Milljarðar gætu ratað úr fyrirtæki í eigu borgarinnar í ríkissjóð vegna afleiðusamninga við Glitni

Orku­veita Reykja­víkur vildi ekki gera upp afleiðu­samn­inga við Glitni HoldCo vegna þess að hún taldi að félagið hefði fram­selt samn­ing­anna til rík­is­sjóðs og að það hefði þegar fengið bætur fyrir afglöp end­ur­skoð­enda í sátt við PwC.

Á föstu­dag féll dómur í Lands­rétti í máli sem Orku­veita Reykja­víkur höfð­aði á hendur Glitni HoldCo, félags utan um eft­ir­stöðvar þrota­bús Glitnis.

Málið sner­ist um afleiðu­samn­inga sem Orku­veitan hafði gert við Glitni á árunum 2002 til 2008, eða áður en bank­inn féll með látum haustið 2008, til að verja sig fyrir geng­is­á­hættu, enda tekjur Orku­veit­unnar að mestu í íslenskum krónum en fjár­hags­legar skuld­bind­ingar að mestu í erlendum myntum. Með samn­ing­unum tók Orku­veitan stöðu með krón­unni en þegar hún féll mynd­að­ist tap á samn­ing­unum. Það tap vildi Glitnir HoldCo sækja.

Mála­rekst­ur­inn hafði staðið yfir síðan 2012 og á meðan að á honum stóð hefur grund­völlum máls­ins tekið breyt­ingum.

En nið­ur­staða Lands­réttar var sú að dómur hér­aðs­dóms skyldi standa órask­aður. Verði það end­an­leg nið­ur­staða þá mun Orku­veitan, sem er að stærstum hluta í eigu Reykja­vík­ur­borgar, þurfa að greiða Glitni að minnsta kosti 3,3 millj­arða króna þegar drátt­ar­vextir fram að síð­ustu ára­mótum eru taldir til. Heild­ar­upp­hæðin sem þarf að greiða er hærri, enda drátt­ar­vextir haldið áfram að safn­ast upp á þeim ell­efu mán­uðum sem liðnir eru af árinu 2021.

Til að setja þessa tölu í sam­hengi þá var hagn­aður Orku­veit­unnar allt árið í fyrra 5,6 millj­arðar króna. Því er um að upp­hæð sem nemur tæp­lega 60 pró­sent af árs­hagn­aði Orku­veit­unnar, fyr­ir­tækis sem greiddi fjóra millj­arða króna í arð til eig­enda sinna í ár.

Þessi upp­hæð, verði hún inn­heimt að fullu, mun þó ekki sitja að uppi­stöðu eftir í Glitni HoldCo eða hjá hlut­höfum þess félags, fyrr­ver­andi kröfu­höfum Glitnis. Samkvæmt stöð­ug­leika­sam­komu­lag­inu sem gert var undir lok árs 2015 skuld­batt Glitnir HoldCo sig til að greiða allar íslenskar krónur sem hann átti eða kæmi til að eign­ast til íslenska rík­is­sjóðs.

Því mun fyr­ir­tæki sem Reykja­vík á 94 pró­sent hlut í, og tvö smærri sveit­ar­fé­lög rest­ina, þurfa að óbreyttu að greiða Glitni HoldCo á fjórða millj­arð króna sem rennur svo í rík­is­sjóð. Höf­uð­borgin, Akranes og Borg­ar­byggð tapa, en rík­is­sjóður hagn­ast.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort sótt verður um áfrýj­un­ar­leyfi til Hæsta­réttar Íslands í mál­inu eins og er, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans.

Töldu að samningarnir hefðu verið framseldir

Orku­veitan vildi að hún yrði sýknuð í mál­inu vegna þess að hún telur að Glitnir HoldCo sé ekki lengur eig­andi þeirra afleiðu­samn­inga sem gerðir voru. Það var rök­stutt aðal­lega með tölvu­pósti frá rík­is­end­ur­skoðun þar sem fram kemur að eft­ir­stæðar eignir Glitnis hafi verið fram­seldar rík­inu 10. des­em­ber 2015. Auk þess vís­aði Orku­veitan í að í árs­reikn­ingi Glitnis HoldCo vegna árs­ins 2015 hefðu kröfur vegna afleiðu­samn­inga verið færðar niður í núll krónur. Það væri stað­fest­ing á því að Glitnir héldi ein­fald­lega ekki lengur á kröf­unum.

Við mála­rekst­ur­inn var hins vegar lagður fram tölvu­póstur frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu frá 6. febr­úar í fyrra þar sem kom fram að afleiðu­samn­ing­arnir hafi ekki verið fram­seldir rík­is­sjóði. Í dómi Lands­réttar segir að dóm­arar máls­ins telji að yfir­lýs­ingar Seðla­banka Íslands, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og rík­is­end­ur­skoð­unar stað­festi að „eig­in­legt fram­sal á afleiðu­samn­ing­unum sjálfum til íslenska rík­is­ins hafi ekki átt sér stað“.

Það verður þó ekki séð að rík­is­end­ur­skoðun hafi stað­fest slíkt með áður­nefndum tölvu­pósti. Þvert á móti.

Neituðu að birta stöðugleikasamninga

Í öðru máli sem Glitnir HoldCo höfð­aði vegna upp­gjörs afleiðu­samn­inga gegn Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur, og lauk eftir dóm sem féll í hér­aði í fyrra­vor, voru sömu máls­á­stæður að hluta til undir.

Eftir að Útgerð­ar­fé­lagið tap­aði mál­inu, og var gert að greiða rúm­lega þrjá millj­arða króna í gegnum Glitni og í rík­is­sjóð, skrif­aði Runólfur Viðar Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri þess, grein sem birt­ist í Kjarn­anum. Þar sagði hann meðal ann­ars að í fyr­ir­spurn til Rík­is­end­ur­skoð­anda sem hann hafi séð eftir að mál­flutn­ingi lauk hafi sagt: „Það liggur skýrt fyrir að svo­kall­aðar eft­ir­stæðar eignir (retained assets) voru hluti af eigna­safn­inu sem slitabú Glitnis fram­seldi rík­inu með samn­ingi, dags. 10. des­em­ber 2015, um upp­gjör á stöð­ug­leika­eignum. „Um þessar eignir sagði starfs­maður Rík­is­end­ur­skoð­anda enn­fremur: „Eft­ir­stæðar eign­ir, þ.m.t. afleiðu­samn­ing­ar, hafa allar verið metnar og færðar upp til eignar í efna­hags­reikn­ingi rík­is­sjóðs…”.

Lögmaður Orku­veit­unar skor­aði á Glitni HoldCo að leggja fram stöð­ug­leika­sam­komu­lag sitt við íslenska ríkið til að útkljá þetta mál end­an­lega. Við því varð félagið ekki. Það breytti engu í huga dóm­ara Lands­réttar. Þeir töldu ekki ljóst af máls­gögnum að kröfu­rétt­indi hefðu verið fram­seld íslenska rík­inu heldur talið að „ein­ungis efn­is­legur ávinn­ingur af inn­heimtu samn­ing­anna hefði verið fram­seldur íslenska rík­inu“.

Sömdu án þess að viðurkenna sekt

Orku­veitan bar líka fyrir sig að Glitnir HoldCo væri þegar búið að fá greitt vegna afleiðu­samn­ing­anna í sátt sem félagið gerði við end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið PwC ehf. um fébóta­greiðslur vegna end­ur­skoð­un­ar­starfa þess fyrir Glitni á árunum 2007 og 2008.

Málið sem Glitnir höfð­aði gegn PwC var ekk­ert smá­mál. Í stefnu þess, sem birt var í mars 2012 voru sér­stak­lega til­greind fimm atriði þar sem PwC átti að hafa brotið gegn lög- og samn­ings­bundnum skyldum sín­um. Í fyrsta lagi hefði PwC ekki upp­lýst um að stjórn­endur Glitnis hefðu veitt útlán til inn­byrðis tengdra aðila langt umfram leyfi­leg hámörk, í öðru lagi leynt útlána­á­hættu bank­ans til aðila sem töld­ust tengd­ir, í þriðja lagi veitt stór­felld útlán til fjár­vána eign­ar­halds­fé­laga, í fjórða lagi van­rækt afskrift­ar­skyldu sína og í fimmta lagi van­rækt að upp­lýsa um þá gríð­ar­lega miklu fjár­hags­legu hags­muni sem bank­inn var með í eigin bréfum með þeim afleið­ingum að eigið fé hans var veru­lega of hátt skráð.

Sáttir náð­ust milli Glitnis og PwC í nóv­em­ber 2013. Trún­aður ríkti um upp­hæð­ina sem PwC greiddi en í umfjöllun Kjarn­ans um hana frá þessum tíma kom fram að PwC hefði greitt hund­ruð millj­óna króna til að kom­ast hjá máls­höfðun sem hinn fallni banki hafði höfðað á hendur PwC á Íslandi og í Bret­landi. Sam­komu­lagið var gert „án við­ur­kenn­ingar sak­ar“. Það sner­ist því um að end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tækið greiddi bætur án þess að hafa við­ur­kennt að hafa gert nokkuð rang­t.

Lands­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu að Orku­veit­unni hafi ekki tek­ist að sanna að sáttin við PwC hafi náð yfir afleiðu­samn­ing­anna.

Hefði með saknæmum hætti leynt ógjaldfærni

Í þriðja lagi taldi Orku­veitan að Glitnir HoldCo hefði með sak­næmum hætti leynt því að bank­inn hefði í reynd verið ógjald­fær þegar þrír af afleiðu­samn­ing­unum voru gerðir á árinu 2008.

Þannig hefði Glitnir aldrei getað staðið við sinn hluta samn­ing­anna ef á það hefði reynt og það ætti að leiða til ógild­ingar samn­ing­anna. Umræddir þrír samn­ingar og fram­leng­ingar þeirra mynd­uðu að stofni til þann höf­uð­stól sem Glitnir HoldCo krafði Orku­veit­una um í mál­inu.

Þessu var líka hafnað af Lands­rétti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár