Umboðsmaður Alþingis skoðar meint vanhæfi Árna Sigfússonar

Kvörtun vegna úthlut­unar úr Orku­sjóði til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar er til með­höndl­unar hjá umboðs­manni Alþingis. Kvörtunin er vegna þess að for­maður nefndar sem ákveður styrk­ina er bróðir for­stjóra mið­stöðv­ar­innar. Það stang­ast mögu­lega á við stjórn­sýslu­lög.

Umboðs­maður Alþingis er með kvörtun fyr­ir­tæk­is­ins Valorku vegna styrk­veit­ingar Orku­sjóðs til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands í fyrra­haust til með­höndl­unar. Valorka sendi upp­haf­lega kvörtun til iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins vegna styrk­veit­ing­ar­innar þann 24. sept­em­ber 2015 og í fram­hald­inu sendi fyr­ir­tækið kvörtun til umboðs­manns Alþingis.

Frétta­blaðið greindi frá því í okt­o­ber 2015 að mið­stöðin hefði fengið fjórð­ung þeirra styrkja sem Orku­sjóður hafði nýverið úthlutað til alls ell­efu verk­efna í fyrra haust. Í umfjöllun blaðs­ins kom fram að for­maður nefnd­ar­innar sem velur hverjir fá styrki, Árni Sig­fús­son, er bróðir for­stjóra Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands, Þor­steins Inga Sig­fús­sonar. Árni vék ekki sæti þegar fjallað var um styrk­veit­ing­una. Árni kall­aði umfjöllun Frétta­blaðs­ins „ljótan leik“ í sam­tali við Stundina. Hann hafn­aði því að eitt­hvað væri athuga­vert við úthlut­un­ina, enda væri hún til rík­is­stofn­unar, ekki per­sónu­lega til bróður hans.

Valdimar Öss­ur­ar­son, fram­kvæmda­stjóri Valorku, sem sótti einnig um styrk til Orku­sjóðs en fékk ekki, taldi styrk­veit­ing­una ólög­mæta eins og að henni var staðið. Ástæðan væri sú að Árni og Þor­steinn Ingi væru bræður og þar með væri Árni van­hæfur til að veita styrk til Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar. Slík veit­ing stang­ist á við 2. kafla stjórn­sýslu­laga og hljóti því að dæm­ast ómerk, að mati Valdi­mars.

Í 2. kafla stjórn­sýslu­laga segir að nefnd­ar­maður sé van­hæfur til með­ferðar máls ef hann „er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ætt­leið­ingar“ eða ef hann „teng­ist fyr­ir­svars­manni eða umboðs­manni aðila með þeim hætti“. Auk þess telj­ast nefnd­ar­menn van­hæfir ef „að öðru leyti eru fyrir hendi þær aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­drægni hans í efa með réttu“.

Iðnaðar- og við­skipta­ráðu­neytið svar­aði erindi Valorku með bréfi sem sent var til fyr­ir­tæk­is­ins 14. októ­ber 2015. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá iðn­aðar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu sendi Valorka í fram­hald­inu kvörtun til umboðs­manns Alþingis sem sendi í kjöl­farið bréf til ráðu­neyt­is­ins með nokkrum spurn­ingum um málið. Bréf umboðs­manns var sent 3. Nóvember 2015 og því svarað þann 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Að sögn ráðu­neyt­is­ins er málið enn í með­höndlun hjá emb­ætti umboðs­manns Alþingis.

Breytingar gerðar á lögum um Orkusjóð í árslok 2014

Orku­sjóður er í eigu rík­is­ins og er hlut­verk hans að stuðla að hag­kvæmri nýt­ingu orku­linda lands­ins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða sem miða að því að draga úr notkun jarð­efna­elds­neytis. Yfir­um­sjón og ábyrgð með sjóðnum er hjá iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra.

Í des­em­ber 2014 sam­þykkti Alþingi að gera breyt­ingar á lögum um Orkusjóð. Í þeim breyt­ingum fólst meðal ann­ars að Orkuráð var lagt niður en í stað þess á iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra að skipta þriggja manna ráð­gjafa­nefnd til fjög­urra ára sem hefur það hlut­verk að gera til­lögur til ráð­herra um lán­veit­ingar og ein­stakar greiðslur úr Orku­sjóði sam­kvæmt fjár­hags- og greiðslu­á­ætlun sjóðs­ins.

Laga­breyt­ingin tók gildi 1. jan­úar 2015 og í byrjun þess árs skip­aði Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, þrjá ein­stak­linga í ráð­gjafa­nefnd­ina. Þeir eru Árni Sig­fús­son, Franz Viðar Árnason og Halla Hrund Loga­dóttir.

Árni var auk þess skip­aður for­maður nefnd­ar­innar.

Árni er vel­þekktur úr íslensku stjórn­mála­lífi. Hann var borg­ar­full­trúi í Reykja­vík fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í þrettán ár á níunda og tíunda ára­tugnum og var borga­stjóri höf­uð­borg­ar­innar í nokkra mán­uði árið 1994. Árni varð síðar bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ í tólf ár fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins, frá árinu 2002 og fram að síð­ustu kosn­ingum, vorið 2014, þegar flokkur hans tap­aði miklu fylgi og missti völdin í sveita­fé­lag­inu. Árni situr enn sem óbreyttur aðal­full­trúi í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar og er odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar. Starf bæj­ar­full­trúa er hluta­starf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár