Viðreisn boðar innviðasjóð og lækkun vaxta

Viðreisn vill að tekjur rík­is­ins af upp­boði afla­heim­ilda í sjáv­ar­út­vegi renni í sér­stakan inn­viða­sjóð sem not­aður verði til að byggja upp fjöl­breyttar stoðir atvinnu­lífs, ekki síst á lands­byggð­inni. Viðreisn segir að upp­boð afla­heim­ilda geti skilað 20 millj­örðum króna á ári í rík­is­sjóð.

Þetta er meðal áherslu­mála Við­reisnar, sem hafa nú verið kynnt form­lega.

Í nán­ari útlistun flokks­ins á inn­viða­sjóðnum kemur fram, að flokk­ur­inn vilji fara mark­aðs­leið í sjáv­ar­út­vegi sem komi í stað veiði­leyfagjalda. „Mark­aðs­leiðin tryggir að loks­ins sé greitt sann­gjarnt verð fyrir afnotin af auð­lind­inni. Verð sem er ákvarðað af mark­að­inum en ekki af mönnum inni í ráðu­neyti. Leiðin hvetur til hag­ræð­ingar og hámarks arð­semi og opnar á nýliðun. Viðreisn ætlar að setja á fót Inn­viða­sjóð. Þannig verði afgjald­inu sem fæst fyrir afnotin af auð­lind­inni varið til inn­viða­upp­bygg­ingar á þeim svæðum þar sem kvót­inn er upp­runn­inn,“ segir í til­kynn­ingu frá Viðreisn.

Með þessum hætti verði hægt að efla tekju­stofna sveit­ar­fé­laga og auð­velda upp­bygg­ingu á innviðum víða um landið, ekki síst til að gera svæðin mót­tæki­legri fyrir erlendum ferða­mönnum. „Þetta er spurn­ing um að tryggja öryggi bæði borg­ar­anna og ferða­mann­ana - t.d. Að ráð­ast í nauð­syn­legar sam­göngu­úr­bætur, upp­bygg­ingu á ferða­manna­stöðum, heilsu­gæslu, fjar­skipta­mál og að efla lög­gæslu. Við teljum að var­lega áætlað getum við gert ráð fyrir að kjör­dæmin fái hlut­deild í sem gæti verið 3-4 millj­arðar á hvert lands­byggð­ar­kjör­dæmi og svipað fyrir höf­uð­borg­ar­svæðið ef mark­aðs­leiðin gefur 15 millj­arða en 4-5 millj­arða á kjör­dæmi ef hún gefur 20 millj­arða,“ segir í útlistun flokks­ins á inn­viða­sjóðs­hug­mynd­inni.

Myntráð og lægri vextir

Í kosn­inga­bar­átt­unni hefur Viðreisn talað fyrir mynt­ráði þar sem hug­myndin er að festa gengi krón­unnar við erlenda mynt. Með því móti segir Viðreisn mögu­legt að lækka vaxta­stig á land­inu. Miðað við þriggja pró­senta lækkun vaxta þá myndi mynd­ast 180 millj­arða sparn­aður á Íslandi hjá sveit­ar­fé­lögum, rík­inu, fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum.

Með þessu móti telur flokk­ur­inn mögu­legt að lækka vaxta­byrði dæmi­gerðar fjöl­skyldu um allt að 50 þús­und krónur á mán­uði, því er segir í útlist­unum Við­reisnar.

Hófleg útgjaldaaukning

Í áformum Við­reisnar er enn fremur horft til þess að auka útgjöld til heil­brigðs­mála umtals­vert og að þau verði 39 millj­örðum hærri, á föstu verð­lagi, árið 2020 en þau eru nú. Þá vill Viðreisn flýta upp­bygg­ingu við Lands­spít­ala. Byggingu með­ferð­ar­kjarna verði lokið eigi síðar en 2022. Gert er ráð fyrir 10 millj­arða fram­lagi á ári til bygg­ing­ar­fram­kvæmda við Lands­spít­ala á kjör­tíma­bil­inu. Það er tvö­földun miðað við gild­andi fimm ára rík­is­fjár­mála­á­ætlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár