„Mjög áhugavert að skoða hugmyndir um þrepaskiptan erfðafjárskatt“

For­sæt­is­ráð­herra sagði á Alþingi í dag að áhuga­vert væri að skoða hug­myndir um þrepa­skiptan erfða­fjár­skatt en hún var meðal ann­ars spurð út í fram­sal hluta­bréfa­eigna aðal­eig­enda Samherja til afkom­end­anna.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra telur það vera mjög áhuga­vert að skoða hug­myndir um þrepa­skiptan erfða­fjár­skatt. Þetta kom fram í svari hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, spurði Katrínu hvort rík­is­stjórnin myndi beita sér fyrir sam­þykkt stig­vax­andi erfða­fjár­skatti, þar sem ígildi hóf­legs sparn­aðar – til að mynda ein­býl­is­húss – bæri áfram 10 pró­sent skatt en pró­sentan hækk­aði til muna þegar um væri að ræða jafn­vel hund­ruð millj­ónum, jafn­vel millj­arða.

Ástæðan fyrir fyr­ir­spurn Loga var að „í síð­ustu viku var slegið Íslands­met í arð­greiðslu þegar ágóði af sam­eig­in­legum auð­lindum þjóð­ar­innar var afhentur nýrri kyn­slóð“. Vísaði hann þarna í ákvörðun aðal­eig­enda Sam­herja, fyrr­ver­andi hjón­anna Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Helgu S. Guð­munds­dótt­ur, og Krist­jáns Vil­helms­sonar, en þau ákváðu að fram­selja hluta­bréfa­eign sína til barna sinna í síð­ustu viku.

Logi vildi enn fremur vita hvort áform væru uppi um stór­eigna­skatt á aðila sem eiga fleiri hund­ruð millj­ónir í hreina eign, líkt og for­sæt­is­ráð­herra boð­aði fyrir kosn­ingar. Eða hvort önnur áform væru upp og hver þau væru þá.

Katrín fjall­aði ekki meira um hug­myndir um þrepa­skiptan erfða­fjár­skatt en sagði að í öðru lagi teldi hún að hún og hátt­virtur þing­maður og fleiri for­menn flokka bæru ríka skyldu til þess að ljúka vinnu við nýtt auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá. „Ég rifja það upp að hér var spurt árið 2012 hvort fólk vildi sjá ákvæði um auð­lindir í þjóð­ar­eign í stjórn­ar­skrá og svar­aði yfir­gnæf­andi meiri hluti þjóð­ar­innar því ját­andi. Sömu nið­ur­stöður birt­ist í nýlegri skoð­ana­könnun sem for­menn flokka á Alþingi létu gera. Ég tel að það sé í raun og veru und­ir­staða þess að við getum rætt auð­linda­nýt­ingu á Íslandi að við und­ir­strikum þann rétt í stjórn­ar­skrá,“ sagði hún.

Logi kom í pontu í annað sinn og sagði að vissu­lega bæri þeim á þingi skylda til að afgreiða nýtt og sam­þykkja auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá en að það væri ekki sama hvernig það liti út. „Þar þarf að passa upp á hluti eins og að það sé gjald­taka af eðli­legum toga og tíma­bind­ing heim­ilda og annað slíkt. Slíkt er ekki uppi á borð­inu í augna­blik­inu.“

Katrín svar­aði og sagði að mjög mik­il­vægt væri að þau sam­ein­uð­ust um auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá og að ekki væri sama hvernig það væri. „En erum við ekki öll sam­mála um að auð­lind­irnar beri ekki að afhenda með var­an­legum hætti? Er það ekki und­ir­stöðu­at­riði? Og erum við ekki sam­mála um að í stjórn­ar­skrá eigi að birt­ast grunn­lín­urnar sem leggja lög­gjaf­anum lín­urnar? Og erum við ekki sam­mála um hvað það merkir að afhenda ekki auð­lindir með var­an­legum hætti? Því að það er mjög vel útskýrt. Það er útskýrt að það eru þá ann­að­hvort tíma­bundin afnot eða upp­segj­an­leg með til­teknum fyr­ir­vara sem er, ef ég man rétt, það sem stóð í auð­linda­á­kvæði auð­linda­nefnd­ar­innar 2000 og er útskýrt með þessum hætti í því frum­varpi sem kynnt var í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.“

Telur ráðherrann Sjálfstæðisflokkinn til framsækinna vinstri hreyfinga?

Þing­mað­ur­inn fjall­aði einnig um í fyr­ir­spurn­inni nýlega grein eftir for­sæt­is­ráð­herr­ann og við­tal í vefriti Progressive International sem vakti athygli hans. „Þar segir hún meðal ann­ars að þótt vinstri menn í Evrópu greini á um margt sé það skylda þeirra á við­sjár­verðum tímum að vinna saman að því að leita lausna. Jafn­framt þurfi á tímum lofts­lags­breyt­inga og efna­hags­legs ójöfn­uðar að marka djarfa og fram­sækna stefnu með félags­legt rétt­læti, jafn­rétti kynj­anna, lofts­lags­mál og alþjóð­lega sam­vinnu að leið­ar­ljósi,“ sagði Logi.

Hann sagð­ist vera þessu hjart­an­lega sam­mála og að það þyrfti kannski ekki að koma á óvart „því að um þessi verk­efni og skyldu vinstri flokka hef ég margoft rætt hér. Nú veit ég ekki hvort for­sæt­is­ráð­herra telur sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn lík­legt til að ná þeim rót­tæku félags­legu og efna­hags­legu breyt­ingum sem hún taldi nauð­syn­legar í grein­inni eða hvort hún telji Sjálf­stæð­is­flokk­inn jafn­vel til fram­sæk­inna vinstri hreyf­inga í Evrópu, eða hvort henni finn­ist þessi skylda vinstri flokka í Evrópu til að vinna saman að rót­tækum aðgerðum bara eiga við ann­ars staðar en á Íslandi. En látum það vera og ræðum frekar ójöfn­uð­inn sem for­sæt­is­ráð­herra gerði að umtals­efni í grein­inni.“

Katrín þakk­aði Loga fyrir að vekja athygli á „þeim ágæta félags­skap, Progressive International, sem snýst um alþjóð­legt sam­starf fram­sæk­inna afla í heimi þar sem við sjáum mikið bakslag víða, til dæmis þegar kemur að rétt­indum fólks“.

Nægði þar að líta til næstu nágranna í Evrópu og nýlegrar lög­gjafar í Ung­verja­landi til að mynda um rétt­indi trans­fólks. „Við höfum ekki verið á þeirri leið á Íslandi, sem betur fer, enda tel ég mjög mik­il­vægt að vinstri sinn­aðir flokkar leiti allra leiða til að ná raun­veru­legum áhrifum. Þau höfum við séð birt­ast á þessu kjör­tíma­bili þó að hátt­virtur þing­maður vilji ekki ræða þann árangur, til að mynda í nýlegum lögum um kyn­rænt sjálf­ræði, svo ég taki bara eitt lítið dæmi. Ég gæti nefnt mörg dæmi sem tengj­ast jafn­rétti kynj­anna, lofts­lags­breyt­ingum og jöfn­uði,“ sagði hún.

Nauðsynlegt að vinstri menn sameinuðust gegn hægri öflum

Logi sagði að í umræddri grein tal­aði for­sæt­is­ráð­herra enn fremur um nauð­syn þess að vinstri menn sam­ein­uð­ust gegn hægri öflum, sér í lagi útlend­inga­andúð. „Nú geri ég mér grein fyrir því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn telst kannski ekki til öfga­hægri afla þótt hann hafi birt sér­kenni­legar skoð­anir sínar í til dæmis málum eins og varð­aði þung­un­ar­rof og öðru og í útlend­inga­málum nú. Ég velti því fyrir mér í þessu sam­hengi hvernig for­sæt­is­ráð­herra getur rétt­lætt það að hafa eft­ir­látið hægri flokki sem rekur harða útlend­inga­stefnu stjórn útlend­inga­mála hér á landi og hvort hæstv. ráð­herra, for­maður hreyf­ingar Vinstri grænna, sé að veita flokki um ómann­lega útlend­inga­stefnu ákveðið lög­mæti í núver­andi rík­is­stjórn.“

For­sæt­is­ráð­herr­ann lauk máli sínu með því að segja ekki hefðu fleiri fengið alþjóð­lega vernd á Íslandi en árið 2019. „Íslensk stjórn­völd fóru aðra leið, og ég var ekki hluti af rík­is­stjórn þá þannig að það er ekki svo að það sé endi­lega mér að þakka en stjórn­völd til að mynda ann­ars staðar á Norð­ur­löndum sem settu mun harð­ari útlend­inga­reglur á sínum tíma þegar flótta­manna­bylgjan gekk yfir Evrópu. Ég veit því ekki alveg í hvað hátt­virtur þing­maður er að vísa þegar um er að ræða mál sem, sem betur fer, til­tölu­lega mikil sam­staða hefur verið um hér á þingi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár