Interpol lýsir eftir Janúkóvíts

Interpol alþjóða­lög­reglan lýsir nú eftir Viktor Janúkó­víts, fyrrum for­seta Úkraínu, sem hrak­inn var frá völdum í mót­mæl­unum fyrir rétt tæpu ári síðan. Janúkó­víts flúði til Rúss­lands og heldur sig þar í náð rúss­neskra stjórn­valda.

Er þetta stefnu­breyt­ing að hálfu alþjóða­lög­regl­unnar því í des­em­ber sagði Vítalíj Jarema, aðal­sak­sókn­ari í Úkraínu, að Interpol hafi neitað því að gefa út alþjóð­lega hand­töku­skipun á Janúkó­víts og sex aðra fyrrum hátt setta menn í rík­is­stjórn hans, vegna þess að málið væri drifið af póli­tískum ástæðum.

Í hand­töku­skipun Interpol er Janúkó­víts ákærður fyrir að hafa notað almannafé til einka­nota, auðg­un­ar­brot og spill­ingu.

Ólíklegt þykir að Janúkó­víts verði hand­tek­inn í Rúss­landi fyrir nokkrar sakir en heima í Úkraínu leggur almenn­ingur mikla áherslu á að for­set­inn fyrr­ver­andi verði sóttur til saka fyrir morð á mót­mæl­endum á Frelsis­torg­inu í Kænu­garði síð­asta vetur.

Dómur yfir fyrr­ver­andi ráða­mönnum í Úkraínu er jafn­framt tal­inn mik­ill próf­steinn fyrir nýja rík­is­stjórn lands­ins og for­set­ann Petró Porosjenkó.

Ráðgjafi í inn­an­rík­is­ráðu­neyti Úkraínu lét hafa eftir sér þegar Interpol vís­aði mál­inu frá í síð­asta mán­uði að fyrr­ver­andi ráða­menn væru „stjórn­valds­glæpa­menn, þá helst morð­ingjar, og gagn­vart okkur er alls ekki aug­ljóst hvers vegna þetta fólk er ekki á alþjóð­legum listum yfir eft­ir­lýsta glæpa­menn“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár