Komu flóttafólks seinkar fram yfir áramót

Fyrsti hópur kvótaflótta­manna sem stjórn­völd hyggj­ast taka á móti frá Sýrlandi kemur ekki til lands­ins á þessu ári eins og áður hafði verið áætlað. Nú er gert ráð fyrir því að hóp­ur­inn komi til Íslands um eða eftir miðjan jan­úar.

Vel­ferð­ar­ráðu­neytið greinir frá þessu og segir að af ýmsum ástæðum hafi tekið lengri tíma en áætlað var að ganga frá nauð­syn­legum forms­at­riðum vegna útgáfu útgöngu­vega­bréfa fyrir fólkið. Þessi vega­bréf eru áskilin af hálfu líbanskra stjórn­valda við brott­för þeirra, en hóp­ur­inn er allur stað­settur í flótta­manna­búðum í Líbanon.

Í dag hófst nám­skeið á vegum alþjóð­legu fólks­flutn­inga­stofn­un­ar­innar fyrir flótta­manna­hóp­inn í Líbanon. Mark­miðið er að und­ir­búa fólk fyrir þær breyt­ingar sem framundan eru og hvers það megi vænta í nýju landi.

Búið er að semja um að fólkið sem kemur í jan­úar fer til Akur­eyrar, Kópavogs og Hafn­ar­fjarðar. Hópurinn telur 55 ein­stak­linga frá Sýrlandi, þar af eru 35 börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár