Boris Johnson kominn á gjörgæsludeild

Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands hefur verið lagður inn á gjör­gæslu­deild, en hann var lagður inn á spít­ala í gær með „þrá­lát ein­kenni“ sjúk­dóms­ins sem kór­ónu­veiran veldur.

Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands hefur verið lagður inn á gjör­gæslu­deild, en hann var lagður inn á spít­ala í gær með „þrá­lát ein­kenni“ COVID-19, sjúk­dóms­ins sem kór­ónu­veiran veldur.



Breska rík­is­út­varpið BBC greinir frá þessu. Í yfir­lýs­ingu frá skrif­stofu for­sæt­is­ráð­herr­ans segir að ástand Johnson hafi versnað síð­degis í dag og að læknar hans hafi mælst til þess að hann yrði fluttur á gjör­gæslu.

Á vef Guardian segir að Johnson sé með með­vit­und og að flutn­ingur hans á gjör­gæsl­una sé var­úð­ar­ráð­stöfun, fari svo að hann þurfi að önd­un­ar­vél að halda.

Dominic Raab utan­rík­is­ráð­herra hefur verið beð­inn um að hlaupa í skarðið fyrir Johnson og sinna skyldum for­sæt­is­ráð­herra á meðan staðan er svona.

Johnson, sem er 55 ára gam­all, greindi frá því 27. mars síð­ast­lið­inn að hann væri með COVID-19 og hefur síðan þá verið í ein­angrun á heim­ili sínu á Downingstræti, eða allt þangað til hann var fluttur á spít­ala í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár