Hanna Birna bað Stefán afsökunar, hefði ekki átt að hafa nein samskipti

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, segir að hún hefði „ekki átt að eiga í nokkrum sam­skiptum við“ Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á meðan á leka­mál­inu stóð. Hún við­ur­kennir það í bréfi sem hún sendi umboðs­manni Alþingis þann 8. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Hún hefur rætt við Stefán og beðið hann afsök­unar á sam­skiptum þeirra á milli og fram­göngu sinni í þeim.

Hanna Birna segir að sam­skipti hennar hafi ekki sam­rýmst „nægi­lega“ hinni óskráðu hæf­is­reglu stjórn­sýslu­réttar, og hún við­ur­kennir nú lýs­ingu Stefáns á sam­skiptum þeirra á milli. „Mér er einnig ljóst að þessi sam­skipti voru ekki að öllu leyti rétt­mæt af mér gagn­vart lög­reglu­stjór­anum.“

„Það voru mis­tök af minni hálfu að eiga sam­skipti við lög­reglu­stjór­ann vegna rann­sókn­ar­innar meðan hún stóð yfir. [...] Ég sé nú að sam­skipti okkar voru hvorki fylli­lega sam­rým­an­leg stöðu minni sem yfir­stjórn­anda lög­reglu­mála né því að lög­reglu­stjór­inn var for­stöðu­maður þess emb­ættis sem vann að rann­sókn­inni,“ segir Hanna Birna í bréf­inu.

Umboðs­maður Alþingis er nú á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis og sagði þar að málið hefði breyst eftir þetta nýjasta bréf Hönnu Birnu.

Sagðist ekki hafa farið yfir strikið


Þetta er mikil breyt­ing á afstöðu Hönnu Birnu til máls­ins. Eftir að DV birti frétt­ina um sam­skipti Hönnu Birnu við Stefán, þann 29. júlí sagði hún: „Ég hafna með öllu stór­yrtum og ósönnum full­yrð­ingum DV vegna þessa máls. Likt og komið hefur fram í dag bæði hjá mér og lög­reglu­stjóra á ég enga aðkomu að ákvörðun hans um að skipta um starfs­vett­vang og hef hvorki beitt hann þrýst­ingi eða haft óeðli­leg afskipti af ein­stökum málum sem eru eða hafa verið til með­ferðar hjá lög­reglu. I því máli sem hér er til umræður hef ég og allir starfs­menn ráðu­neyt­is­ins sýnt fullan sam­starfsvilja við rann­sókn máls­ins á öllum stigum enda hefur málið verið rann­sakað ítar­lega. Líkt og komið hefur fram liggur nið­ur­staða ekki enn fyrir og mun ég þangað til ekki tjá mig frekar um málið.“

Í Kast­ljós­við­tali í ágúst síð­ast­liðnum sagð­ist hún hvorki hafa reynt að hafa áhrif á rann­sókn lög­reglu á leka­mál­inu né hafi hún farið yfir strikið í sam­skiptum sínum við Stefán.

Hanna Birna sagði þá rangt að í bréfi umboðs­manns Alþingis hafi verið lýst afskiptum ráð­herra og ann­arra af rann­sókn lög­reglu á leka­mál­inu. Þar hafi ein­ungis verið lýst sam­skiptum hennar og lög­reglu­stjóra sem væri nauð­syn­legt að þau ættu vegna rann­sókn­ar­innar.

„Ég skil­greini það algjör­lega þannig að ég reyndi aldrei að hafa áhrif á rann­sókn­ina. Enda hefur Stefán sagt það að rann­sóknin hafi gengið eðli­lega fyrir sig. Það hefur rík­is­sak­sókn­ari líka sagt þegar hún ákveður að ákæra í mál­inu. Henni hefði verið í lófa lagið ef hún teldi rann­sókn­ina ekki full­nægj­andi að vísa henni aftur til lög­regl­unnar," sagði Hanna Birna í Kast­ljósi þá.

Þessi frétt er í vinnslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lekamálið

FréttirLekamálið

Umboðs­maður Alþingis: Borgarar verða að geta treyst því að stjórn­mála­menn skipti sér ekki af lög­reglu­rann­sóknum

„Ég tel nauð­syn­legt sem umboðs­maður Alþingis að vera á varð­bergi um að slík þróun verði ekki í íslenskri stjórn­sýslu,“ segir umboðs­maður í umfjöllun sinni um hátt­semi Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur í árs­skýrslu fyrir 2015. Afskipti ráð­herra af störfum lög­regl­unnar drógu dilk á eftir sér.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár