Eigendur fyrirtækja í sjávarútvegi fengu 13,5 milljarða í arð í fyrra

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins greiddu sér sam­tals 13,5 millj­arða króna í arð í fyrra. Það er meira en eig­endur fyr­ir­tækja í grein­inni greiddu sér í arð árið 2013, þegar arð­greiðslur námu 11,8 millj­örðum króna, og meira en þeir greiddu sér sam­an­lagt árin 2009 til 2011, þegar arð­greiðslur námu sam­tals 11,3 millj­örðum króna. Þetta kom fram í máli Jónasar Gests Jón­as­sonar, lög­gilts end­ur­skoð­anda og með­eig­anda Deiloitte ehf., á Sjáv­ar­út­vegs­deg­inum í Hörpu í morgun. RÚV greinir frá. Samtals hafa sjáv­ar­ú­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins greitt sér 48,8 millj­arða króna í arð vegna starf­semi sinnar frá árinu 2008.

arður

|

Create your own infographics

Til sam­an­burðar þá greiddu íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki 8,1 millj­arð króna í veið­gjöld til rík­is­sjóðs í fyrra. Veiði­gjöldin námu því 60 pró­sent af þeirri upp­hæð sem greidd var út í arð­greiðslur til eig­enda sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á því ári. Veiði­gjöld hafa lækkað mikið á und­an­förnum árum. Þau voru 9,7 millj­arðar króna árið 2013 en ný rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks réðst í breyt­ingar á veiði­leyfagjöldum skömmu eftir að hún tók við völdum með það fyrir sjónum að lækka það umtals­vert. Lækkun veiði­gjalda átti koma fyrst fram að fullu árið 2015. Það hefur orðið raunin enda gera áætl­anir ráð fyrir því að veiði­gjöld í ár verði 5,3 millj­arðar króna, eða rúmur helm­ingur þess sem þau voru árið 2013. Samkvæmt fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2016 er þó gert ráð fyrir að þau hækki á ný á næsta ári og verði þá 7,9 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár