Stjórnarandstaðan sameinuð í gagnrýni á sameiningu

Full­trúar stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á þingi gagn­rýna harð­lega vinnu­brögð stjórn­valda í mögu­legri sam­ein­ingu Tækni­skól­ans og FÁ. Þau segja engin fag­leg eða rekstr­ar­leg rök að baki.

Andrés Ingi Jónsson er einn þeirra stjórnarandstöðuþingmanna sem stendur að gagnrýninni.
Andrés Ingi Jónsson er einn þeirra stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna sem stendur að gagn­rýn­inni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Full­trúar stjórn­ar­and­stöð­unnar í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd eru sam­ein­aðir í gagn­rýni sinni á vinnu­brögð stjórn­valda við mögu­lega sam­ein­ingu Fjöl­braut­ar­skól­ans við Ármúla og Tækni­skól­ans. Þau segja Kristján Þór Júl­í­us­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, stefna mál­inu í ófrið með því að halda því leyndu.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá þeim Andrési Inga Jónssyni, þing­manni VG, Eygló Harð­ar­dóttur, þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, Oddnýju Harð­ar­dóttur, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar og Birni Leví Gunn­ars­syni og Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur, þing­mönnum Pírata. Ráð­herr­ann kom fyrir nefnd­ina í morgun, líkt og Kjarninn greindi frá.

„Fram kom á fund­inum að athugun á yfir­töku Tækni­skól­ans á starf­semi FÁ fór af stað strax í febr­úar, þ.e. áður en rík­is­stjórnin lagði fram fjár­mála­á­ætlun sína, þar sem hvergi er minnst á þessar fyr­ir­ætl­anir. Þá þagði ráð­herr­ann um áformin þegar staða starfs- og verk­náms var rædd í þing­sal 24. apríl sl.,“ segir meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu þing­mann­anna.

Á fund­inum í morgun hafi Kristján Þór einnig stað­fest að hann hafi kynnt stjórn­ar­þing­mönnum málið áður en RÚV sagði frá því, en stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn vissu ekki af mál­inu fyrr en í fjöl­miðlum. „Erfitt reynd­ist að fá skýr svör um ýmis álita­efni, eins og t.a.m. hvaða laga­stoð ráð­herr­ann telji sig hafa í mál­inu.“

Þá gagn­rýnir minni­hlut­inn að aðeins yfir­taka Tækni­skól­ans á FÁ hafi orðið fyrir val­inu í stað þess að ráð­ast í heild­ar­stefnu­mörkum um fram­halds­skóla­stigið. „Það liggur fyrir að hér er um að ræða póli­tíska ákvörðun um að einka­væða hluta fram­halds­skóla­kerf­is­ins, því enn hafa ekki komið fram nein fag­leg eða rekstr­ar­leg rök að baki val­inu á þessum til­teknu skólum. Í stað þess að ráð­herr­ann fylgi yfir­lýstum eign áherslum um efl­ingu verk- og starfs­náms virð­ist ætl­unin að gef­ast strax upp fyrir verk­efn­inu með því að veikja enn frekar opin­bert verk- og starfs­nám með yfir­töku Tækni­skól­ans á FÁ.“

Þá segja þing­menn­irnir að mál­inu sé stefnt í ófrið með því að halda því leyndu svona lengi, og það sé mik­il­vægt að ákvað­anir um meiri­háttar stefnu­breyt­ingar í mennta­kerf­inu séu teknar fyrir opnum tjöldum, með aðkomu kenn­ara og nem­enda, og umræðu á þing­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár