Mynd: EPA

Harmsaga fílsins Happy

Hún er ekki per­sóna sem á rétt á frelsi segja dóm­stólar þrátt fyrir að henni hafi verið rænt frá fjöl­skyldu sinni, hún fönguð, bundin og barin. Misst einu vini sína í prís­und­inni og aldrei eign­ast afkvæmi.

Fyrir meira um hálfri öld kom lítið kríli í heim­inn í Taílandi. Kríli þetta naut ekki aðeins þegar frá fæð­ingu ástar móður sinnar heldur líka ömmu, ömmu­systra og móð­ur­systra. Mögulega eldri systk­ina sinna einnig. Umvafið styrk og visku. Verndað og vel nært. Í sam­fé­lagi þar sem mæður fara með völdin.

En svo var litla krílið, með úfið hár og sak­leysi í aug­unum, hrifsað frá fjöl­skyldu sinni. Frá ylvolgri móð­ur­mjólk­inni. Líklega var öll fjöl­skyldan drepin í þeim til­gangi að fanga litla ang­ann svo flytja mætti hann inni­lok­aðan í búri þvert yfir hnött­inn, banda­rískum börnum og fjöl­skyldum þeirra til dægra­stytt­ingar.

Þannig hófst þyrnum stráð ævi fíls­ins sem menn gáfu nafnið Happy. Fíls sem er ekki per­sóna, sam­kvæmt nýföllnum dómi vest­an­hafs, en alveg örugg­lega merkur ein­stak­lingur í þeim hluta sögu okkar sem ötuð er blóði og þján­ingum dýra af mann­anna völdum.

Nafnið sem korn­ungi kven­fíll­inn fékk við kom­una til Banda­ríkj­anna er eins kald­hæðn­is­legt og hugs­ast getur. Hún var ekki eini fíls­ung­inn sem banda­rísku fang­ar­arnir tóku með valdi frá mæðrum sínum í veiði­ferð­inni árið 1971. Þeir voru sjö litlu fíl­arnir sem fluttir voru með flugi frá heima­lendum sínum. Og það þótti mjög snið­ugt að nefna þá eftir dverg­unum sjö í ævin­týr­inu um Mjall­hvíti. Happy. Grumpy. Sleepy. Sneezy. Og svo fram­vegis.

Happy var fyrst höfð í dýra­garði í Flórída. Þaðan var hún flutt til Texas og loks árið 1977, er hún var 5 eða sex ára, til Bronx-dýra­garðs­ins í New York.

Þar dvelur hún enn. Síðustu fimmtán árin ein í hluta rýmis sem kallað er „villta Asía“, því henni semur ekki við aðra fíla, að sögn dýra­garðs­yf­ir­valda. Í stað þess að vera umvafin fjöl­skyldu sinni í víð­ernum Taílands fara einu sam­skipti hennar við annan fíl fram í gegnum rimla­girð­ingu. Handan girð­ing­ar­innar er Patty. Og það er ekki til­viljun að Happy semur ekki vel við hana.

Happy í dýragarðinum í Bronx.
Happy í dýra­garð­inum í Bronx.

„Þessi indæla fröken sem við sjáum hér heitir Happy,“ segir leið­sögu­mað­ur­inn sem fer með gesti í lít­illi lest um Bronx-dýra­garð­inn. Blaða­maður Atlantic er meðal gesta og lýsir því sem fyrir augu ber með þessum hætti: „Í nokkra metra fjar­lægð, bak við járn­girð­ingu og víra er lítil tjörn, gras­flöt og nið­urtraðkað mold­ar­flag. Þar stendur Happy kyrr, starir fram fyrir sig, og vaggar örlítið til er hún lyftir og setur niður einn fót­inn á víxl.“

Leið­sögu­mað­ur­inn segir að „föken Happy“ hafi tek­ist „að halda lín­unum“ – rétt eins og hún sé að lýsa hégóm­legri mið­aldra konu. Hún heldur áfram og segir „mjög, mjög vel“ hugsað um Happy. Hún fái viku­lega fót­snyrt­ingu en nefnir ekki að það sé vegna þess að það er nauð­syn­legt til að koma í veg fyrir lífs­hættu­leg fóta­mein sem hrjá alla fíla sem eru í haldi manna. Fíla sem ekki geta gengið með fjöl­skyldum sínum fleiri kíló­metra á dag á nátt­úru­legu und­ir­lagi skóga og slétta.

Fílar hafa í áratugi verið látnir leika alls konar listir í sirkusum og dýragörðum víða um heim.
Fílar hafa í ára­tugi verið látnir leika alls konar listir í sirkusum og dýra­görðum víða um heim.

En hefur fröken Happy rétt sam­kvæmt lögum að vera ekki á þeim stað sem henni er nú haldið á? Er hún per­sóna, aðili að eigin vel­ferð­ar­máli?

Út á þetta gekk sögu­legt dóms­mál sem dýra­vernd­un­ar­sam­tök höfð­uðu og tekið var fyrir hjá áfrýj­un­ar­dóm­stól í New York á dög­unum. Nonhuman Rights Project (NhRP), sam­tök sem berj­ast fyrir rétt­indum dýra, vildu láta á það reyna hvort að Happy væri per­sóna í augum lag­anna – ein­stak­lingur sem ætti rétt á frelsi, ætti rétt á að vera frjáls undan valdi manna. Að henni væri ólög­lega haldið í dýra­garð­inum í Bronx. Líkt og Afr­íku­búum í þræl­dómi í þessu sama landi fyrir nokkrum ára­tugum. Eða föngum sem látnir eru dúsa í gæslu­varð­haldi án ríks til­efnis.

Fíllinn í herberginu

En kannski sner­ist dóms­málið ekki aðeins um einn fíl. Heldur um fíl­inn í her­berg­inu, eins og stundum er sagt; um hvaða stað nátt­úr­unni hefur verið tryggður í lögum og reglum þeim sem menn hafa samið og sett. Þess vegna var nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins beðið með óþreyju. Því ef Happy er per­sóna með rétt­indi þá eru önnur dýr í haldi í Banda­ríkj­unum það vænt­an­lega líka.

NhRP-sam­tökin vildu að Happy yrði flutt í athvarf þar sem hún hefði mun meira pláss til að athafna sig. Þar sem hún myndi jafn­vel hitta aðra fíla. Vera í kringum önnur dýr. Það vilja dýra­garðs­yf­ir­völdin í Bronx ekki gera og til að fá hana flutta þrátt fyrir það þurftu sam­tökin að sann­færa sjö manna dóm, þann æðsta í New York-ríki, um að Happy væri per­sóna fyrir lögum.

Ítalskir leikarar á baki fíla við tökur á kvikmynd í Róm í vor.
Ítalskir leik­arar á baki fíla við tökur á kvik­mynd í Róm í vor.

Nið­ur­staðan varð 5-2. Ekki Happy í vil. Hún er ekki per­sóna í augum lag­anna og ef hún væri það myndi það „raska gríð­ar­lega stöð­ug­leika í nútíma sam­fé­lagi,“ sagði dóms­for­mað­ur­inn, Janet DiFiore. Stöð­ug­leika sem byggir á því að menn haldi dýr sér til matar eða ynd­is­auka.

Samtök sem kenna sig við vernd villi­dýra (The Wildlife Conservation Society) reka Bronx-dýra­garð­inn og segja að dýra­vernd­un­ar­sam­tökin hafi aldrei viljað „frelsa“ Happy heldur „rífa hana upp með rótum frá heim­ili hennar og flytja þangað sem þau vilja. Þetta er hug­mynda­fræði sem tekur ekki til­lit til hegð­unar hennar, sögu, per­sónu­leika, ald­urs og sér­þarfa“.

Með einstaka félagsgreind

En hver er sagan hennar Happy, fíls­ins sem hefur dvalið í Bronx-dýra­garð­inum í 45 ár?

Fílar eru stærstu land­spen­dýr jarðar og meðal þeirra greindustu, lang­líf­ustu og skyn­söm­ustu. Fílar eru ekki jafn snjallir og menn á þá mæli­kvarða sem við oft­ast notum en þeir hafa yfir­burða félags­greind.

Fjöl­skyldur halda saman, vernda ung­viði fram í rauðan dauðan, finna til með veikum og slös­uðum, syrgja þá sem falla og éta ekki önnur dýr. Fílar lifa með öðrum orðum sann­ar­lega í sátt og sam­lyndi við menn og önnur dýr. Fái þeir yfir­höfuð tæki­færi til þess. Í hjörð­unum er mæðra­veldi; elstu kven­dýrin ráða ferð­inni. Þær ala saman upp ung­ana en karl­dýrin yfir­gefa hóp­inn þegar þeir verða kyn­þroska. Fara á flæk­ing. Stundum nokkrir saman.

Þessar stað­reyndir hafa mögu­lega alltaf verið fólk­inu sem bjó í nábýli við fíla ljósar. En Vest­ur­landa­búar fengu stað­fest­ingu á þeim með marg­vís­legum rann­sóknum sem gerðar hafa verið á atferli fíla síð­ustu ár og ára­tugi.

Nokkra vikna gamall fíll í dýragarði í Evrópu.
Nokkra vikna gam­all fíll í dýra­garði í Evrópu.

Sá sem pant­aði fíls­ung­ana sjö í upp­hafi átt­unda ára­tug­ar­ins hét Harry Shuster. Hann hafði opnað „safarí-garð“ í Flórída sem átti að vera allt öðru vísi en „búra­garðar“ for­tíðar. Fólk átti að geta ekið um og séð dýrin í „nátt­úru­legu“ umhverfi þótt slíkt væri auð­vitað tóm þvæla.

Hann safn­aði dýrum. Vildi hafa þau sem flest og sem mest fram­andi. Hafði keypt gamlan sirkus­fíl en lang­aði í krútt­lega fíls­unga. Og hann fékk krútt­lega fíls­unga. Móð­ur­lausa, krútt­lega fíls­unga sem áttu eftir að þurfa að skemmta fólki og vera fluttir fram og til baka í vöru­flutn­inga­bílum og flug­vélum eftir geð­þótta mann­anna sem þá sögð­ust eiga.

Árið 1974 voru fíls­ung­arnir sjö sem dvalið höfðu saman í dýra­garð­inum í Flórída sendir sitt í hvora átt­ina. Einn þeirra, Sneezy, end­aði í dýra­garði í Tulsa og er þar enn. Tveir voru seldir í sirkus. Að minnsta kosti annar þeirra er enn hluti af slíkri sýn­ingu. Sá fjórði end­aði í dýra­garði í Kanada en lést árið 2008. Hver örlög þess fimmta, Sleepy, voru eru á huldu, segir í grein Atlantic um sögu fíl­anna sjö.

En Happy og Grumphy fengu að vera áfram saman. Þær voru fyrst fluttar í nýjan dýra­garð í Texas og svo nokkrum árum síðar í Bronx-dýra­garð­inn. Er þangað kom var þeim ekki komið fyrir í „villtu Asíu“. Þær voru settar í „Fíla­húsið“ ásamt öldungnum Tus. Þær þrjár voru svo látnar leika listir fyrir gesti og bera börn á bak­inu. Í upp­hafi níunda ára­tug síð­ustu aldar hreykti dýra­garð­ur­inn sér af „villtu Asíu“ þar sem dýrin hefðu „nóg pláss“. En á sama tíma létu stjórn­endur hans klæða þrjá fíla í bún­inga og skemmta börnum. Þjálfari sem kom úr sirkus­heim­inum hafði umsjón með Happy, Grumpy og Tus. Hann barði þær til hlýðni.

Ráðist á fóstursysturina

Þegar fíl­arnir í „villtu Asíu“ fóru að týna töl­unni skap­að­ist þar pláss fyrir Happy, Grumphy og Tus. En Tus gamla átti ekki langt eftir og dó árið 2002. Hún hafði verið það sem næst komst móður fyrir ungu fíl­ana tvo í mörg ár. Í „villtu Asíu“ voru nokkrir aðrir fílar, m.a. Patty sem hafði misst afkvæmi sitt nokkrum árum fyrr. Og þegar Tus var farin yfir móð­una miklu raskað­ist valda­jafn­vægið. Patty réðst ásamt öðrum fíl á Grumpy. Áverkar hennar voru það alvar­legir að yfir­völd í dýra­garð­inum ákváðu að aflífa hana. Ekki þótti óhætt að hafa Happy í sama rými og Patty sem hafði valdið dauða fóst­ur­systur hennar. Ungi fíll­inn Sammy var fluttur í garð­inn til að Happy yrði ekki ein. En Sammy lifði ekki lengi. Og aftur var Happy ein.

Patty er enn á lífi. Það er hún sem er handan járnriml­anna. Sem þef­ast á við Happy annað slagið.

Fíll í dýragarði í Póllandi.
Fíll í dýra­garði í Póllandi.

Samtökin NhRP segja að eng­inn fíll ætti að vera einn. Að henni líði illa við þær aðstæður sem hún er látin búa við. Og þau blása á þau rök að Happy „semji illa við aðra fíla“. Því getur ekki verið að henni semji ein­fald­lega ekki við Patty? Eða að tor­tryggni hennar í garð ann­arra eigi sér skýr­ingar í sögu hennar, ævi, sem ein­kennst hefur af missi og ofbeldi?

En úr því sem komið er, er það raun­veru­lega Happy fyrir bestu að vera flutt enn einu sinni þvert yfir Banda­ríkin í dýra­at­hvarf – þrátt fyrir að þar hefði hún miklu meira pláss? Fyrir nokkrum ára­tugum hefði svarið alveg örugg­lega verið já. En svo mikil áföll hafa dunið á Happy að sér­fræð­ingar Bronx-dýra­garðs­ins, telja það úti­lokað. Hún hefur verið í haldi manna í hálfa öld. Þekkir ekk­ert annað.

En hún á enn jafn­vel tutt­ugu ár eftir ólifuð.

Fílahjörð fær sér að drekka í stöðuvatni í Úganda. Þar eru þeir í sínu náttúrulega umhverfi og hafa stór svæði til að fara um líkt og þeir helst kjósa.
Fíla­hjörð fær sér að drekka í stöðu­vatni í Úganda. Þar eru þeir í sínu nátt­úru­lega umhverfi og hafa stór svæði til að fara um líkt og þeir helst kjósa.

„Enginn efast um að það hafi slæm áhrif á fíla að vera í haldi manna,“ skrif­aði dóms­for­mað­ur­inn Jante DiFiore í meiri­hluta­á­lit­inu. En engin for­dæmi væru hins vegar fyrir því að önnur dýr en menn væru per­sónur í augum lag­anna og hefðu rétt­indi sam­kvæmt því. DiFiore minnti einnig á að kærendur væru ekki að fara fram á að Happy yrði alfarið frjáls. Heldur að hún yrði sett í hendur ann­arra manna við „eitt­hvað betri“ aðstæður. Því væri ekki hægt að gefa Happy þau rétt­indi sem fylgja því að vera per­sóna fyrir lögum enda myndi það hafa gríð­ar­leg áhrif á stöð­ug­leika í nútíma sam­fé­lagi. Væri Happy per­sóna mætti yfir­fara það á öll önnur dýr, gælu­dýr jafnt sem hús­dýr.

Hug­myndin um að rétt­indi til frelsis eigi aðeins við um menn – og ein­göngu af því að þeir eru menn – tengj­ast kenn­ingum um yfir­burði manna í dýra­rík­inu og hvernig mann­eskjur hafi rétt til að drottna yfir öðrum dýrum af þeim sökum.

Einn dóm­ar­inn, Rowan Wilson, hvatti með­dóm­endur sína til að ögra þessum kenn­ingum og sagði að rökin „af því að þetta hefur aldrei verið gert áður“ haldi ekki. Hug­myndir fólks um nátt­úr­una og mik­il­vægi allra hennar þátta, allra hennar líf­vera, séu að breyt­ast. Og túlkun laga um per­sónu­frelsi (habeas corpus) þurfi að gera það einnig.

Karldýr á leið að vatnsbóli í Úganda.
Karldýr á leið að vatns­bóli í Úganda.

Laga­hug­takið habeas corpus (per­sónu­frelsi) hefur í gegnum tíð­ina verið nýtt til að frelsa fólk undan því að vera í haldi ann­arra. Wilson segir að það hvort að fíll eða önnur dýr séu „per­sónur“ skipti ekki höf­uð­máli. Hugtakið megi nota til að kom­ast að því hvort hvaða ein­stak­lingur sem er skuli vera áfram í haldi. „Við getum öll verið sam­mála um að fíll er ekki af teg­und­inni homo sapi­ens,“ skrif­aði hann í minni­hluta áliti sínu. „En fíll er ekki heldur skrif­borðs­stóll eða ána­maðkur.“

Á bil­inu 15-20 þús­und fílar eru í haldi manna víðs vegar um heim­inn. Þrátt fyrir að gerðar hafi verið til­raunir til að banna föngun fíla í heim­kynnum þeirra í Asíu og Afríku síð­ustu ár er það enn gert.

Bíða þess aldrei bætur

Fílar eiga alls ekki heima í dýra­görðum, sagði í skýrslu um aðbúnað dýra í dýra­görðum í Evrópu og Norður-Ameríku sem kom út í vor. Að vera í dýra­görðum veldur fílum and­legu og lík­am­legu tjóni til ævi­loka. Skýrslan var gefin út af Born Free-sam­tök­unum og byggði á rann­sóknum margra sér­fræð­inga.

Í fyrra voru 580 fílar í evr­ópskum dýra­görðum. Dýra­vernd­un­ar­sam­tökin Born Free krefj­ast þess að fleiri fílar verði ekki settir í slíka garða. Að komið sé að enda­punkti í þeim efnum. Bæta eigi aðstæður þeirra sem þar eru en setja ekki aðra í stað­inn þegar þeir svo deyja.

Samtökin benda á að um 40 pró­sent allra fíls­unga sem fæð­ast í breskum dýra­görðum deyi áður en þeir nái fimm ára aldri. „Dýra­garðar geta aldrei líkt eftir nátt­úru­legum heim­kynnum fíla,“ segja þau. Hinu flókna félags­mynstri þeirra er líka óger­legt að við­halda í görð­unum.

Happy er sann­ar­lega gott dæmi um þetta. Hún er ein og í litlu rými. Að fylgj­ast með henni úr lest­inni sem gestir Bronx-dýra­garðs­ins setj­ast í í skoð­un­ar­ferð sinni „er eins og að horfa á fanga,“ segir Steven Wise, for­seti NhRP-sam­tak­anna. „Líf hennar er inn­an­tómt.“

Mann­eskjur eru ekki einu dýrin sem eiga rétt á við­ur­kenn­ingu og vernd sinna rétt­inda, segir á heima­síðu sam­tak­anna. Þótt mál þeirra hafi tap­ast fyrir áfrýj­un­ar­dóm­stólnum í New York er bar­átt­unni ekki lokið, segja sam­tökin. „Við erum rétt að byrja,“ segja þau.

Og Nonhuman Right Project standa ekki ein í bar­átt­unni fyrir rétt­indum dýra. Það gera nú hund­ruð sam­taka manna um allan heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Mest lesið undanfarið ár