NATO styður loftárásir Tyrkja á ISIS og Kúrda

Atl­ants­hafs­banda­lagið (NATO) hefur ákveðið að styðja loft­árásir Tyrk­lands sunnan landamærana við Sýrland og Írak. Loft­árás­unum er beint að Íslamska rík­inu (ISIS) en Kúrdar hafa einnig orðið fyrir skæðum árásum Tyrkja. Ákvörð­unin var tekin á fundi allra 28 ríkja NATO í Brussel í dag.

Tyrkir boð­uðu til neyð­ar­fundar í Brussel í morgun vegna árás­ana þar sem óskað var eftir frek­ari stuðn­ingi banda­lags­ins í átök­unum gegn Íslamska rík­inu auk þess sem Tayyip Erdogan, for­seti Tyrk­lands, brýndi fyrir banda­lags­þjóðum að þær skyldu kveða til vopna yrði árás gerð á Tyrkland.

„Við stöndum sam­einuð með Tyrk­landi,“ sagði Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, eftir fund­inn. Hann hafði við upp­haf fund­ar­inns sagt tíma­bært að ræða „óeirð­irnar í dyra­gætt­inni til Tyrk­lands og við landa­mæri NATO.“

Í aðdrag­anda fund­ar­ins höfðu bæði NATO og Tyrkland sagst frá­hverf hug­myndum um að hern­að­ar­banda­lagið leggi til sam­eig­in­lega krafta sína á landi og í lofti, til að styðja við árásir Tyrkja. Erdogan sagði hins vegar eftir fund­inn að Tyrkir hefðu þegar orðið fyrir árásum, til dæmis þegar sjálfs­morðsárás Íslamska rík­is­ins varð 32 að bana í tyrk­neskum bæ norðan landamærana við Sýrland í síð­ustu viku.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Aðilda­ríki NATO eru 28 og komu þau saman í höf­uð­stöðvum banda­lags­ins í Brussel í morgun. Ísland er meðal aðild­ar­ríkja.[/caption]

Í sam­þykkt NATO-ríkj­anna er kveðið á um að sé árás gerð á eitt aðild­ar­ríki muni öll ríkin lýsa yfir stríði og standa með banda­mönnum sínum. Erdogan minnti á það: „Ef aðild­ar­ríki að NATO veðrur fyrir árás verður NATO að veita alla þá aðstoð sem mögu­leg er.“

Tyrkir hófu nýlega að bein afskipti af Íslamska rík­inu eftir að hafa átt í erf­ið­leikum með að aflýsa stuðn­ingi sínum við upp­reisn­ar­menn í Sýrlandi. Árásir Tyrkja hafa ekki síður beinst að hópum Kúrda í norð­an­verðu Sýrlandi og Írak. Þjóð Kúrda nýtur mun meiri stuðn­ings meðal Vest­ur­veld­anna og í Evrópu en meðal Tyrkja.

Erdogan segir ómögu­legt að halda áfram frið­ar­við­ræðum við kúrdíska skæru­liða en Tyrkir og Kúrdar hafa tek­ist á í nærri 30 ár. „Við getum ekki haldið áfram frið­ar­við­ræðum við þá sem ógna þjóðar­ör­yggi okkar og bræðra­lagi,“ sagði Erdogan.

Evr­ópu­sam­bandið hefur brýnt fyrir Tyrkjum að leita frið­sam­legra lausna í deilum þeirra við Kúrda, jafn­vel þó sam­bandið seg­ist styðja rétt Tyrk­lands til að verja landa­mæri sín.

Aðild­ar­ríki NATO geta kallað til neyð­ar­fundar full­trúa allra þjóða NATO ef það telur öryggi sínu vera ógnað. Tyrkir hafa tvisvar kallað til slíks fundar vegna óald­ar­innar í Sýrlandi, í bæði skiptin árið 2012, en alls hefur þessi grein sam­þykkt­ar­innar verið virkjuð fimm sinnum. Erdogan flaug í morgun til Peking í Kína þar sem ráð­gert er að hann versli lang­dræg flug­skeyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár