Varaformaður Vinstri grænna vill í vinstri stjórn

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra telur að Vinstri græn muni ná meiri árangri í þeim málum sem flokk­ur­inn leggur áherslu á ef hann sitji í vinstri stjórn.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, varaformaður Vinstri grænna.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, vara­for­maður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og vara­for­maður Vinstri grænna, segir að „auð­vitað vilja vinstri menn alltaf vera í vinstri stjórn [...] Þá náum við meiri árangri í þeim málum sem við leggjum á borðið og leggjum áherslu á.“

Hann segir enn­fremur að stofnun hálend­is­þjóð­garðs, eitt helsta mál Vinstri grænna á kjör­tíma­bil­inu, hafi mætt and­stöðu innan sam­star­flokka Vinstri grænna í rík­is­stjórn, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks.

Þetta er meðal þess sem fram kom í við­tali við Guðmund á Frétta­vakt­inni á Hring­braut í gær­kvöldi.

Stofnun Mið­há­lend­is­þjóð­garðs var á meðal þeirra mála sem röt­uðu inn í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur. Þar stendur orð­rétt: „stofn­aður verður þjóð­garður á mið­há­lend­inu í sam­ráði þverpóli­tískrar þing­manna­nefndar, umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins, sveit­ar­fé­laga, nátt­úru­verndar- og úti­vist­ar­sam­taka og ann­arra hags­muna­að­ila. Skoðaðir verða mögu­leikar á þjóð­görðum á öðrum svæðum.“

[adspot]Þegar málið kom fram í fyrra­haust mætti það strax mik­illi and­stöðu á meðal þing­manna sam­starfs­flokka Vinstri grænna og var á end­anum ekki afgreitt fyrir þing­lok.

Líkurnar á vinstri stjórn minni en þeirri sem nú situr

Miðað við núver­andi stöðu flokka í könn­unum eru lík­urnar á því að rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks geti setið áfram eftir kom­andi kosn­ingar 61 pró­sent. Þetta má lesa út úr nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar stærð­fræð­ings.

[links]Líkurnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Þá er að óbreyttu nán­ast úti­lokað að mynda þriggja flokka stjórn án aðkomu Sjálf­stæð­is­flokks. Sú sem er lík­leg­ust er stjórn Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar og Pírata, en lík­urnar á henni eru þrjú pró­sent.

Lík­leg­ustu fjög­urra flokka stjórn­irnar sem hægt yrði að mynda án aðkomu Sjálf­stæð­is­flokks eru ann­ars vegar rík­is­stjórn Vinstri grænna, Pírata, Sam­fylk­ingar og Fram­sókn­ar­flokks­ins, en 54 pró­sent líkur eru á því að slík stjórn, sem skil­greina mætti sem vinstri stjórn, geti náð meiri­hluta á þingi. Hins vegar eru 35 pró­sent líkur á að hægt verði að mynda rík­is­stjórn sem byggir á Reykja­vík­ur­mód­el­inu svo­kall­aða, þar sem Sam­fylk­ing, Vinstri græn, Píratar og Viðreisn starfa saman í meiri­hluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár