Flugleiðahótel vilja geta sótt um nífaldan veirustyrk fyrir veitingamenn

Ein stærsta hót­el­keðja lands­ins biðlar nú til Alþingis um að fá að sækja um styrki, sem hugs­aðir eru fyrir smærri fyr­ir­tæki í veit­inga­brans­anum, vegna hvers og eins þeirra níu veit­inga­staða sem hót­el­keðjan rekur.

Icelandair Hótel reka níu hótel um landið og eru með tæplega 200 starfsmenn í veitingaþjónustu sinni.
Icelandair Hótel reka níu hótel um landið og eru með tæp­lega 200 starfs­menn í veit­inga­þjón­ustu sinni. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hót­el­keðjan Flug­leiða­hótel (Icelandair Hótel), sem rekur níu heils­árs­hótel með jafn mörgum veit­inga­stöðum, hefur lagt til að Alþingi geri þá breyt­ingu á frum­varpi um styrki til rekstr­ar­að­ila veit­inga­staða sem hafa sætt tak­mörk­unum á opn­un­ar­tíma að rekstr­ar­að­ilar sem reki marga veit­inga­staði á sömu kenni­töl­unni geti sótt um þessa nýj­ustu veiru­styrki rík­is­ins fyrir hvern og einn veit­inga­stað sem er með útgefið rekstr­ar­leyfi.

Þetta kemur fram í umsögn hót­el­keðj­unnar um frum­varpið, sem send var inn til Alþingis fyrir helgi. Í umsögn­inni segir einnig að frum­varpið, sem lagt var fram af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þann 18. jan­úar síð­ast­lið­inn, taki „ekki til­lit til þeirra aðila sem eru með fleiri en einn veit­inga­stað í rekstri undir sömu kenni­tölu“ og að stjórn­endur Flug­leiða­hót­ela telji það „skjóta skökku við að ekki sé hægt að sækja um styrk fyrir hvert útgefið rekstr­ar­leyfi í stað styrks á hverja kenni­tölu.“

Frum­varpið felur í sér að rekstr­ar­að­ilar í veit­inga­geir­anum geti fengið styrki vegna tekju­falls á síð­ustu mán­uðum síð­asta árs og þeim fyrstu á þessu ári, allt að þremur millj­ónum króna á mán­uði á hvern rekstr­ar­að­ila.

Stuðningsúrræði hugsað til að halda smáum rekstraraðilum á floti

Icelandair Hótel eru ekki fyrsti aðil­inn til að vekja máls á því að þetta veiru­úr­ræði stjórn­valda gagn­ist minni rekstr­ar­að­ilum betur en þeim sem stærri eru. Við­skipta­ráð Íslands benti til dæmis á það í umsögn sinni að stærri rekstr­ar­að­ilar gætu ekki fengið rekstr­ar­styrk í sam­bæri­legu hlut­falli við tap vegna tak­mark­ana á starf­semi þeirra og þeir minni, eins og frum­varpið væri skrifað.

Samkvæmt minn­is­blaði frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu sem sent var til efna­hags- og við­skipta­nefndar þann 27. jan­úar er þó ljóst að það er með ráðum gert, en ráðu­neytið bendir á að fjár­hæð­ar­mörkum í frum­varp­inu sé einmitt ætlað að beina stuðn­ingi rík­is­ins frekar til smærri en stærri rekstr­ar­að­ila.

Ráðu­neytið benti á að þrír af hverjum fjórum launa­greið­endum á Íslandi væru með fjóra launa­menn eða færri og hlut­fallið væri hærra ef miðað væri við stöðu­gildi, því um fimmt­ungur launa­manna væri ekki í fullu starfi. Það hlut­fall væri svo enn hærra í veit­inga­rekstri – og vís­aði ráðu­neytið til nýlegrar skýrslu KPMG þar sem fram kom að 79 pró­sent starfs­manna veit­inga­húsa væru í hluta­starfi.

Stór fyrirtæki hafi kost á bankalánum öfugt við þau minni

„Ráðu­neytið telur því að með því að miða hámark styrks við fimm stöðu­gildi nýt­ist úrræðið vel meiri­hluta fyr­ir­tækja í veit­inga­rekstri,“ segir í minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins.

Þar segir einnig að meiri þörf sé á því að styðja við minni rekstr­ar­að­ila en þá stærri, þar sem þeir hafi síður en stærri rekstr­ar­að­ilar aðgang að annarri fyr­ir­greiðslu til að mæta lausa­fjár­vanda, eins og til dæmis banka­lánum.

Frum­varpið um styrki til rekstr­ar­að­ila veit­inga­staða sem hafa sætt tak­mörk­unum á opn­un­ar­tíma bíður þess að verða tekið til 3. umræðu á þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár