Ríkisstjórnin tók lengsta sumarfrí í 12 ár

Hlé milli rík­is­stjórn­ar­funda yfir sum­ar­tím­ann hefur ekki verið lengra í að minnsta kosti tólf ár. Mögulegt er að sum­ar­fríið sé það lengsta í Íslands­sög­unni.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar á ríkisstjórnarfundi.
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar á rík­is­stjórn­ar­fundi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

41 dagur leið milli rík­is­stjórn­ar­funda í sumar, en það er lengsta sum­ar­frí sem rík­is­stjórnin hefur tekið í tólf ár. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Í frétt­inni er lengd sum­ar­fría rík­is­stjórn­ar­innar birt tíu ár aftur í tím­ann, en þau hafa lengst veru­lega frá árinu 2009, þegar fundað var viku­lega yfir sum­arið. Þar til nú átti Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar met síð­ustu ára með 37 daga sum­ar­frí árið 2015, en Árni Páll Árnason, þáver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði fríið hafa verið það lengsta í Íslands­sög­unni. 

[adspot]

Erfitt er að sann­reyna orð Árna, þar sem raf­ræn skjala­skrán­ing nær ein­ungis til árs­ins 2006. fund­ar­gerðir á árunum 2000-2006 voru rit­aðar á tölvu en ein­ungis varð­veittar á pappír. Ára­tug­ina á undan voru þær svo hand­skrif­aðar. Frétta­blaðið stað­festir þó að ekki sé til dæmi um lengra frí rík­is­stjórn­ar­innar frá árinu 2006. 

Á mynd hér að ofan sjást fund­ar­hlé rík­is­stjórn­ar­innar yfir sum­ar­tím­ann. Árin 2009 og 2010 var fundað með u.þ.b. viku milli­bili, en sum­ar­fríið tók að lengj­ast veru­lega eftir árið 2013.

Langt sum­ar­frí rík­is­stjórn­ar­innar kemur eftir óvenju stutt þing, en það var sett þann 6. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Starfs­tíð rík­is­stjórn­ar­innar hefur verið enn styttri, en stjórnin var ekki mynduð fyrr en 11. jan­úar. Frá þing­setn­ingu til þing­frest­unnar fengu þing­menn einnig 53 daga í jóla-og páska­frí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár