Bann við vopnasölu og refsiaðgerðir gegn Rússlandi tvö aðskilin mál

Bann við vopna­sölu og við­skipta­þving­anir gegn Rúss­landi vegna Úkraínu eru tvö aðskilin mál og ákvörðun Banda­ríkja­manna um að gera und­an­þágu á vopna­sölu­bann­inu gagn­vart Rúss­landi teng­ist ekki við­skipta­þving­unum vegna Úkraínu. Þetta segir tals­maður banda­ríska sendi­ráðs­ins á Íslandi við Kjarnann. Sendi­herra Banda­ríkj­anna hér á landi segir að Banda­ríkin sýni því skiln­ing að refsi­að­gerðir hafi haft áhrif á íslenskan sjáv­ar­út­veg, en það sé mik­il­vægt að banda­menn í NATO haldi áfram að „standa vörð um nauð­syn­legar grund­vall­ar­reglur“.

Í Morg­un­blað­inu á mánu­dag­inn var rætt við Jens Garðar Helgason, for­mann Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, þar sem hann sagði að stór­veldi á borð við Þýska­land og Banda­ríkin hefðu gert til­slak­anir á við­skipta­þving­unum gagn­vart Rússum til að liðka fyrir eigin við­skiptum, og hagi sér eftir því sem henti þeim fjár­hags­lega og við­skipta­lega, á sama tíma og Íslend­ingar sætu við sinn keip. Hann sagði að áhrifin af inn­flutn­ings­banni Rússa á Íslandi væru grát­leg í ljósi þess að Banda­ríkja­menn hefðu gefið und­an­þágu frá vopna­sölu­bann­inu svo hægt væri að kaupa vara­hluti í rúss­neskar her­þyrlur í Afganistan. Þetta segir banda­ríska sendi­ráðið á Íslandi að sé tekið úr sam­hengi.

Robert Barber, sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi, birtir einnig í dag svar við grein Jens Garðars á Facebook-síðu sendi­ráðs­ins. Þar kemur fram að von­ast hafi verið til þess að greinin yrði birt í Morg­un­blað­inu í dag, en svo hafi ekki verið.

„Varðandi það sem kemur fram í grein­inni um að Banda­ríkin hafi sótt um und­an­þágur fyrir rúss­neska vara­hluti í þyrlur langar mig að taka fram að í nóv­em­ber 2015 leyfðum við send­ingu á slíkum vara­hlutum sem afganski her­inn þarfn­að­ist fyrir Mi-17 þyrlur sínar. Þessir vara­hlutir féllu undir refsi­að­gerðir er snúa að tak­mörkun á útbreiðslu ger­eyð­ing­ar­vopna, sem settar voru á sam­kvæmt banda­rískum lögum um slíkar tak­mark­anir að því er varðar Íran, Norður-Kóreu og Sýrland. Þessir vara­hlutir falla ekki undir refsi­að­gerðir vegna Úkra­ínu­deil­unnar. Þessi aðgerð hafði þann tak­mark­aða og ákveðna til­gang að aðstoða örygg­is­sveitir Afgana í bar­áttu sinni gegn hryðju­verkum,“ skrifar Barber meðal ann­ars.

Banda­ríkin, líkt og Ísland og aðrar þjóðir hafi fundið fyrir afleið­ingum refsi­að­gerð­anna og gagn­að­gerðum Rússa. Útflutn­ingur frá Banda­ríkj­unum til Rúss­lands hafi minnkað stór­lega milli áranna 2014 til 2015. Í upp­lýs­ingum frá banda­ríska sendi­ráð­inu, sem Kjarninn hefur undir höndum, kemur fram að milli áranna 2013 og 2014 hafi við­skipti milli ríkj­anna dreg­ist saman um 9,9% og sú þróun hafi haldið áfram árið 2015. Rúss­neskir við­mæl­endur hafi hins vegar reynt að valda klofn­ingi meðal þeirra mörgu ríkja sem hafi gripið til refsi­að­gerða gegn Rúss­landi vegna Úkraínu, meðal ann­ars með því að halda því fram að við­skipti á milli Banda­ríkj­anna og Rúss­lands hafi auk­ist árið 2014.

Mikil umræða og þrýstingur

Mikil umræða hefur verið und­an­farna daga um þátt­töku Íslands í við­skipta­þving­unum gegn Rúss­landi vegna aðgerða Rússa í Úkraínu árið 2014, og inn­flutn­ings­bannið sem Rússar gripu til í kjöl­farið. Gunnar Bragi Sveins­son utan­rík­is­ráð­herra sagði skömmu fyrir jól að Ísland myndi áfram taka þátt í við­skipta­þving­unum með öðrum Evr­ópu­ríkjum og Banda­ríkj­unum. Afstaða Íslands hefði ekki breyst. 

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa verið mjög gagn­rýnin á þessa afstöðu og vilja að þátt­töku í við­skipta­þving­un­unum verði hætt vegna áhrifa inn­flutn­ings­banns­ins á íslenskan sjáv­ar­út­veg. Síðast í gær kom fram í kvöld­fréttum RÚV að sam­kvæmt skýrslu um áhrif banns­ins á þjóð­ar­búið tap­ist sex til tólf millj­arðar árlega vegna þess. Það þýði um eitt pró­sent lands­fram­leiðslu sem sé í hættu.

„Ef þetta snýst um prinsipp, full­veldi þjóða og svo fram­vegis, að þá eru mikil við­skipti í gangi nú þegar hjá þessum stór­þjóðum Evrópu og Banda­ríkj­unum við Rússa. Og maður veltir fyrir sér prinsipp­unum þar,“ sagði Haukur Þór Hauksson, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri SFS, við RÚV í gær.

Á mánu­dag­inn kemur út skýrslan um áhrif við­skipta­þving­ana á íslenska þjóð­ar­búið. Í sam­tali við RÚV í gær­kvöldi sagði Hallveig Ólafs­dóttir, hag­fræð­ingur SFS, að „aðrar banda­lags­þjóðir eru ennþá í miklum við­skiptum við Rússland.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár