„Þetta er feðraveldið gegn börnum“

50 stjórn­ar­menn Bjartrar fram­tíðar studdu stjórn­ar­slit á hita­fundi í gær, þar á meðal allir þing­menn flokks­ins. Þeir telja að for­sætis- og dóms­mála­ráð­herra hafi gengið erinda föður Bjarna Bene­dikts­sonar.

Allir fjórir þing­menn Bjartrar fram­tíðar, þar með taldir báðir ráð­herrar flokks­ins, studdu stjórn­ar­slit. Alls voru greidd 57 atkvæði á stjórn­ar­fundi flokks­ins í gær um hvort að slíta ætti stjórn­ar­sam­starf­inu og 50 þeirra voru á þann veg að það ætti að gera. Ástæðan var leyni­makk og trún­að­ar­brestur tveggja ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjarna Bene­dikts­sonar og Sigríðar Andersen, sem flokks­menn Bjartar fram­tíðar telja að hafi verið að hylma yfir með föður Bjarna. Ganga erinda hans við að reyna að breiða yfir aðkomu hans að upp­reist æru dæmds barn­a­níð­ings. Einn fund­ar­manna segir að málið sé svona vaxið: „þetta er feðra­veldið gegn börnum.“

Atburða­rás gær­dags­ins var hröð. Síðdegis í gær greindi Vísir.is fyrst frá því að Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra, hefði verið að meðal með­mæl­enda með upp­reist æru Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­son­ar. Benedikt sendi skömmu síðar frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann við­ur­kenndi að svo hefði verið og baðst afsök­unar á athæf­inu. Þetta gerð­ist á fimmta tím­anum.

Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra mætti svo í beina útsend­ingu í frétta­tímum bæði Stöðvar 2 og RÚV. Þar greindi hún frá því að hún hefði fengið upp­lýs­ingar um að faðir Bjarna væri á meðal með­mæl­enda Hjalta í júlí og að hún hafi greint for­sæt­is­ráð­herra frá því sam­dæg­urs.

Hindranir og hávær orðrómur

En spólum fyrst aðeins til baka. Á þeim tíma, í júlí, var mál Róberts Downey, ann­ars dæmds kyn­ferð­is­brota­manns, til umfjöll­unar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Nefndin hafði kallað eftir upp­lýs­ingum um málið og meðal ann­ars hverjir með­mæl­endur fyrir upp­reist æru Róberts væru. Hvorki nefndin né fjöl­miðlar höfðu hins vegar fengið slíkar upp­lýs­ingar, en ef með­mæla­bréf Róberts væru birt lá fyrir að með­mæla­bréf ann­arra sem höfðu sótt um upp­reist æru yrði líka að gera opin­ber. Brynjar Níelsson, for­maður nefnd­ar­innar, stað­festi við RÚV 8. ágúst að hann væri komin með gögn um þá sem veitt hafði verið upp­reist æru. Um var að ræða fleiri gögn en bara þau sem snéru að máli Róberts Downey. Hann var harður á því að ekki ætti að upp­lýsa um hverjir væru með­mæl­endur. Hann sagði til við frétta­stofu RÚV 8. ágúst: „með­mæl­enda­bréfin fá þeir ekki,“ og átti þar við nefnd­ar­menn í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Nefnd­ar­menn­irnir fengu þó að sjá bréfin. En fjöl­miðlar fengu ekki að sjá þau, né önnur gögn máls­ins.

Í byrjun síð­ustu komst úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál að þeirri nið­ur­stöðu að fjöl­miðlar ættu að fá að sjá gögn í máli Róberts Downey, og þá lá strax fyrir að sú nið­ur­staða yrði for­dæm­is­gef­andi fyrir önnur mál sem snéru að upp­reist æru. Gögnin voru birt á þriðju­dag og sam­hliða var sagt frá því að önnur gögn er vörð­uðu upp­reist æru aftur til árs­ins 1995 yrðu líka birt á næst­unni.

Á þessum tíma hafði verið hávær orðrómur um að faðir for­sæt­is­ráð­herra væri á meðal þeirra sem hefðu skrifað með­mæla­bréf fyrir Hjalta Sigurjón Hauksson, mann sem var dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi fyrir að níð­ast kyn­ferð­is­lega á stjúp­dóttur sinni árum saman. Brotin hófust þegar hún var fimm ára og stóðu yfir, sam­kvæmt dómi, þar til hún flutti að heima um 18 ára aldur. Í þeim fólst meðal ann­ars nær dag­legt sam­ræði.

Fjöl­miðlar höfðu spurst fyrir um málið en ekki fengið svör og því hékk málið í loft­inu í næstum tíu daga. Mikið var um það rætt en stað­fest­ingu vant­aði. Hún fékkst svo í gær.

Tugir mæta á stjórnarfund með skömmum fyrirvara

Eftir að Sigríður Andersen opin­ber­aði að hún hefði sagt Bjarna frá mál­inu í júlí í frétta­tímum gær­dags­ins mætti Brynjar Níelsson svo í Kastljós. Í máli hans kom meðal ann­ars fram að hann hefði varið Hjalta á sínum tíma.

Brynjar Níelsson hefur verið í stóru hlutverki í málinu sem nú hefur fellt ríkisstjórnina. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Brynjar Níelsson hefur verið í stóru hlut­verki í mál­inu sem nú hefur fellt rík­is­stjórn­ina. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Ljóst var strax að þetta mál, sama hvað þing­menn og ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins reyndu að mála það upp sem óbil­gjarnan póli­tískan rétt­trúnað og móð­ur­sýki, hafði gríð­ar­leg áhrif á hina tvo flokk­anna í stjórn­ar­sam­starf­inu, Bjarta fram­tíð og Viðreisn.

Innan Bjartrar fram­tíðar hefur reyndar ekki verið ein­hugur um stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk frá upp­hafi. Rúmur fjórð­ungur stjórnar flokks­ins kaus til að mynda gegn stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Alls tóku 69 manns þátt í þeirri atkvæða­greiðslu.

Strax eftir fréttir gær­dags­ins var boð­aður stjórn­ar­fundur hjá flokknum, en 80 manns sitja í stjórn­inni. Fund­ur­inn var boð­aður klukkan 21 og hófst skömmu síðar. Um 40 manns mættu á fund­inn en auk þess voru um tugur stjórn­ar­manna á honum í gegnum sam­skipta­for­ritið Skype. Þar var farið yfir málið og ljóst að hljóðið í fund­ar­mönnum var mjög þungt. „Þetta er feðra­veldið gegn börnum,“ sagði einn við­mæl­andi Kjarnans sem sat fund­inn. „Meg­in­málið er að þarna eru tveir ráð­herrar að ganga erinda föður ann­ars, gegn lögum og landi, og láta okkur ekk­ert vita af því.“

Í aðdrag­anda fund­ar­ins höfðu átt sér stað sam­skipti milli lyk­il­manna í Bjartri fram­tíð og fólks í innsta hring Bjarna Bene­dikts­sonar þar sem kraf­ist var við­bragða af hálfu for­sæt­is­ráð­herra strax. Þau við­brögð voru hins vegar ekki í boði og þegar þetta er skrifað hefur hann enn ekki tjáð sig um málið.

Fjölmörg mál sem stuðuðu

Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að efinn í bak­landi Bjartrar fram­tíðar gagn­vart rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu hefur verið að aukast. Alla tíð hefur það setið mjög í hluta stjórn­ar­manna að Bjarni hafi verið í lyk­il­hlut­verki í Panama­skjöl­unum og hafi valið annan efna­hags­legan veru­leika en landar hans með því að stunda við­skipti í gegnum aflands­fé­lög. Það var ekki til að mýkja þann hluta þegar kom í ljós að hann hefði setið á tveimur skýrslum, annarri um umfang aflandseigna og hinni um skipt­ingu Leið­rétt­ing­ar­innar, frá því fyrir kosn­ingar. Þær voru ekki birtar fyrr en snemma á þessu ári, þegar fyrir lá að það væri að nást saman um rík­is­stjórn­ar­sam­starf.

Óttarr Proppé fékk að vita af því að faðir Bjarna Benediktssonar væri í gögnum um uppreist æru í vikunni.
Óttarr Proppé fékk að vita af því að faðir Bjarna Bene­dikts­sonar væri í gögnum um upp­reist æru í vik­unni.

Lands­rétt­ar­málið stuð­aði fólk í bak­land­inu líka sem og fram­ganga Sigríðar Andersen í mál­efnum hæl­is­leit­enda, sér­stak­lega barna í hópi þeirra, á síð­ustu vikum. Svo lá auð­vitað fyrir að sitj­andi rík­is­stjórn var sú óvin­sælasta í lýð­veld­is­sög­unni þegar tekið var til­lit til þess skamma tíma sem hún hafði setið. Einungis 27 pró­sent lands­manna styðja hana.

Óttarri sagt frá málinu í framhjáhlaupi

Á fund­inum í gær var meðal ann­ars rætt um önnur sam­bæri­leg mál sem hefðu komið upp, þar sem reynt hefði verið að leyna upp­lýs­ingum. Þar var helst rifjað upp leka­málið svo­kall­aða og það ferli sem fylgdi í kjöl­far þess. Fund­ar­menn ræddi líka um þá ákvörðun nefnd­ar­manna Sjálf­stæð­is­flokks í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd að ganga út af fundi hennar þegar gögn í máli Róberts Downey voru birt og margir þeirra sáu nú þann gjörn­ing í nýju ljósi. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans greindi Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar og heil­brigð­is­ráð­herra, frá því að Bjarni hefði sagt honum í fram­hjá­hlaupi á mánu­dag að pabbi hans væri ein­hvers staðar í gögn­unum um menn sem hefðu fengið upp­reist æru. Það hefði verið eini vísir­inn að sam­tali sem Bjarni hefði átt við for­mann­inn um málið.

„Þetta var bara síð­asta kornið. Við erum með for­sæt­is­ráð­herra sem hvorki notar íslenska pen­inga né íslensk lög,“ segir einn við­mæl­enda Kjarnans.

Eftir langar og til­finn­inga­þrungnar umræður var ákveðið að kjósa um hvort að Björt fram­tíð ætti að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu eða ekki.

Alls greiddu 57 af þeim 80 sem eru í stjórn flokks­ins atkvæði. 50 þeirra studdu stjórn­ar­slit, eða 87 pró­sent greiddra atkvæða og tæp 63 pró­sent allra stjórn­ar­manna. Allir fjórir þing­menn Bjartrar fram­tíðar, og báðir ráð­herrar flokks­ins, studdu stjórn­ar­slit. Nið­ur­staðan lá því kýr­skýr fyrir: sam­starf­inu yrði slitið og rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar yrði skamm­lífasta sam­steypu­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið undanfarið ár