Panamafélag, Mike Ashley og baráttan um Sports Direct á Íslandi

Mike Ashley er umdeildur maður. Hann er hat­aður af stuðn­ings­mönnum Newcastle, ældi einu sinni í arinn vegna drykkju á stjórn­enda­fundi og á það til að leggja sig undir borðum ef honum finnst fundir leið­in­legir.

Sports Direct, fyr­ir­tæki Mike Ashley, hefur stefnt Sigurði Pálma Sig­ur­björns­syni, fram­kvæmda­stjóra Sports Direct á Íslandi, og móður hans Ingi­björgu Pálma­dóttur. Hann hefur líka stefnt tveimur félögum, ann­ars vegar panamska félag­inu Guru Invest í eigu Ingi­bjargar og hins vegar Rhapsody Investem­ents, félagi frá Lúx­em­borg sem skráð er eig­andi alls hluta­fjár í Sports Direct á Íslandi. Ástæða stefn­unnar er, sam­kvæmt umfjöllun í breskum fjöl­miðlum um málið, samn­ings­brot. Ashley telur sig hafa átt kaup­rétt á öðru hlutafé í fyr­ir­tæk­inu á ákveðnu verði, en því eru mæðginin ósam­mála.

Mike Ashley og Jón Ásgeir Jóhann­es­son, eig­in­maður Ingi­bjargar, eru gamlir við­skipta­fé­lagar. Stöð 2, þá í meiri­hluta­eigu Jóns Ásgeirs, greindi meðal ann­ars frá því árið 2007 að Jón Ásgeir og Pálmi Har­alds­son, sem var náinn sam­starfs­maður hans á árunum fyrir hrun, ætl­uðu að kaupa enska knatt­spyrnu­liðið Newcastle af Ashley. Af því varð þó aldrei.

Eftir hrun var Ashley meðal ann­ars sagður eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins MyM-e limited, sem Jón Ásgeir kom að eftir hrun, í íslenskum fjöl­miðlum. Í Panama­skjöl­unum kom hins vegar fram að hópur í kringum Jón Ásgeir hefðu í raun verið eig­endur þess og félagið hafi verið fjár­magnað af Guru Invest, aflands­fé­lagi eig­in­konu Jóns Ásgeirs. Ashley hafði líka gott aðgengi að láns­fjár­magni frá íslenskum banka á góð­ær­is­ár­unum. Kaupþing fjár­magn­aði til að mynda að hluta upp­kaup Ashley á sam­keppn­is­að­ilum Sports Direct.

Ashley, fjöl­skylda Jóns Ásgeirs og náin sam­starfs­maður hans stofn­uðu síðan saman félag utan um rekstur Sports Direct versl­unar á Íslandi fyrir fimm árum síðan. Und­an­farin ár hefur eign­ar­hald þess félags verið þannig að fjöl­skylda Jóns Ásgeirs á 60 pró­sent hlut og Sports Direct 40 pró­sent.

En nú hefur greini­lega slest upp á vin­skap­inn. Og Ashley vill eign­ast allt félagið. Hann reyndi nýverið að kaupa hlut fjöl­skyld­unnar á 100 þús­und evrur, 12,4 millj­ónir króna, og taldi sig eiga sig eiga kaup­rétt á því verði. Til­boð­inu var hafnað enda velta Sports Direct á Íslandi rúmur millj­arður króna á ári og hagn­aður síð­asta árs um 70 millj­ónir króna. Virði rekst­urs­ins er því mun meiri. Samkvæmt frá­sögn The Sunday Times er virði Sports Direct á Íslandi í heild nær 2,5 millj­örðum króna.

Fjármagn frá Panama notað til að koma Sports Direct á fót

Íþrótta­vöru­versl­unin Sports Direct opn­aði verslun á Íslandi árið 2012. Tilkynnt var form­lega um opn­un­ina í maí­mán­uði það sama ár. Sá sem stýrt hefur fyr­ir­tæk­inu og komið fram fyrir hönd þess á Íslandi er Sigurður Pálmi Sig­ur­björns­son.

Eign­ar­hald á félag­inu utan um rekstur Sports Direct á Íslandi, sem heitir NDS ehf., er í höndum félags skráð í Lúx­em­borg sem heitir Rhapsody Invest­ments (Europe) Lux­em­borg. Í Panama­skjöl­unum var að finna upp­lýs­ingar um hvernig stofnað var til félags­ins, hverjir eig­endur þess eru og hversu mikið fé var lagt til rekst­urs­ins.

Þar má meðal ann­ars finna láns­samn­ing frá því í maí 2012 milli Guru Invest, félags skráð í Panama í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, og Sigurður Pálma sonar hennar um lán­veit­ingu til hans upp á 115 þús­und pund til að fjár­magna hans hlut í stofnun Rhapsody. Guru Invest tók hins vegar veð í hlut hans fyrir end­ur­greiðslu láns­ins.

Í ágúst sama ár var félagið svo sett á lagg­irnar. Í tölvu­póstum sem starfs­menn frá fjár­mála­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­inu SGG Group sendu Jeff Blue, sam­starfs­manni Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar vegna stofn­unar félags­ins kemur skýrt fram að Mike Ashley ætti að koma að stofnun félags­ins. Í pósti frá þeim er að finna vega­bréfa­númer Ashley svo hægt sé að gera hann að eig­anda auk stað­fest­ingar á heim­il­is­fangi hans.

Þar er einnig að finna hlut­hafa­sam­komu­lag vegna Rhapsody sem gert var á milli allra vænt­an­legra eig­enda félags­ins. Þar segir að eigna­skipt­ing, eftir að hlutafé verði greitt inn, verði með þeim hætti að SportsDirect.com Retail Ltd. (fyr­ir­tæki Mike Ashley), muni eiga 25 pró­sent hlut, Guru Invest (félag Ingi­bjargar í Panama) eigi 27 pró­sent, Sigurður Pálmi eigi 33 pró­sent og Jeff Blue 15 pró­sent. Afrit af póstum vegna gerðar hlut­hafa­sam­komu­lags­ins voru send til Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar, pró­kúru­hafa í Guru Invest.

Félag sem skráð er í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, Guru Invest, og er með heimilisfesti í Panama, hefur fjármagnað fjöldamörg verkefni í Bretlandi og á Íslandi eftir hrun. Jón Ásgeir Jóhannesson, eiginmaður hennar, var skráður með prókúru í félaginu og tengist mörgum verkefnanna sem það hefur fjármagnað.
Félag sem skráð er í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur, Guru Invest, og er með heim­il­is­festi í Panama, hefur fjár­magnað fjölda­mörg verk­efni í Bret­landi og á Íslandi eftir hrun. Jón Ásgeir Jóhann­es­son, eig­in­maður hennar, var skráður með pró­kúru í félag­inu og teng­ist mörgum verk­efn­anna sem það hefur fjár­magnað.

Af hlutafé félags­ins upp á eina milljón punda lagði Guru Invest S.A. fram 320 þús­und pund, Sigurður Pálmi 330 þús­und pund, Sports Direct 250 þús­und pund og Jeff Blue 100 þús­und pund. Sigurður Pálmi fékk lán frá Guru Invest upp á 115 þús­und punda, rúm­lega 20 millj­ónir króna árið 2012, til að fjár­magna hluta­fjár­kaup sín í Rhapsody Invest­ments.

Mikil viðskipti við tengda aðila

Síðan hefur rekst­ur­inn gengið vel. Heild­ar­velta NDS ehf., íslenska félags­ins utan um hann, var 1.033 millj­ónir króna árið 2016 sam­kvæmt árs­reikn­ingi og jókst um 12 pró­sent milli ára. Hagn­að­ur­inn var 69 millj­ónir króna eftir skatta.

Þar með er þó ekki öll sagan sögð. Félagið hefur nefni­lega verið að greiða hratt niður skuldir við tengda aðila. Í apríl 2015 skuld­aði NDS tengdum aðilum 215,5 millj­ónir króna í skamm­tíma­skuldir og 54,2 millj­ónir króna í lang­tíma­skuldir. Árið síðar hafði skamm­tíma­skuldin lækkað niður í 83 millj­ónir króna.

Í árs­reikn­ingi NDS kemur fram að tengdir aðilar séu „eig­endur, stjórn félags­ins, fram­kvæmda­stjóri, nánir fjöl­skyldu­með­limir fyrr­greindra aðila og aðilar sem hafa umtals­verð áhrif sem stórir hlut­hafar í félag­inu.“

Af skuldum við tengda aðila var lán­veit­ing frá móð­ur­fé­lagi NDS, Rhapsody Invest­ment frá Lúx­em­borg, alls 55,3 millj­ónir króna. Sú skuld var á gjald­daga 21. ágúst 2017, eða í gær.

Auk þess kemur fram að NDS hafi keypt vörur og þjón­ustu af tengdum aðilum fyrir 452,3 millj­ónir króna á síð­asta rekstr­ar­ári . Það eru nán­ast allt kostn­að­ar­verð seldra vara, sem var sam­tals 506 millj­ónir króna. Um er að ræða kaup á vörum og þjón­ustu frá Sports Direct, fyr­ir­tæki Mike Ashley.

Blue vildi að Ashley efndi blautan samning

SportsDirect.com Retail Ltd, fyr­ir­tæki Ashley, á nú, líkt og áður sagði, 40 pró­sent í sport­vöru­versl­un­inni sem rekin er undir Hatti Sports Direct í Kópavogi. Hlutur félags­ins jókst upp í þá tölu þegar Ashley keypti 15 pró­sent hlut Jeff Blue fyrir nokkrum árum.

Jeff Blue þessi hafði lengi starfað með Jóni Ásgeiri. Árið 2007, þegar Jón Ásgeir ákvað að stíga til hliðar sem for­stjóri Baugs og ger­ast starf­andi stjórn­ar­for­maður sam­stæð­unnar, tók Gunnar Sig­urðs­son, þá fram­kvæmda­stjóri smá­sölu hjá Baugi, við starfi Jóns Ásgeirs. Við starfi Gunnars tók Jeff Blue. Hann hélt áfram að vinna með Jóni Ásgeiri eftir hrun og kom meðal ann­ars að skulda­upp­gjöri honum tengdu á árinu 2010. Þá greiddi félagið sem nú heitir Guru Invest, og er með heim­il­is­festi á Panama, hluta af skuldum Fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums og félags í eigu þess við Glitni. Með greiðsl­unni var komið í veg fyrir að Glitnir gæti sett ákveðin félög í þrot.

Blue seldi hlut­inn sinn í íslenska Sports Direct þegar hann hélt að hann hefði náð sam­komu­lagi við Mike Ashley um að verða fjár­mála­stjóri sam­stæðu hans. Blue hélt líka að hann hefði samið við Ashley um að sá síð­ar­nefndi myndi greiða sér 15 millj­ónir punda, tæp­lega 1,9 millj­arða króna, ein­greiðslu ef honum tæk­ist að koma hluta­bréfa­verði Sports Direct úr fjórum pundum í átta pund á hvern hlut.

Horse&Groom kráin í London.
Horse&Groom kráin í London.

Umrætt „sam­komu­lag“ var gert á „Horse&Groom“ kránni í London eftir mikla drykkju. Ashley sagði að aldrei hefði verið um raun­veru­legt til­boð að ræða heldur góð­lát­legt grín í drykkju­sam­læti. Vitna­leiðslur yfir honum við með­ferð máls­ins voru kostu­legar. Ashley sagð­ist líka vera leið­in­legur og „feitur eins og tunna“ (e. fat as a barrel) þegar hann svar­aði spurn­ingum lög­manna.

Blue fannst þetta þó ekki hafa verið neitt grín og fór í mál við Ashley. Hann hélt því fram að samn­ing­ur­inn hefði lög­form­legt gildi og því ætti Ashley að greiða sér 15 millj­ónir punda.

Á meðan að á máls­með­ferð­inni stóð setti Blue fram allskyns ásak­anir um lög­brot sem hann sagði Ashley hefði framið, en tengd­ust mál­inu ekki með beinum hætti. Hann ásak­aði Ashley meðal ann­ars um að hafa ætla að múta ákveðnum stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins og um áform um mark­aðs­mis­notkun með hluta­bréf í Sports Direct. Blue hélt því enn fremur fram að Ashley stund­aði oft á tíðum við­skipti á óhefð­bundin hátt og á óvenju­legum stöðum. Máli sínu til stuðn­ings sagði hann frá því að Ashley hefði einu sinni ælt í arinn eftir stjórn­enda­fund hjá Sports Direct, sem hefði farið fram á krá. Blue sagði einnig að Ashley ætti það til að leggja sig undir borðum á leið­in­legum fundum. Þetta sýndi að hann væri óhefð­bund­inn við­skipta­maður sem gerði óhefð­bundna samn­inga, líkt og þann sem Blue taldi sig hafa gert um 15 millj­óna punda greiðslu.

Kröfu Blue var vísað frá í lok júlí síð­ast­lið­ins. Dómarinn í mál­inu sagði þá stað­reynd að Blue hefði sann­fært sig um að laga­lega bind­andi sam­komu­lag hefði verið um að ræða sýndi að mann­leg geta til ósk­hyggju væri nán­ast tak­marka­laus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið undanfarið ár