Þrjár af hverjum fjórum krónum umfram skuldir bundnar í steypu

Lektor í fjár­málum segir ekki ólík­legt að hús­næð­is­verð muni lækka hér­lendis. Það hafi gerst eftir banka­hrunið sam­hliða mik­illi verð­bólgu. Alls hefur hækkun á fast­eigna­verði aukið eigið fé heim­ila lands­ins um 3.450 millj­arða króna frá 2010.

Frá árinu 2010 og út síð­asta ár jókst eigið fé íslenskra heim­ila, mun­ur­inn á eignum og skuldum þeirra, um 3.450 millj­arða króna. Sú aukn­ing er að langstærstu leyti til­komin vegna þess að virði fast­eigna, í flestum til­fellum heim­ila fólks, hefur hækkað gríð­ar­lega á tíma­bil­inu. Alls má rekja næstum 76 pró­sent af aukn­ing­unni á eigin fé til hækk­andi fast­eigna­verðs.

Þetta má lesa út úr nýlegum tölum Hagstofu Íslands um eignir og skuldir lands­manna.

Miklar hækk­anir á hús­næð­is­verði í ár hafa verið stærsta breytan í sívax­andi verð­bólgu, sem mælist nú 9,9 pró­sent og stefnir í tveggja stafa tölu. Miklar stýri­vaxta­hækk­anir og tak­mark­anir á aðgengi að lánsfé til fast­eigna­kaupa eiga að gera það að verkum að hægj­ast fari á þessum upp­takti og hann jafn­vel hætti. Í Svíþjóð hefur það til að mynda gerst að hús­næð­is­verð hefur hríð­lækkað á skömmum tíma. Í höf­uð­borg­inni Stokk­hólmi hefur það lækkað um 8,2 pró­sent á þremur mán­uðum.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hér hefur hús­næð­is­verð hins vegar hækkað um rúm 16 pró­sent frá því í des­em­ber í fyrra. Í Morg­un­blað­inu í morgun er haft eftir Má Wolfgang Mixa, lektor í fjár­málum við Háskóla Íslands, að það sé ekki ólík­legt að fast­eigna­verð hér­lendis muni taka dýfu. Það hafi gerst áður – verðið lækk­aði um 20 pró­sent milli 2007 og 2010 – sam­hliða mik­illi verð­bólgu.

Gangi það eftir mun bók­fært eigið fé flestra lands­manna, sem er að uppi­stöðu bundið í steypu, lækka sam­hliða.

Hlutfallið hækkað

Af þeirri upp­hæð sem Íslend­ingar áttu í eigið fé árið 2010 var 1.146 millj­arðar króna bundnir í steypu, eða 73,2 pró­sent. Hlut­fallið hefur auk­ist frá þeim tíma – það er nú 75 pró­sent – sam­hliða því að fast­eigna­bóla hefur verið blásin upp á Íslandi og fast­eigna­verð hækkað gríð­ar­lega. Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur vísi­tala íbúð­ar­verðs til að mynda hækkað um 210 pró­sent frá lokum árs 2010 og fram til dags­ins í dag.

[adspot]Þetta hefur skilað því að eigið fé sem bundið er í fast­eignum hefur auk­ist um 3.450 millj­arða króna, eða rúm­lega þre­fald­ast, frá 2010 og til síð­ustu ára­móta. Af þess­ari aukn­ingu á virði fast­eigna sem skráðar eru á Íslandi lentu 2.343 millj­arðar króna hjá þeim fimmt­ungi lands­manna sem á mest fé, eða 68 pró­sent af allri aukn­ingu sem varð á virði fast­eigna á tíma­bil­inu.

45 prósent til efstu tíundarinnar

Ef ein­ungis er skoðað hvað rík­ustu tíu pró­sent lands­manna, hópur sem telur 23.040 ein­stak­linga, þá sýna tölur Hag­stof­unnar að virði fast­eigna hans hafi auk­ist um 1.551 millj­arða króna á ára­tug og að 45 pró­sent allrar hækk­unar á fast­eigna­verði hafi farið til þessa hóps.

Sá hópur er bæði lík­leg­astur til að búa í dýrasta hús­næð­inu sem í boði er og að eiga fleiri en eina fast­eign.

Sam­kvæmt tölum frá Þjóð­skrá Íslands eiga á fimmta þús­und ein­stak­lingar og lög­að­il­ar fleiri en eina íbúð. Sá hópur á alls um 53 þús­und íbúð­ir. Í lok síð­asta árs áttu alls 71 ein­stak­l­ingar og 382 lög­­að­ilar fleiri en sex íbúð­ir, 155 ein­stak­l­ingar og 101 lög­­að­ilar eiga fimm íbúðir og 579 ein­stak­l­ingar og 165 lög­­að­ilar eiga fjórar íbúð­­ir. Fjöldi þeirra ein­stak­l­inga sem eiga þrjár íbúðir er 2.974 og fjöldi lög­­að­ila sem eiga sama magn íbúða er 285. Þá eiga 16.501 ein­stak­l­ingur og 688 lög­­að­ilar tvær íbúð­­ir.

Flestir landsmenn með eigið féð bundið í steypu

Kjarninn greindi frá því nýverið að á árinu 2021 hafi orðið til 608 nýir millj­arðar króna í eigið fé hjá íslenskum heim­il­um. Sá hópur lands­manna sem til­heyrir þeim tíu pró­sentum sem höfðu hæstu tekj­urnar jók eign sína á árinu um 331 millj­arð króna. Það þýðir að 54,4 pró­sent af nýjum auð sem varð til í fyrra lenti hjá þessum hópi, sem telur 23.040 fjöl­skyld­ur.

[links]Þegar þróun á eignum og skuldum þjóð­ar­innar er skoðað aftur í tím­ann kemur í ljós að á árunum 2010 til 2020, á einum ára­tug, tók þessi efsta tíund að með­al­tali til sín 43,5 pró­sent af öllum nýjum auð sem varð til á ári. Því átti sú þróun sér stað á síð­asta ári að rík­ustu tíu pró­sent lands­manna tóku til sín mun hærra hlut­fall af nýjum auð en hóp­ur­inn hefur að jafn­aði gert ára­tug­inn á und­an.

Þegar rýnt er í töl­urnar kemur í ljós að þau 80 pró­sent lands­manna sem eiga minnst eru með 85 pró­sent af sínu eigin fé bundið í fast­eignum á meðan að það hlut­fall er rúm­lega 55 pró­sent hjá efstu tíund­inni, sem á til að mynda mun meira af hluta­bréfum og öðrum fjár­muna­eignum en aðrir hópar í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár