Stál í stál hjá Grikkjum og Evrópusambandinu - spennan magnast

Fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, Yanis Varoufakis, seg­ist vera til­bú­inn að gera „hvað sem er“ til þess að ná sam­komu­lagi við kröfu­hafa lands­ins, þar á meðal Evr­ópu­sam­bands­ríkin, um breytta skil­mála fyrir end­ur­greiðslu skulda lands­ins. Breska rík­is­út­varpið BBC greindi frá þessu í gær­kvöldi.

Fjár­mála­ráð­herrar Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna stóðu upp frá samn­inga­borð­inu í gær­kvöldi og lét for­maður samn­inga­nefndar Evr­ópu­sam­bands­ins í við­ræð­unum við Grikkja, Jeroen Dijs­sel­bloem, þau orð falla að nú væri tím­inn orð­inn naumur. Hann tal­aði fyrir því að fram­lengja áætl­un­ina, upp á 240 millj­arða evra, sem unnið hefur verið eftir frá því að Grikkjum voru veitt neyð­ar­lán í fjár­málakrepp­unni, fyrst 2010 og síðan aftur 2012. Áætlunin rennur út 28. febr­úar, nema að hún hafi þá þegar verið fram­lengd með sam­komu­lagi milli Grikkja og Evr­ópu­sam­bands­ins.

Áætlun eða ekki áætlun, það er spurningin


Það sem helst er deilt um er einkum tvennt. Annars vegar er það krafa Varoufakis og félaga í Syriza flokknum, um að falla frá nið­ur­skurði hjá hinu opin­bera og eigna­sölu rík­is­ins í Grikk­landi, og end­ur­semja um greiðslu­byrði skuld­anna, og hins vegar kröfur Syriza um frek­ari afskriftir skulda rík­is­ins, eða lækkun á höf­uð­stól þeirra. Dijs­sel­bloem og félagar eru með áhrifa­ríka og ein­falda nálgun á við­ræð­urnar; höldum okkur við áætl­un­ina, hún er að virka.
We live in a strange world: "Adam Smith Institute calls on Osborne to back Varoufakis's Greek debt-swap plan" http://t.co/aaReZf2EPF

— Yanis Varoufakis (@yanisvaroufakis) February 4, 2015

For­svars­menn samn­inga­nefndar Evr­ópu­sam­bands­ins hafa bent á að Grikkir hafi sýnt jákvæð efna­hags­leg merki, ítrekað, frá því að áætl­un­inni var hrint í fram­kvæmd og að þessi merki sýni að hún sé að reyn­ast vel. Varoufakis er þessu algjör­lega ósam­mála og segir inn­viði Grikk­lands fúna, atvinnu­leysi hafi ekk­ert lækkað og að nið­ur­skurð­ur­inn hjá hinu opin­bera hafi veikt almanna­þjón­ustu mikið. Atvinnu­leysi í Grikk­landi mælist nú tæp­lega 26 pró­sent, en með­al­talið í Evr­ópu­sam­band­inu er ríf­lega ell­efu pró­sent. Varoufakis segir nauð­syn­legt að breyta skil­yrðum lán­töku Grikkja þannig, að greiðslu­byrðin sveiflist með næmum hætti í takt við hag­vöxt. Það sé ekki raunin nú, og það ráði almenn­ingur í Grikk­landi ekki við til lengdar.

Tíminn tikkar


Nú hafa Grikkir ell­efu daga til þess að ná sam­komu­lagi við kröfu­hafa sína, einkum Evr­ópu­sam­bandið og Seðla­banka Evrópu, ann­ars er voð­inn vís. Ýmsir hafa spáð því að nú sé raun­veru­leg hætta á því að Grikkir yfir­gefi evr­una, og taki upp eigin mynt á nýjan leika, en Varoufakis hefur talað allt slíkt niður. Grikkir vilji áfram vera hluti af evr­unni, en á eigin for­sendum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár