Konurnar í dómstólaráði urðu undir - vildu tilnefna konu í dómnefndina

Ágrein­ingur var um það innan dóm­stóla­ráðs hvort fara skyldi að beiðni yfir­valda um það að til­nefna konu ásamt karli í nefnd sem metur hæfi umsækj­enda um emb­ætti hæsta­réttar- og hér­aðs­dóm­ara. Konurnar í ráð­inu vildu til­nefna konu en karl­arnir ekki. Karl­arnir voru í meiri­hluta dóm­stóla­ráðs og því varð ákvörðun þeirra ofan á.

Dóm­stóla­ráðs­menn­irnir Þor­gerður Erlends­dóttir og Þórdís Inga­dóttir vildu að farið yrði að fyr­ir­mælum dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins og jafn­rétt­islögum. Þetta kemur fram í bréfum frá dóm­stóla­ráði til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem sjá má hér að neðan. „Dóm­stóla­ráðs­menn­irnir Þor­gerður Erlends­dóttir og Þórdís Inga­dóttir standa ekki að þess­ari ákvörðun og telja að lög standi til þess að verða við beiðni ráð­herra eins og hún er fram sett,“ segir í bréf­inu sem Símon Sig­valda­son und­ir­rit­aði fyrir hönd dóm­stóla­ráðs. Það er svo aftur ítrekað í seinni bréfum að hvorki Þor­gerður né Þórdís standi að afstöðu ráðs­ins í mál­inu.

Líkt og Kjarninn greindi frá í gær telja dóm­stóla­ráð, Hæsti­réttur og Lög­manna­fé­lag Íslands að þau séu ekki bundin af jafn­rétt­islögum þegar kemur að því að skipa sína full­trúa í dóm­nefnd­ina. Þau telja að ákvæði um nefnd­ina í lögum um dóm­stóla gangi framar jafn­rétt­islög­unum, og eftir bréfa­skriftir við dóms­mála­ráðu­neytið ákvað ráðu­neytið að láta undan og skipa ein­göngu karla í nefnd­ina. Nefndin ákvað á dög­unum að Karl Axelsson væri hæf­astur umsækj­enda til að gegna emb­ætti hæsta­rétt­ar­dóm­ara og hefur ákvörð­unin beint athygli að því hversu fáar konur eru dóm­arar og að skipan þess­arar nefndar.

Í fimmt­ándu grein jafn­rétt­islag­anna er kveðið á um að hlut­fall hvors kyns fyrir sig skuli ekki vera minna en 40 pró­sent í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum hins opin­bera, þegar full­trú­arnir eru fleiri en þrír.

Inn­an­rík­is­ráðu­neytið hefur sagt að það telji það alveg skýrt að ákvæði jafn­rétt­islaga eigi við í þessu til­viki líkt og ann­ars. Þá skoðun hafa fjöl­margir aðrir viðrað, meðal ann­ars Jafn­rétt­is­stofa og tíu kvenna­sam­tök.

Bréf dóm­stóla­ráðs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár