Þörfin eftir upplýsingum um landbúnaðarstyrki „óljós“ að mati Bændasamtakanna

Nýlega var lögð fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis að upp­lýs­ingar um opin­bera styrki og greiðslur til land­bún­aðar verði gerðar opin­berar. Í umsögn frá Bænda­sam­tök­unum segir að ekki hafi verið sýnt fram á raun­veru­lega þörf á því.

Í þingsályktunartillögu þingflokks Viðreisnar er lagt til að upplýsingar um opinbera styrki og greiðslur verði aðgengilegar öllum án endurgjalds.
Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þing­flokks Við­reisnar er lagt til að upp­lýs­ingar um opin­bera styrki og greiðslur verði aðgengi­legar öllum án end­ur­gjalds. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Að mati Bænda­sam­taka Íslands hefur ekki verið sýnt fram á með full­nægj­andi hætti hver sé raun­veru­leg þörf á að upp­lýs­ingar um land­bún­að­ar­styrki séu gerðar opin­berar að frum­kvæði stjórn­valda. Þetta kemur fram í umsögn sam­tak­anna sem send var atvinnu­vega­nefnd Alþingis í vik­unni vegna til­lögu til þings­á­lykt­unar um birt­ingu upp­lýs­inga um opin­bera styrki og aðrar greiðslur í land­bún­aði.

Í umsögn­inni segir að Bænda­sam­tökin séu hlynnt gagn­sæi í með­ferð opin­bers fjár og greið­ara aðgengi almenn­ings að upp­lýs­ingum sem falla með skýrum hætti innan gild­is­sviðs upp­lýs­inga­laga. Það sé hins vegar ekki svo ein­falt að heim­ila óheftan aðgang almenn­ings að upp­lýs­ingum um opin­bera styrki því í fámenn­ari búgreinum, svo sem í svína- og kjúklinga­rækt, geti verið um við­kvæmar upp­lýs­ingar að ræða vegna sam­keppn­is­stöðu og mik­il­vægra við­skipta­hags­muna bænda.

Upplýsingarnar verði ókeypis og öllum aðgengilegar

Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan kveður á um að sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra birti opin­ber­lega upp­lýs­ingar um styrki og aðrar greiðslur sem veittar eru á grund­velli búvöru­samn­inga. Þessar upp­lýs­ingar skulu vera birtar raf­rænt, vera öllum aðgengi­legar og kosta ekk­ert. Þá verði birtar upp­lýs­ingar fyrir hvert ár um fjár­hæð styrkja, grund­völl þeirra og nafn og búsetu styrk­þega. Flutn­ings­menn til­lög­unnar eru þing­flokkur Við­reisnar, þau Jón Steindór Valdi­mars­son, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, Hanna Katrín Frið­riks­son og Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram hún hafi verið lögð fram á síð­asta lög­gjaf­ar­þingi og sé nú end­ur­flutt nán­ast óbreytt. „Mark­miðið með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess­ari er að tryggja gagn­sæi í veit­ingu almanna­fjár til fram­leið­enda á sviði land­bún­aðar. Erfitt hefur reynst fyrir hags­muna­að­ila og almenn­ing að nálg­ast upp­lýs­ingar um slíkar greiðslur að und­an­skil­inni ósund­ur­greindri heild­ar­fjár­hæð í fjár­lögum hvers árs. Er þar munur á greiðslum á grund­velli búvöru­samn­inga og því sem almennt gildir um stuðn­ing íslenska rík­is­ins við sjálf­stæða atvinnu­rek­endur.“

Sambærilegar upplýsingar aðgengilegar í nágrannalöndum

Þar segir einnig að sam­kvæmt 13. grein upp­lýs­inga­laga skuli stjórn­völd veita almenn­ingi upp­lýs­ingar um starf­semi sína og vinna mark­visst að því að gera gagna­grunna og skrár aðgengi­leg með raf­rænum hætti. „Slík hefur þó ekki verið fram­kvæmdin þegar kemur að upp­lýs­ingum um opin­bera styrki og greiðslur til fram­leið­enda á sviði land­bún­aðar,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Nú þegar birta stjórn­völd upp­lýs­ingar um opin­bera styrki í ein­hverjum mæli að eigin frum­kvæði líkt og segir í grein­ar­gerð­inni, til dæmis atvinnu­lífs-, rann­sóknar- og menn­ing­ar­styrki á vegum Rannís, lista­manna­laun og styrki á vegum verk­efn­is­ins Atvinnu­mál kvenna. Þar er einnig sagt að upp­lýs­ingar um stuðn­ing til land­bún­aðar opin­berar og aðgengi­legar á vef í nágranna­löndum okkar og innan Evr­ópu­sam­bands­ins.

Lokaorð grein­ar­gerð­ar­innar eru á þá leið að með því að gefa almenn­ingi kost að afla sér upp­lýs­inga um opin­bera styrki í land­bún­aði megi auka traust til atvinnu­grein­ar­innar auk þess sem það felur í sér aukið gagn­sæi í með­ferð opin­bers fjár.

Hvetja stjórnvöld til að leita til samkeppnisyfirvalda

Líkt og áður segir telja Bænda­sam­tökin ekki vera búið að sýna fram á þörf­ina til þess að gera þessar upp­lýs­ingar opin­berar. Í umsögn sinni er það einnig sagt „óljóst hver þörf eða eft­ir­spurn eftir upp­lýs­ing­unum er raun­veru­lega og í hvaða til­fellum slíkar upp­lýs­ingar eiga ekki erindi við almenn­ing skv. upp­lýs­inga­lögum.“

Bænda­sam­tökin beina því einnig til stjórn­valda að leita álits sam­keppn­is­yf­ir­valda áður en lengra er haldið, sé það vilji stjórn­valda að veita aðgang að þeim upp­lýs­ingum sem þings­á­lykt­un­ar­til­lagan nær til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár