ráðast til atlögu gegn Íslamska ríkinu suður við Mosul í Írak í ágúst 2016.
Kúrdar búa sig undir að ráð­ast til atlögu gegn Íslamska rík­inu suður við Mosul í Írak í ágúst 2016. Mynd: EPA

Íslamska rík­inu hefur tek­ist það sem öðrum her­skáum hryðju­verka­sam­tökum hefur aðeins dreymt um á vorum tímum, að ná undir sig land­svæði og borgum og gera þær að sínum. Nú ber­ast aftur á móti fréttir þess efnis að Íslamska ríkið sé að hörfa en það hefur misst í kringum 45.000 víga­menn í Írak og Sýrlandi. Talið er að eftir standi ein­ungis 15 til 20.000 manns og séu þeir menn illa til þess búnir að berj­ast. Flæði erlendra víga­manna hefur minnkað og þeir sem berj­ast fyrir sam­tökin nú þegar gera það að miklu leyti gegn sínum vilja.

Hryðju­verka­sam­tökin hafa misst mik­il­vægar borgir eins og Manbij og Kobani í Sýrlandi. Íbúar á svæð­inu eru þannig frels­aðir undan kúgun þeirra en þrátt fyrir ósigra Íslamska rík­is­ins stendur fólki áfram ógn af sam­tök­unum. Viðbrögð sam­tak­anna við þessum ósigrum er að fjölga árásum og að reyna að við­halda ógn­inni og hræðsl­unni. En eru þetta allt teikn um að Íslamska ríkið sé að líða undir lok?

Hlað­varpið The Inquiry á BBC fjall­aði nýlega um hnignun Íslamska rík­is­ins og velti fyrir sér fram­tíð hryðju­verka­sam­tak­anna í ljósi ósigra þeirra á árinu. Hver bær­inn á fætur öðrum hefur verið leystur undan oki þeirra en fyrir aðeins tveimur árum réðu þeir yfir tíu milljón manns. Nú er áætlað að þeir hafi ein­ungis um helm­ing þess. Í hlað­varp­inu er talað við ýmsa sér­fræð­inga sem hafa kynnt sér Íslamska ríkið og aðstæður í Mið-Aust­ur­löndum.

Misstu mikið af landi

Íslamska ríkið hefur misst um helm­ing þess land­svæðis sem það hafði yfir að ráða fyrir tveimur árum, sé eyði­mörkin talin með. Ástæðan er sú að herjað hefur verið að hryðju­verka­sam­tök­unum úr öllum áttum. Rússar, Tyrkir, Írakar, Sýr­lend­ingar, Kúrdar og Banda­ríkja­menn hafa sótt að þeim á landi sem og úr lofti.

En þeir hafa ekki ein­ungis misst landið sjálft, heldur einnig mik­il­vægar borgir. Borgin Manbij í Sýrlandi er gott dæmi þess. Hún var her­tekin af Íslamska rík­inu í jan­úar 2014 en end­ur­heimt í ágúst á þessu ári. Hún er á landa­mærum Tyrk­lands og þess svæðis sem Íslamska ríkið ræður yfir. Þannig hefur það misst mik­il­væga lífæð sína inn í Evrópu. Þetta hefur meðal ann­ars þær afleið­ingar í för með sér að pen­inga­flæði minnkar og erlendum sjálf­boða­liðum fækkar.

Firas Abi-Ali er grein­andi hjá sam­tök­unum IHS sem sjá um að kort­leggja svæðið sem Íslamska ríkið ræður yfir, sér­stak­lega í Írak og Sýrlandi. Þau fylgj­ast með sam­fé­lags­miðlum og fréttum og meta hversu áreið­an­leg gögnin eru. Hann segir að með því að stjórna land­svæði og mann­fjölda þá opn­ist á ákveðnar tekju­lindir. Það sé hægt að skatt­leggja fólkið og auðg­ast á ýmsa vegu í gegnum fjöld­ann. Það sé hægt að kúga fólkið á mis­mun­andi máta, til dæmis með því að ráða yfir helstu mat­væla­fram­leiðslu og stjórna mat­ar­gjöfum.

Eftir því sem Íslamska ríkið missir land­ráða­svæði þá minnkar pen­inga­flæðið. IHS hefur reiknað út að hryðju­verka­sam­tökin hafi misst þriðj­ung tekna sinna á síð­ustu tveimur árum. Stór ástæða þess eru loft­árásir á sam­göngu­kerfi þeirra og orku­gjafa.

Íraski her­inn hefur verið öfl­ugur að ná svæðum aftur með hjálp banda­manna. En hvað hefur breyst frá því her­menn þeirra köst­uðu frá sér vopn­unum og hlupu í burtu skelf­ingu lostnir fyrir tveimur árum? Abi-Ali telur að lofthern­aður Banda­ríkja­manna spili þar stórt hlut­verk. Í því liggi veik­leiki hryðju­verka­sam­tak­anna; þeir ráða ekki við land­hernað með lofthern­aði. Gott dæmi þess sé borgin Kobani í Sýrlandi. Kúrdar höfðu verið að reyna að ná henni til baka en það gekk ekki fyrr en þeir fengu hjálp úr lofti. Þeir end­ur­heimtu borg­ina í jan­úar 2015.

Talið er að ekki líði á löngu þangað til Íslamska ríkið missi tvær mik­il­væg­ustu borgir sínar, Mosul í Írak og Al-Raqqah í Sýrlandi. Þannig eru sam­tökin stutt frá hern­að­ar­legum ósigri, að mati Abi-Ali. Hann telur að það muni ger­ast við lok árs­ins 2017.

Baráttuviljinn fer þverrandi

Sumir telja að með því að eiga í sam­ræðum þá sé hægt að gera sér grein fyrir hvaðan með­limir Íslamska rík­is­ins koma og hvað þeim gengur til. Hassan Hassan, rit­höf­undur og blaða­maður, hefur varið miklum tíma í að tala við með­limi Íslamska rík­is­ins á net­inu en fyrir honum er þetta per­sónu­legt þar sem fæð­ing­ar­bær hans var her­num­inn af hryðju­verka­sam­tök­unum.

Hassan seg­ist hafa tekið eftir breyt­ingum síð­ustu tvo mán­uði. Víga­menn­irnir virð­ast vera að missa bar­áttu­vilj­ann sem ein­kenndi þá fyrir tveimur árum. Nú þegar Íslamska ríkið sé frá að hverfa þá hverfi víga­menn í sam­ræmi við það. Þúsundir hafi snúið aftur til sinna heima, til Frakk­lands, Bret­lands, Sádi-Arabíu og svo fram­vegis. Hassan telur einnig að helm­ingur þeirra sem barist hafa fyrir þá séu dánir.

Banda­mönnum fer fækk­andi, að sögn Hassad. Hann segir að fólk í Írak og Sýrlandi hafi ekki skilið Íslamska ríkið fyrst þegar það kom fram á sjón­ar­sviðið en að nú ríki meiri skiln­ingur fyrir hvað þeir standi. Hann segir að orð­ræðan hafi einnig breyst. Fyrst hafi sam­tökin verið kyndil­beri vonar fyrir svæðið eftir mis­heppnað Arabískt vor. Hann segir að fólk tali um sam­tökin í dag sem sömu ein­ræð­is­herra og fyrir voru. Þó sé enn tryggur kjarni fólks sem styður hug­mynda­fræði sam­tak­anna.

En þrátt fyrir að Íslamska ríkið sé að hörfa þá velta sér­fræð­ingar fyrir sér hvort sam­tökin geti aðlagað sig aðstæðum og lifað af. Hassan telur að um 10.000 víga­menn séu enn í röðum þeirra og að þeir séu ekki til­búnir að gef­ast upp. Þeir telji sig þétt­ari sam­tök en áður og óbug­andi. Nú séu þeir að und­ir­búa víga­menn sína and­lega fyrir brott­hvarf inn í eyði­mörk­ina.

Fleiri árásir

Seth Jones, stjórn­mála­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í hryðju­verka­sam­tökum, segir að Íslamska ríkið sé að breyt­ast úr því að ráða yfir miklu land­svæði yfir í að verða enn árás­ar­gjarn­ara. Á árinu 2014 voru í kringum 150 árásir á mán­uði en þeim fjölg­aði yfir í 250 til 300 ári seinna. Nú á dögum eru allt upp í 400 árásir á mán­uði.

Það virð­ist vera fylgni milli þess að sam­tökin séu að veikj­ast og auk­inna árása. Jones nefnir tvær ástæður fyrir þessu. Í fyrsta lagi séu sam­tökin að reyna að láta fara meira fyrir sér til að bæta upp fyrir að þau séu að minnka og í öðru lagi séu þau að ráð­ast á önnur ríki til að fá þau til að hörfa. Stundum hafi það gagn­stæðar afleið­ingar en þó ekki alltaf.

Þess vegna má leiða líkur að því að Íslamska ríkið sé að skipu­leggja árásir á þær þjóðir sem vinna á móti þeim. Jones telur að frekar sé um að ræða árásir á Evrópu, þar sem fjár­munir fari þverr­andi hjá sam­tök­unum og auð­veld­ara sé að fara yfir land, frá Sýrlandi, yfir til Tyrk­lands og þaðan til Evrópu.

En Íslamska ríkið á sér leyni­vopn, að mati Jones. Hann segir að þeir hvetji hryðju­verka­menn til dáða og treysti þannig á utan­að­kom­andi aðstoð. Þeir þurfi þar af leið­andi ekki að bera þann kostnað sem hlýst af hryðju­verk­unum sem framin eru í þeirra nafni.

Hugmyndafræðin lifir

Í hlað­varp­inu er bent á annað vanda­mál og teng­ist það útbreiðslu hryðju­verka­sam­tak­anna í öðrum löndum, til að mynda í Líbíu, Nígeríu, Afganistan, Sádi-Arabíu, Alsír, Egypta­landi og í Evrópu. Og alls staðar eru þau ásótt eða á flótta.

En tíma hug­mynda­fræð­ar­innar þarf ekki að vera lokið þrátt fyrir ósigr­ana und­an­farið. Þetta segir Fawaz A. Gerges, pró­fessor í alþjóða­sam­skiptum við London School of Economics and Political Science. Hann telur að einnig þurfi að líta til Al-Qaeda en sam­tökin vilja sýn­ast skyn­sam­ari en Íslamska ríkið. Stuðn­ings­menn þeirra gætu þess vegna farið yfir til Al-Qaeda eða ann­arra hryðju­verka­sam­taka og með þeim hætti gæti hug­mynda­fræðin lifað áfram.

En svo mikið er víst að Íslamska ríkið hefur náð undir sig landi með ógn­unum og hroða­verkum og mark­mið þess að verða kalífa­dæmi hefur ræst að ein­hverju leyti. En nú þegar sam­tökin eru á flótta og líkur eru á að þau verði að flýja land­laus inn í eyði­mörk­ina þá er ekki ósenni­legt að enda­lok þeirra séu í nánd. En annað er líka víst; að hug­mynda­fræðin lifir áfram þrátt fyrir enda­lok Íslamska rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár