Mynd: Bára Huld Beck

Rúmlega 60 prósent líkur á því að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur haldi meirihluta

Kjarninn birtir líkur flokka á því að koma manni inn á þing og spá um hvaða rík­is­stjórnir eru lík­leg­astar. Líkurnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar.

Líkurnar á því að rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks sitji áfram eftir kom­andi kosn­ingar eru 61 pró­sent, sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar stærð­fræð­ings. Þá eru 40 pró­sent líkur á því að Flokkur fólks­ins komi ekki manni inn á þing, 29 pró­sent líkur á að Sós­í­alista­flokkur Íslands nái ekki manni inn og 14 pró­sent líkur á að Mið­flokk­ur­inn þurfi að bíta í það súra epli.

Líkurnar eru fengnar með því að fram­kvæma 100 þús­und sýnd­ar­kosn­ingar. Í hverri sýnd­ar­kosn­ingu er vegið með­al­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­inga­spáin nær yfir hverju sinni lík­leg­asta nið­ur­staðan en sýnd­ar­nið­ur­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­al­tal og hversu mikið byggir á sögu­legu frá­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­inga.

Líkur á sam­steypu­stjórnum mis­mun­andi flokka
Fjöldi þing­sætaDVBDBMDVVPSBVPSCDBMF
>=410.010.000.000.000.000.00
>=420.010.000.000.000.000.00
>=410.020.000.000.000.000.00
>=400.030.000.000.010.000.00
>=390.060.000.000.010.000.00
>=380.100.010.000.020.010.01
>=370.150.010.000.040.010.02
>=360.220.020.010.070.030.03
>=350.300.040.020.110.050.05
>=340.400.070.030.170.080.09
>=330.510.120.060.250.120.13
>=320.610.180.100.330.180.19
>=310.710.250.160.430.260.27
>=300.800.350.230.540.350.36
>=290.800.450.330.640.450.46
>=280.860.560.440.730.550.57
>=270.910.660.550.810.650.67
>=260.950.750.660.870.740.75
>=250.970.830.760.920.820.83
>=240.990.890.850.950.880.89
>=230.990.930.910.970.920.93
>=221.000.960.950.980.950.96
>=211.000.980.970.990.970.98
>=201.000.990.991.000.980.99

Til að ná minnsta mögu­lega meiri­hluta á Alþingi þarf 32 þing­menn.

Til að fá þá nið­ur­stöðu sem er hér til umfjöll­unar er nýjasta kosn­inga­spáin notuð til að meta fylgi flokka eftir kjör­dæmum út frá fylgi þeirra í síð­ustu kosn­ingum.

Kjarninn birti nið­ur­stöðu fyrstu kosn­ing­ar­spár sinnar fyrir kom­andi kosn­ingar fyrir nýliðna helgi. Hægt er að sjá nið­ur­stöðu hennar hér að neðan.

Þær kann­anir sem liggja til grund­vallar nýj­ustu kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. júlí (vægi 38,4 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Prósent í sam­starfi við Frétta­blaðið 15-23. júlí (vægi 23,9 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun Maskínu í sam­starfi við Frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis 13 – 26. júlí (20,3 pró­sent)
  • Skoð­ana­könnun MMR í sam­starfi við Morg­un­blaðið 24. júní - 6. júlí (vægi 17,4 pró­sent)

Sýnd­ar­kosn­ing­arn­arnar sýna að litlar sem engar líkur eru á því að hægt verði að mynda tveggja flokka stjórn miðað við þessa nið­ur­stöðu. Sú sem er lík­leg­ust er stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna, en líkur á henni eru þrjú pró­sent.

Þá er að óbreyttu nán­ast úti­lokað að mynda þriggja flokka stjórn án aðkomu Sjálf­stæð­is­flokks. Sú sem er lík­leg­ust er stjórn Vinstri grænna, Sam­fylk­ingar og Pírata, en lík­urnar á henni eru þrjú pró­sent.

Lík­leg­ustu fjög­urra flokka stjórn­irnar sem hægt yrði að mynda án aðkomu Sjálf­stæð­is­flokks eru ann­ars vegar rík­is­stjórn Vinstri grænna, Pírata, Sam­fylk­ingar og Fram­sókn­ar­flokks­ins, en 54 pró­sent líkur eru á því að slík stjórn geti náð meiri­hluta á þingi. Hins vegar eru 35 pró­sent líkur á að hægt verði að mynda rík­is­stjórn sem byggir á Reykja­vík­ur­mód­el­inu svo­kall­aða, þar sem Sam­fylk­ing, Vinstri græn, Píratar og Viðreisn starfa saman í meiri­hluta.

Lík­leg­asta stjórnin sem stendur er sú sem nú situr, en líkt og áður sagði eru 61 pró­sent líkur á að þeir flokkar sem standa að henni geti end­ur­nýjað sam­starf sitt miðað við nið­ur­stöðu nýj­ustu kosn­ing­ar­spár­innar.

Sjálfstæðisflokkur stærstur og allt að níu flokkar ná inn

Samkvæmt kosn­inga­spánni þá er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur allra flokka með 23,6 pró­sent fylgi, sem er undir kjör­fylgi hans í síð­ustu kosn­ingum. Fylgi flokks­ins hefur verið nokkuð stöðugt frá því í vor, en hæst fór það í 25,8 pró­sent í apríl og lægst í 23,4 pró­sent í byrjun júní.

Líkur á fjölda þing­sæta hjá hverjum flokki fyrir sig
Fjöldi þing­sætaDVPSBCMJF
>=220.000.000.000.000.000.000.000.000.00
>=210.040.000.000.000.000.000.000.000.00
>=200.070.000.000.000.000.000.000.000.00
>=190.090.000.000.000.000.000.000.000.00
>=180.120.000.000.000.000.000.000.000.00
>=170.140.000.000.000.000.000.000.000.00
>=160.140.000.000.000.000.000.000.000.00
>=150.120.000.000.000.000.000.000.000.00
>=140.100.010.010.010.010.000.000.000.00
>=130.070.030.020.020.010.000.000.000.00
>=120.040.050.040.040.030.000.000.000.00
>=110.020.090.080.070.060.010.000.000.00
>=100.010.130.120.110.100.020.000.000.00
>=90.000.160.160.140.140.060.010.000.00
>=80.000.170.170.170.160.110.030.010.01
>=70.000.140.150.160.160.160.070.040.02
>=60.000.100.110.130.140.200.120.080.05
>=50.000.060.070.080.100.190.180.140.10
>=40.000.030.040.050.060.130.200.190.16
>=30.000.010.010.020.020.050.120.130.12
>=20.000.000.000.000.010.010.030.020.02
>=10.000.000.010.010.010.030.100.110.13
>=00.000.000.000.010.000.030.140.290.40

Vinstri græn yrðu næst stærsti flokkur lands­ins ef kosið yrði í dag, en 13,1 pró­sent kjós­enda segj­ast styðja flokk­inn. Það er umtals­vert undir því sem Vinstri græn fengu í kosn­ing­unum 2017 þegar 16,9 pró­sent kjós­enda kusu flokk­inn. Eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist yfir kjör­fylgi nú um stundir er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sem nýtur stuðn­ings 11,3 pró­sent kjós­enda. Hann fékk 10,7 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum.

Sá stjórn­ar­and­stöðu­flokkur sem flestir hyggj­ast kjósa sam­kvæmt kosn­inga­spánni eru Píratar sem mæl­ast með 12,6 pró­sent fylgi og bæta við sig 3,4 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum að óbreyttu. Sam­fylk­ingin stendur nán­ast í stað með 12,4 pró­sent fylgi, sem er nán­ast alveg það sama og flokk­ur­inn fékk 2017. Viðreisn mælist með 9,8 pró­sent fylgi sem er meira en flokk­ur­inn fékk 2017 en minna en hann fékk 2016.

Mið­flokk­ur­inn mælist með 6,4 pró­sent stuðn­ing og Sós­í­alista­flokkur Íslands, sem hefur nú kynnt þrjá af sex fram­boðs­listum sínum og er að bjóða fram til þings í fyrsta sinn, mælist með 5,7 pró­sent fylgi. Flokkur fólks­ins rekur lest­ina hjá þeim níu flokkum sem mæl­ast með eitt­hvað hand­bært fylgi, en 4,5 pró­sent lands­manna segj­ast ætla að kjósa þann flokk. Miðað við þessa nið­ur­stöðu er ljóst að flokk­arnir á þingi yrðu að minnsta kosti átta og mögu­lega níu ef kosið yrði nú.

Hvað er kosn­inga­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­ar­legt magn af upp­lýs­ingum. Þessar upp­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræði­legar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­lifir stjórn­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­ast svo við að túlka nið­ur­stöð­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­mál­anna.

Allar þessar kann­anir og allar mögu­legar túlk­anir á nið­ur­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferðum. Hvor könn­unin er nákvæm­ari? Hverri skal treysta betur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­andi hefur ekki for­sendur til að meta áreið­an­leika hverrar könn­unar.

Þar kemur kosn­inga­spáin til sög­unnar.

Kosn­­inga­­spálíkan Bald­­urs Héð­ins­­sonar miðar að því að setja upp­­lýs­ing­­arnar sem skoð­ana­kann­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar hér á Kjarn­anum reglu­lega í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár