Grjót­harður Krist­berg Jónsson, fyrr­ver­andi veit­inga­maður í Baulu, er þekktur fyrir að segja hug sinn und­an­bragða­laust. Hann er ófeim­inn við að skamma þá sem ekki fara að reglum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Blankir útrásarvíkingar á nærfötunum

Kristberg Jónsson, Kibbi í Baulu, er búinn að selja veitinga­staðinn við veginn. Ótal þjóðsögur hafa spunnist um Kibba. Hann lánaði útrásar­víkingum á þyrlu fyrir pulsu og kók. Tók aldrei lán vegna Baulu. Ferðast um á Harley Davidson og gefur börnum kakó. Kapítal­istinn er sann­færður sósíal­isti sem fylgir VG að málum.

„Þegar spurðist út að við værum að selja Baulu fékk ég stundum viðbrögð frá fólki sem spurði: „Hvað um okkur?“ Þetta kom mér skemmtilega á óvart. Ég hafði aldrei hugsað út í það að einhver kynni að sakna okkar svona mikið,“ segir Kristberg Jónsson, veitinga­maður í Baulu í Borgar­firði, sem hefur ásamt eiginkonu sinni, Sigrúnu Tómasdóttur, selt reksturinn og er hættur á langri vakt við Þjóðveg 1.

Kristberg, eða Kibbi í Baulu, hefur staðið vaktina við þjóð­veginn í 18 ár. Hann þykir einstak­lega litríkur og hafa spunnist um hann fjölmargar sögur, bæði sannar og ýktar. Hann er þéttur á velli og tattóveraður á hand­leggjunum. Ekki árenni­legur, myndi einhver segja. En undir tattúinu og hörðum skrápnum leynist, að sögn þeirra sem best þekkja, hjarta úr gulli. Kibbi er maður sem segir hug sinn umbúða­laust og bregður þá sumum í brún. En það er gjarnan stutt í hláturinn og gleðina.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár