Sagan hverfur með skáldum sem láta lífið í árásum Ísraela

Í máls­höfðun Suður- Afríku gegn Ísrael fyrir þjóðar­morð er sérstak­lega farið yfir það hvaða áhrif það hefur á palestínsku þjóðina að Ísraelsher hefur drepið þá sem hafa skrásett sögu þjóðarinnar og arf hennar. Með því að drepa skáldin, blaða­mennina, lista­mennina, fræða­fólkið, vísinda­mennina er herinn að drepa palestínska sögumenn og sögu þeirra.

Í ljóði palestínska skáldsins Refaat Alareer, Ef ég verð að deyja, í íslenskri þýðingu Braga Páls Sigurðar­sonar, biður ljóð­mælandi þann sem lifir hann af að selja það sem ljóð­mælandi á til að kaupa efnisbút og snæri, gera úr því flugdreka svo börnin á Gaza geti séð hann þegar þau horfa til himins og með því að sjá hann upplifað ást og von. Refaat Alareer var myrtur af Ísraelsher þann 6. desember síðastliðinn ásamt bróður sínum og systur og börnum þeirra. Systir hans, Asmaa, sem lést með skáldinu og fjórum börnum sínum skilur eftir sig eiginmann, Ahmed al-Mamlouk, sem er búsettur á Íslandi. Elsti sonur hans, Alaa, vildi verða ensku­kennari eins og Refaat frændi sinn. 

Refaat AlareerPalest­ínska skáldið sem skrif­aði ljóðið Ef ég verð að deyja.

Fimm vikum áður en hann var myrtur deildi hann ljóði sínu á samfélags­miðlum og eftir dauða hans …

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Heimskan er alltaf söm við sig, það er lítið mál að drepa manneskjur en söguna drepur engin.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár