Boltinn enn hjá Pfizer – „Við verðum tilbúin í hvaða leik sem er“

Ef samn­ingur næst við Pfizer yrði hægt að bólu­setja stóran hluta þjóð­ar­innar á mjög skömmum tíma. „Vonandi fáum við bólu­efni hraðar og þá getum við drifið þetta af sem fyrst,“ segir sótt­varna­læknir.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

Sótt­varna­læknir segir að vel hafi gengið inn­an­lands og á landa­mær­unum und­an­farið en benti á að sex­tíu manns hefðu greinst með breska afbrigðið hér á landi, þar af fjórtán inn­an­lands, allt fólk sem tengd­ist ein­stak­lingum sem höfðu greinst með það á landa­mær­unum. Þetta afbrigði veirunnar, sem er meira smit­andi en önnur, er ein helsta ástæða þess að var­lega þarf að fara í til­slak­anir aðgerða vegna far­ald­urs­ins.

„Það gengur áfram vel hjá okkur að halda far­aldr­inum niðri inn­an­lands og ef við tökum síð­ustu viku hafa tveir greinst inn­an­lands og annar var í sótt­kví,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. „Þannig að það eru öll merki um að það hafi tek­ist ágæt­lega að ná utan um þriðju bylgj­una. En við getum sagt að það sé ekki búið að upp­ræta veiruna í sam­fé­lag­inu og þess vegna þurfum við að fara var­lega áfram, fara hægt í til­slak­anir.“

[adspot]

Hann sagð­ist nú vera með til­lögur að „vægum til­slök­unum“ í smíðum sem hann muni skila ráð­herra á næstu dögum. Hann vildi ekki fara nánar út í hverjar þessar til­lögur hans væru. Ítrekaði hann að far­ald­ur­inn væri enn í mik­illi upp­sveiflu í nágranna­löndum, m.a. vegna þess að þar var slakað veru­lega á aðgerðum um jól og ára­mót. „Við eigum að passa okkur að lenda ekki í sama fari og nágrannar okkar.“

Áhyggjur beinast að landamærum

Þórólfur sagði að helstu áhyggj­urnar núna snéru að landa­mær­unum. Þar er hætta á að smit kom­ist inn í landið – sér­stak­lega er hættan mikil vegna hins breska afbrigðis. Fyr­ir­komu­lagið á landa­mær­unum, tvö­föld sýna­taka með sótt­kví á milli, hafi fyrir löngu sannað gildi sitt. Engu að síður er alltaf hætta á því að ein­hver smit sleppi inn og nefndi Þórólfur sem dæmi að á því hefði borið að fólk sem hingað kæmi gæfi rangar upp­lýs­ingar um aðsetur og síma­númer svo erfitt væri að ná í það ef það grein­ist jákvætt í fyrri sýna­töku. „Það er und­ar­legt að segja frá því að Ísland er með einna minnst íþyngj­andi tak­mark­anir í Evrópu og því mögu­legt að fólk vilji koma hingað í auknum mæli og valdi þannig álagi á landa­mærin.“

Skoða þurfi því hvernig hægt er að bregð­ast við þessu og tryggja sem best að veiran kom­ist ekki inn um landa­mærin. Þórólfur sagði fyrsta skrefið að tryggja laga­grund­völl til að beita aðgerðum og skor­aði hann á Alþingi að sam­þykkja breyt­ingar á sótt­varna­lögum sem fyrst. Til dæmis yrði þá hægt að skylda fólk sem hingað kemur, án stað­fest­ingar á nei­kvæðu COVID-prófi, til að dvelja í far­sótt­ar­húsi á meðan sótt­kví stendur.

14 þúsund skammtar frá AstraZeneca á leiðinni

Samkvæmt nýrri dreif­ing­ar­á­ætlun lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins AstraZeneca munum við fá 14 þús­und skammta af bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins í febr­úar í viku­legum send­ingum. Það efni verður aðeins gefið fólki yngra en 65 ára. Þrír mán­uðir verða látnir líða á milli skammt­anna tveggja sem þarf að gefa því þannig næst hámarks­virkni efn­is­ins, sagði Þórólfur.

„Við megum búast við að fá að minnsta kosti 74 þús­und skammta fyrir mán­aða­mót mars og apríl sem dugar til að bólu­setja 34 þús­und manns,“ sagði sótt­varna­læknir. „Ég hef trú á því að við náum mik­illi útbreiðslu bólu­setn­ingar á næstu vikum og mán­uðum og að hægt verði að aflétta mörgum þeim aðgerðum sem verið hafa í gildi inn­an­lands og á landa­mær­unum.“

Það muni þó taka mið af þróun far­ald­urs­ins og því magni bólu­efna sem hingað kemur á næst­unni.

Mikið hefur verið rætt síð­ustu daga um samn­ing við Pfizer sem gæti orðið til þess að mikið magn bólu­efnis bær­ist hingað á skömmum tíma. „Það er ekki kom­inn samn­ingur og bolt­inn er ennþá hjá Pfizer,“ sagði Þórólfur á fund­inum. Hann sagð­ist eiga von á því að fá frek­ari skila­boð frá lyfja­fyr­ir­tæk­inu á næstu dögum.

Ef samn­ingur næst við Pfizer yrði hægt að bólu­setja stóran hluta þjóð­ar­innar á mjög skömmum tíma. Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins gæti bólu­sett tugi þús­unda á dag sam­kvæmt þeim sviðs­myndum sem búið er að teikna upp. „Vonandi fáum við bólu­efni hraðar og þá getum við drifið þetta af sem fyrst,“ sagði Þórólfur. „Ég held að við verðum til­búin i hvaða leik sem er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár