Framsókn leggur áherslu á stöðugleika og vill hátekjuskatt

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur sent flokks­mönnum bréf í kjöl­far þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði sig úr flokknum. Þar kynnti hann stefnu­mál flokks­ins í kom­andi kosn­ingum og brást við brott­hvarfi Sig­mundar Davíðs.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist vilja starfa með flokkum að loknum kosn­ingum sem vilji öfl­ugt heil­brigðis- og mennta­kerfi og sam­göngur. Hann vill að kjör þeirra sem lakast standi verði bætt og nefnir þar sér­stak­lega aldr­aða, öryrkja og börn. Hann vill end­ur­bæta skatt­kerfið með létt­ari skatt­byrði á fólk með milli- og lægri tekjur en hækka skatta á háar tekjur.

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í bréfi sem hann hefur sent á flokks­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins í kjöl­far þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, sagði sig úr honum og boð­aði nýtt fram­boð í gær.

Fjöl­margir Fram­sókn­ar­menn hafa sagt sig úr flokknum í gær og í dag og ætla að fylgja Sigmundi Davíð yfir í hans nýja fram­boð, sem enn hefur ekki hlotið nafn opin­ber­lega. Sigurður Ingi hvetur Fram­sókn­ar­fólk til að standa saman í bréf­inu. Þar segir hann að það þurfi ekki „að eyða mörgum orðum í þá atburði sem urðu til þess að fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins ákvað að segja skilið við flokk­inn. Þá atburði þekkjum við vel og höfum eðli­lega á þeim mis­mun­andi skoð­anir. Það er nauð­syn­legt að við núver­andi aðstæður að taka stöð­una og ákveða hvernig hug­sjónum og mark­miðum Fram­sókn­ar­flokks­ins verði best náð til heilla og hags­bóta fyrir alla lands­menn. Það gerum við með sam­stöðu og sam­vinnu alls þess góða fólks sem í flokknum starfar og stuðn­ings­manna hans.“

[adspot]

Hann segir síðar í bréf­inu að kjós­endur vilji trausta stjórn­mála­menn og flokka sem sýni ábyrgð í störfum sínum. Komandi kosn­ingar muni snú­ast um traust og stöð­ug­leika. Helstu mál­efna­á­herslur Fram­sóknar verði einmitt þær, traust og stöð­ug­leiki, ásamt upp­bygg­ingu í heil­brigðis- og mennta­málum og stór­bættu sam­göngu­kerfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár