Mynd: Birgir Þór Harðarson

Skapandi eyðilegging í hægra hólfi stjórnmála

Frjáls­lyndir miðju­flokkar eru við það að detta út af þingi og þjóð­ern­is­sinn­aðir popúlista­flokkar sem sækja fylgi til hægri virð­ast ætla að taka þeirra stað. Umrótið sem hefur verið til vinstri og á miðju und­an­farið er nú að eiga sér stað í hægra hólf­inu.

Kosn­inga­bar­áttan hefur hingað til ein­kennst af per­són­u­á­tökum og nýjum öngum á gömlum hneyksl­is­málum þeirra stjórn­mála­manna sem hafa stýrt þjóð­ar­skút­unni þorra síð­ustu ára. Algjör breyt­ing virð­ist ætla að verða á sam­setn­ingu Alþingis og umboði stjórn­mála­flokka miðað við skoð­ana­kann­anir. Síðustu ár hefur umrótið fyrst og síð­ast verið í vinstra hólfi stjórn­mál­anna eða á því sem hægt er að kalla hina frjáls­lyndu miðju. Þar hafa ný fram­boð, stofnuð eftir árið 2012, verið að taka af hefð­bundnu flokk­unum sem höfðu fram á und­an­farin ár haft nokkuð öruggt til­kall til atkvæða flestra kjós­enda í sínu hólfi. Píratar tóku hins vegar frá Vinstri grænum og Sam­fylk­ing­unni og bæði Björt fram­tíð og Viðreisn tóku umtals­vert frá Sam­fylk­ingu, sem var við það að hverfa á þingi í kosn­ing­unum fyrir ári.

Nú, innan við tólf mán­uðum síðar, er staðan gjör­breytt. Viðreisn og Björt fram­tíð munu ekki ná inn þing­mönnum sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum. Píratar, sem um tíma mæld­ust langstærsti flokkur lands­ins, mæl­ast nú með um og undir tíu pró­sent fylgi. Vinstri­fylgið er að skila sér til Vinstri grænna sem eru auk þess að ná nær öllum öðrum kjós­endum sem geta hugsað sér að kjósa frá miðju til vinstri.

Ástæða þess virð­ist gríð­ar­legt per­sónu­fylgi Katrínar Jak­obs­dóttur. Hún virð­ist hala að atkvæði út á það að fólk treysti henni og hafi engar áhyggjur af því að hún muni rata í fjár­mála­leg hneyksl­is­mál, standa fyrir leynd­ar­hyggju eða vald­níðslu sem það hefur upp­lifað að ýmsir stjórn­mála­menn með valdatauma hafi orðið upp­vísir að á und­an­förnum árum. Sam­fylk­ingin stefnir síðan að því að þre­falda sig að stærð. Og er á góðri leið þangað sam­kvæmt könn­unum. Slíkur árangur yrði að telj­ast mjög góður í ljósi aðstæðna þótt flokk­ur­inn sé enn óra­fjarri því að vera að þeirri stærð sem hann einu sinni var, og var stofn­aður til að verða.

Umrótið á hægri vængnum

Umrótið nú er í hægra hólfi stjórn­mál­anna. Þar eru kerf­is­varn­ar­flokk­arnir tveir, Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, sem hafa oft­ast nær stýrt Íslandi og mótað þau kerfi sem við rekum sam­fé­lagið okkar á, báðir í feyki­lega miklum vand­ræðum. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son er búinn að kljúfa Fram­sókn­ar­flokk­inn og nýi popúl­íski flokk­ur­inn hans, sem er fyrst og síð­ast stofn­aður í kringum per­sónu Sig­mundar Davíðs og hefur það mark­mið að koma honum aftur til valda og áhrifa, er ítrekað að mæl­ast með meira fylgi en Framsókn í könn­unum.

Flokkur fólks­ins, annar popúl­ískur flokkur sem leggur höf­uð­á­herslu á risa­stór og kostn­að­ar­söm kosn­inga­lof­orð sem eru ekki að neinu leyti útfærð, og hefur legið undir ámæli fyrir að boða útlend­inga­andúð, hefur líka verið að rífa fylgi af þessum gömlu valda­stoðum Íslands. Staðan í dag virð­ist vera sú að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stefna í verstu útreið sína í kosn­ingum í sög­unni. Sam­an­lagt fylgi þeirra sam­kvæmt nýj­ustu Kosn­ingspá Kjarnans er 28,6 pró­sent. Í kosn­ing­unum fyrir ári fengu þeir 40,5 pró­sent atkvæða. Kannanir sýna að flokk­arnir tveir muni tapa tíu til tólf þing­mönnum. Og að áður­nefndir popúl­ískir flokkar, sem líka hafa íhalds­samar þjóð­ern­isl-hneigðir, séu að fara að taka þá þing­menn.

Verði það nið­ur­staða kosn­inga mun það að öllum lík­indum þýða að engin flokk­anna fjög­urra muni rata í rík­is­stjórn. Slík verði mynduð frá vinstri að miðju undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur. Það sem Andrés Jónsson almanna­teng­ill kall­aði skap­andi eyði­legg­ingu í hægra hólfi stjórn­mál­anna í nýjasta sjón­varps­þætti Kjarnans verður lyk­il­breyta í að leiða til þeirrar nið­ur­stöðu. Hægt er að horfa á þátt­inn í heild sinn hér að neðan.

Það mun verða reynt að kaupa atkvæði

Það á þó margt eftir að breyt­ast á næstu vikum og lof­orða­flaumur stjórn­mála­flokk­anna mun verða umfangs­meiri en lík­ast til nokkru sinni áður. Við því má búast að Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar muni beita fyrir sig sam­bæri­legum leiðum og þegar for­mað­ur­inn vann stór­sigur í kosn­ing­unum 2013 með því að lofa að gefa hluta Íslend­inga sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán pen­inga. Sig­mundur Davíð hefur þegar sýnt aðeins á spilin. Í við­tölum sem hann veitti sama dag og hann sagði sig úr Fram­sókn­ar­flokknum sagði Sig­mundur Davíð að það þyrfti að end­ur­skipu­leggja fjár­mála­kerfið á Íslandi, gera upp við eldri borg­ara og aðra sem eigi „inni hjá okkur“ og að ráð­ast þyrfti í stór­sókn í byggða­málum. Í leið­togaum­ræðum, sem fram fóru á RÚV í gær, boð­aði hann að kosn­inga­á­herslur flokks hans verði kynntar á föstu­dag.

Við því má búast að í end­ur­skipu­lagn­ingu banka­kerf­is­ins felist meðal ann­ars að ríkið taki yfir Arion banka. Þor­steinn Sæmunds­son, sem fylgdi Sigmundi Davíð yfir í hinn nýja flokk sem stofn­aður var um per­sónu for­sæt­is­ráð­herr­ans fyrr­ver­andi, hefur raunar þegar opin­berað þessa stefnu flokks­ins á fundum sem hann hefur talað á. Sig­mundur Davíð stað­festi það sjálfur í ræðu á stofn­fundi Mið­flokks­ins í gær, þar sem hann sagði að ríkið ætti að nýta sér for­kaups­rétt sinn á Arion banka.

Næsta skref í end­ur­skipu­lagn­ing­unni verður síðan að „tappa af“ eigin fé bank­anna þriggja, sem er sam­an­lagt nú tæp­lega 640 millj­arðar króna. Það fé myndi nýt­ast m.a. í að greiða þeim sem Sig­mundur Davíð telur að „eigi inni hjá okkur“ í skiptum fyrir að þeir hinir sömu kjósi hann aftur til valda. Hvaða aðferð­ar­fræði á að beita við þetta mun koma í ljós í lok viku.

Þá vakti athygli að Samtök iðn­að­ar­ins, sem nú er stýrt af Sigurði Hann­essyni, einum nán­asta sam­starfs­manni Sig­mundar Davíðs á und­an­förnum árum, birti í síð­ustu viku ítar­lega og grein­ar­góða skýrslu um inn­viða­fjár­fest­ingar. Þar kom fram að upp­söfnuð við­halds­þörf í innviðum væri 372 millj­arðar króna. Við­mæl­endur Kjarnans úr stjórn­mála­manna­stétt eru margir vissir á því að þetta plagg verði ein af und­ir­stöð­unum í mál­flutn­ingi Sig­mundar Davíðs á næstu vikum.

Sjálfstæðisflokkurinn í endurtekinni kosningabaráttu

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á líka eftir að reyna að ná vopnum sínum á loka­spretti kosn­inga­bar­átt­unnar. Hingað til hefur það gengið erf­ið­lega. Flokk­ur­inn hefur sigið í könn­unum frekar en hitt og aug­ljóst að sér­fram­boð Sig­mundar Davíðs og Flokkur fólks­ins eru að taka af honum fylgi.

Eins og staðan er í dag eru langmestar líkur á því að Katrín Jakobsdóttir verði næsti forsætisráðherra þjóðarinnar. Það getur þó margt breyst á þeim vikum sem eru til stefnu.
Eins og staðan er í dag eru lang­mestar líkur á því að Katrín Jak­obs­dóttir verði næsti for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar. Það getur þó margt breyst á þeim vikum sem eru til stefnu.

Kosn­inga­bar­átta Sjálf­stæð­is­flokks­ins hingað til hefur ein­kennst af því að vera end­ur­tekn­ing á því sem flokk­ur­inn gerði í fyrra, og virk­aði þá feiki­lega vel. Þ.e. að leggja áherslu á stöð­ug­leika, vera með fók­us­inn á Bjarna Bene­dikts­son að baka kökur og keyra á hræðslu­á­róðri gegn vinstri stjórn. Í fyrra var líka lyk­il­breyta í kosn­inga­bar­áttu Sjálf­stæð­is­manna, sér­stak­lega því sem mætti kalla hinni óop­in­beru bar­áttu fylg­is­manna flokks­ins, sem fer fram í vari nafn­leysis og er mun rætn­ari en opin­ber kosn­inga­á­róður flokks­ins, að ráð­ast gegn Pírötum. Þá voru þeir enda að mæl­ast sem vænt­an­legt risa­afl og um tíma leit út fyrir að ómögu­legt yrði að mynda rík­is­stjórn án þeirra. Staðan í dag er hins vegar gjör­breytt og Píratar virð­ast ætla að verða með í kringum tíu pró­senta fylgi. Og ekki sú ógn sem þeir voru við ríkj­andi kerfi og þeir voru fyrir ári síðan.

Þessi taktík flokks­ins virð­ist ekki vera að virka. Það er erfitt að segj­ast vera ímynd stöð­ug­leika þegar síð­ustu þrjár rík­is­stjórnir sem flokk­ur­inn hefur átt aðild að, sem allar hafa ein­ungis átt Sjálf­stæð­is­flokk­inn sam­eig­in­legt, hafa sprungið áður en kjör­tíma­bil­inu lauk. Bjarni er líka mun laskaðri sem stjórn­mála­maður nú en fyrir ári síðan. Ákvörðun hans um að birta ekki tvær skýrslur sem voru til­búnar fyrir síð­ustu kosn­ingar, og áttu skýrt erindi við kjós­endur, dró úr trausti til hans. Það gerði upp­reist æru-málið sem sprengdi síð­ustu rík­is­stjórn líka. Nýleg umfjöllun Stund­ar­innar um við­skipti Bjarna í kringum hrunið, sem byggir á nýjum upp­lýs­ingum um þau við­skipti, er enn eitt vanda­málið fyrir flokk­inn að glíma við.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn náði mjög öfl­ugum enda­spretti í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu. Þar hjálp­aði myndun Lækja­brekku­kvar­tetts­ins, sem sam­an­stóð af þáver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokkum og gaf út yfir­lýs­ingu um sam­starfsvilja að loknum kosn­ingum, mjög til. Þá gat Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem býr að því að vera með mjög öfl­ugt flokka­starf og getur kallað til mikið magn af fólki til að hringja út í kjós­endur, bent á að það yrði vinstri stjórn ef fólk myndi ekki kjósa hann. Þetta skil­aði Sjálf­stæð­is­flokknum á end­anum 29 pró­sent atkvæða og í rík­is­stjórn.

Nú er staðan hins vegar verri en hún var í fyrra. Helsta ógnin er ekki vinstri stjórn heldur aðrir flokkar sem eru að fiska í sömu atkvæða­tjörnum og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Og ef flokk­ur­inn bregst ekki við þeirri stöðu gæti nið­ur­staðan í lok mán­að­ar­ins, þegar talið verður upp úr kjör­köss­unum, orðið sú versta í sögu flokks­ins. Verri en árið 2009, þegar Sjálf­stæð­is­flokknum var refsað fyrir hrunið og ein­ungis 23,7 pró­sent þjóð­ar­innar kusu hann.

Framsókn falbýður sig til vinstri

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er aug­ljós­lega í gríð­ar­legum vanda. Þótt að fyrir lægi að Sig­mundur Davíð myndi taka fylgi af flokknum þegar hann klyfi sig frá bjugg­ust fáir Fram­sókn­ar­menn við því að hann myndi mæl­ast stærri en þessi rót­grónni 100 ára gamli flokkur í hverri könn­un­inni á fætur annarri.

Fram­sókn­ar­flokkur Sigurðar Inga Jóhanns­sonar og Lilju Alfreðs­dóttur er allt öðru­vísi en sá sem Sig­mundur Davíð stýrði frá 2009 til 2016. Hann er með mild­ari yfir­sýn og í bréfi sem Sigurður Ingi sendi flokks­mönnum nýverið kom skýrt fram að stefnan væri sett á þátt­töku í félags­hyggju­stjórn eftir kosn­ingar, ekki íhalds­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki.

Endurkoma Helga Hrafns Gunnarsson í stjórnmálin breytir umtalsvert skoðun ýmissa annarra flokka um hversu stjórntækir Píratar séu.
End­ur­koma Helga Hrafns Gunn­ars­son í stjórn­málin breytir umtals­vert skoðun ýmissa ann­arra flokka um hversu stjórn­tækir Píratar séu.

Í bréf­inu sagði hann að kjós­endur vilji trausta stjórn­mála­menn og flokka sem sýni ábyrgð í störfum sín­um. Helstu mál­efna­á­herslur Fram­sóknar traust og stöð­ug­leiki, ásamt upp­bygg­ingu í heil­brigð­is- og mennta­málum og stór­bættu sam­göngu­kerfi. Þá sagði Sigurður Ingi að hann vilji að kjör þeirra sem lakast standi verði bætt og nefndi þar sér­stak­lega aldr­aða, öryrkja og börn. Mesta athygli vakti að Sigurður Ingi boð­aði end­ur­bætur á skatt­kerf­inu með létt­ari skatt­byrði á fólk með milli- og lægri tekjur en hækka skatta á háar tekj­ur. Þar var um skýra aðlögun að Vinstri grænum að ræða og til­boð um að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sé til­bú­inn að vera milli­stykkið í rík­is­stjórn undir for­ystu Katrínar Jak­obs­dóttur eftir kosn­ingar.

Þessi tónn var end­ur­tek­inn í leið­togaum­ræð­unum í gær. Þar virt­ist sem að Katrín Jak­obs­dóttir og Sigurður Ingi væru að máta flokka sína saman í skatta­málum.

Hrædd við skipulag Pírata

Innan Vinstri grænna er mik­ill vilji til þess að mynda rík­is­stjórn með Sig­mundar-lausum Fram­sókn­ar­flokki. Það er enda oft sagt að hluti flokks­manna Vinstri grænna, sér­stak­lega á lands­byggð­inni, séu í raun lítið annað en Fram­sókn­ar­menn sem séu í öðrum flokki. Draumarík­is­stjórn for­ystu­fólks­ins í Vinstri grænum yrði því Framsókn og helst Sam­fylk­ingu, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans. Viðreisn myndi líka ganga í stað Sam­fylk­ingar ef sá flokkur myndi ná að verða stærstur á frjáls­lyndu miðj­unni líkt og hann var í síð­ustu kosn­ingum, en ólík­legt er að hann nái að verða núna miðað við kann­anir.

Draumsýn Vinstri grænna virð­ist hins vegar ekki ætla að ganga upp eftir klofn­ing­inn í Framsókn. Flokk­ur­inn mun ekki, miðað við stöð­una eins og hún er í dag, ná nægi­lega mörgum þing­mönnum inn til að koma vinstri-miðju­stjórn­inni í meiri­hluta. Þess vegna þurfa Vinstri græn að horfa til Sam­fylk­ingar og Pírata eins og staðan er núna, ef flokknum er alvara um að forð­ast í lengstu lög sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, líkt og lyk­il­fólk innan hans segir í einka­sam­tölum þótt að annar og óræð­ari tónn sé sleg­inn opin­ber­lega.

Það liðkar fyrir að Birgitta Jóns­dóttir verður ekki í fram­boði fyrir Pírata. Það er illa falið leynd­ar­mál að innan Vinstri grænna er bein­línis að finna per­sónu­lega óvild í hennar garð frá fólki í efstu lögum og lít­ill sem eng­inn vilji er fyrir því að vinna með henni. Helgi Hrafn Gunn­ars­son, sem er nú kom­inn aftur í fram­boð, er allt ann­ars eðlis. Hann er vel lið­inn og virtur hjá stjórn­mála­mönnum þvert á flokka. Auk þess þykja aðrir í fram­varða­sveit Pirata, sér­stak­lega Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, hafa vaxið mjög sem stjórn­mála­menn á und­an­förnum miss­erum.

Það sem Vinstri grænir hræð­ast hins vegar er skipu­lag Pírata. Sá flati strúktúr sem er til staðar gerir það að verkum að aðstæður eins og þær sem komu upp hjá Bjartri fram­tíð í haust, þar sem rík­is­stjórn­ar­sam­starfi var slitið á kvöld­fundi með atkvæða­greiðslu sem 57 manns tóku þátt í.

Það er því alls ekki úti­lokað þótt það sé ólík­legt að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, þótt að verði mjög lask­aður, muni eiga mögu­leika á því að setj­ast í rík­is­stjórn með Vinstri grænum, annað hvort einn eða með einum flokki til. Einn við­mæl­andi innan úr kjarna Vinstri grænna orð­aði það þó þannig að af slíku yrði aldrei nema að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi að öllu leyti fall­ast á skatta­stefnu Vinstri grænna og að lík­urnar á sam­starfi flokk­anna nú væru enn minni en þær voru eftir kosn­ing­arnar í fyrra, þegar þær voru þó sára­litlar.

Frjálslyndið á leið út, þjóðernishyggjan á leið inn

Það má segja að kosn­ing­arnar í fyrra hafi verið að ein­hverju leyti verið sigr­aðar af frjáls­lyndu miðju­flokk­unum. Viðreisn, sem bauð fram í fyrsta sinn, fengu 10,5 pró­sent atkvæða og sjö þing­menn. Björt Framtíð, sem mæld­ist vart inni síð­asta árið fyrir kosn­ing­arnar 2016, náði að hnoða sig til lífs með and­stöðu við búvöru­samn­inga og end­aði með 7,2 pró­sent atkvæða. Báðir flokk­arnir, með sína sam­an­lagt ell­efu þing­menn, komust að lokum í rík­is­stjórn og má segja að þeir hafi við það fengið áhrif langt umfram atkvæða­vægi. Sú rík­is­stjórn varð þó fljótt sú óvin­sælasta í Íslands­sög­unni og hvert málið á fætur öðru rak á fjörur hennar sem reynd­ust frjáls­lyndu flokk­unum tveimur erfið. Þar má nefna áður­nefnt skýrslu­mál, skipan dóm­ara við Lands­rétt og svo upp­reist æru-málið sem á end­anum sprengdi rík­is­stjórn­ina.

Ákvörðun Bjartrar fram­tíðar að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu hefur ekki skilað flokknum, né Viðreisn, neinu sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum. Hvorugur þeirra mælist með mann á þingi sam­kvæmt síð­ustu kosn­inga­spá og sam­an­lagt fylgi flokk­anna tveggja mælist 6,5 pró­sent. Það verður mjög á bratt­ann að sækja fyrir þá ef þeir ætla sér að vera áfram afl á Alþingi á næsta kjör­tíma­bili.

Flokkar Óttarrs Proppé og Benedikts Jóhannessonar koma mjög laskaðir út úr stysta meirihlutasamstarfi sem myndað hefur verið á Íslandi. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Flokkar Óttarrs Proppé og Bene­dikts Jóhann­es­sonar koma mjög laskaðir út úr stysta meiri­hluta­sam­starfi sem myndað hefur verið á Íslandi. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Sam­an­dregið þá virð­ist því helsta breyt­ingin frá því í fyrra vera að kjós­endur frjáls­lyndu miðju­flokk­anna eru að halla sér frekar í átt að hefð­bundnum vinstri og miðju­flokkum á borð við Vinstri græna og Sam­fylk­ingu og þjóð­ernis-popúlista­flokkar eru að rífa fylgi af hægri íhalds­vængnum.

Enn eru þó margir óákveðnir og eftir nægu að sækj­ast þar til talið verður upp úr kjör­köss­unum 28. októ­ber næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár