Engin útganga úr ESB án aðkomu þingsins

Breska rík­is­stjórnin getur ekki virkjað ákvæði um úrsögn Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu nema með sam­þykki breska þings­ins. Þetta er nið­ur­staða dóm­stóls í Bret­landi. Stjórn­völd hyggj­ast áfrýja nið­ur­stöð­unni, og er nið­ur­stöðu Hæsta­réttar vænst í des­em­ber, að því er breska rík­is­út­varpið BBC greinir frá.

Theresa May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur sagt að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan og ráð­herra­völd þýði að þing­menn þurfi ekki að kjósa um málið. Stjórn­völd hafi í raun­inni ekki rétt á öðru en að virða nið­ur­stöðu þjóð­ar­innar. Hún hefur einnig sagt að hún vilji hefja við­ræður um útgöngu Bret­lands úr ESB fyrir lok mars á næsta ári, en nú hefur sú áætlun nán­ast verið slegin út af borð­inu með nið­ur­stöðu dóm­stóls­ins. Áætlanir um úrsögn Bret­lands úr ESB munu því tefj­ast tals­vert, þrátt fyrir að ekki sé víst að þing­menn þori öðru en að fara að nið­ur­stöðu þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar í sumar.

50. grein Lissabon-sátt­mál­ans er greinin sem kveður á um að aðild­ar­ríki að Evr­ópu­sam­band­inu geti ákveðið að segja sig úr sam­band­inu, með til­kynn­ingu til leið­toga­ráðs ESB. Sam­bandið og aðild­ar­ríkið ganga til samn­inga­við­ræðna og gera samn­ing um það hvernig staðið skuli að úrsögn rík­is­ins og hvernig fram­tíð­ar­tengslum verði hagað.

Theresa May vildi senda þessa til­kynn­ingu til leið­toga­ráðs­ins fyrir lok mars á næsta ári, en ef þessi nið­ur­staða heldur fyrir Hæsta­rétti þarf að fara með málið fyrir breska þingið áður en hægt er að senda til­kynn­ing­una til ESB.

Evr­ópu­sam­bands­ríkin hafa sagt að ekki sé hægt að hefja við­ræður um útgöngu Bret­lands fyrr en búið er að virkja 50. grein­ina með til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár