Samtök gegn íslamsvæðingu komin til Íslands

Pegida, „sam­tök fólks gegn islam­væð­ingu Evrópu“, hafa verið stofnuð á Íslandi. Facebook-síða hefur verið stofnuð og tæp­lega 270 manns hafa látið sér líka við hana. Samtökin segj­ast ætla að birta frétta­tengt efni sem teng­ist inn­reið og upp­gangi Íslams í Evrópu, efni sem þau segja að fjöl­miðlar á Íslandi birti ekki vegna þögg­unar og póli­tísks rétt­trún­aðar.

[caption id="attachment_16759" align="alignnone" width="765"] Pegida á Íslandi hefur stofnað Facebook-síðu.[/caption]

Samtökin hafa staðið fyrir viku­legum mót­mælum gegn áhrifum Íslams í evr­ópskum löndum í Dresden frá því þann 20. októ­ber, en þá mættu um 350 manns. Fjölgað hefur hægt og rólega en met­fjöldi mætti á mót­mælin í gær, eða um 25 þús­und manns, en mót­mælin voru haldin til minn­ingar um þá sem lét­ust í hryðju­verka­árás­unum í París í síð­ustu viku. Þetta var gagn­rýnt af ráða­mönnum í Þýska­landi og dóms­mála­ráð­herr­ann Heiko Maas hvatti til dæmis til þess að mót­mæl­unum yrði aflýst. „Fórn­ar­lömbin eiga ekki skilið að vera mis­notuð af svona áróð­urs­mönnum,“ sagði Maas við þýska blaðið Bild.

Margir aðrir hafa talað gegn sam­tök­unum. Angela Merkel kansl­ari hefur sagt að þótt allir hafi rétt á að tjá skoð­anir sínar þá sé ekki rými í Þýska­landi fyrir áróður gegn inn­flytj­endum. Hún hefur einnig sagt að sam­tökin beri for­dóma, kald­lyndi og jafn­vel hatur í hjörtum sínum.

[caption id="attachment_16760" align="alignnone" width="1024"] Met­fjöldi fólks mætti á mót­mælin í gær. Fólk hefur einnig mætt til að mót­mæla sam­tök­unum.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár