Kennir manni að lifa í núinu

Þuríður Jóns­dóttir á fimm upp­komnar dætur. Sú yngsta, Hildur Ýr, er með Smith-Magenis heil­kenni sem er litn­inga­galli sem gerir það að verkum að hún er til dæmis með skertan þroska, lága vöðva­spennu og hún á það til að taka bræðisköst og meiða.

Þuríður og Hildur Ýr
Þuríður og Hildur Ýr Þuríður seg­ist aldrei hafa vor­kennt sjálfri sér og lítur ekki á sig sem fórn­ar­lamb. En það er erfitt að horfa upp á erf­ið­leika og köst dóttur sinnar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hjónin Þuríður Jóns­dóttir og Viðar Gunn­ars­son áttu fjórar heil­brigðar dætur á aldr­inum fjög­urra til 12 ára þegar fimmta dóttirin fædd­ist fyrir 23 árum.

„Ég fann strax þegar hún fædd­ist að það var eitt­hvað að en það tók mig 10 mán­uði að fá lækna til að við­ur­kenna að svo væri,“ segir Þuríður. 

„Ég tal­aði um þetta við lækna á fæð­ing­ar­deild­inni en þeim fannst þetta vera ótta­legt vesen í mér; mér var til dæmis sagt að ef við færum að gera eitt­hvert mál úr þessu þá þyrfti að skrá hana á vöku­deild og þá gæti ég ekki haft hana eins mikið hjá mér. Mér fannst eins og það væri verið að koma inn sam­visku­biti hjá mér þannig að ég hætti að tala um þetta og fór með hana heim. 

Hún var óvenju róleg fyrsta árið. Það þurfti alltaf að kíkja í vagn­inn til að athuga hvort hún væri vak­andi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár