Vegna nokkuð ítarlegrar fréttaskýringar Kjarnans um úrskurð héraðsdóms í Reykjavík í máli sem Glitnir HoldCo höfðaði gegn Útgerðarfélagi Reykjavíkur (ÚR) vil undirritaður framkvæmdastjóri Útgerðarfélags Reykjavíkur (ÚR) gera örfáar athugasemdir og koma með nokkrar ábendingar fyrir þá sem áhugasamir eru um þetta mál.
[links]Fyrst skal nefna að af fréttaskýringu Kjarnans má skilja að ÚR hafi helst borið fyrir sig að Glitnir hafi haft hag að því að gengisfella íslensku krónuna. Það er vissulega ein af 14 ástæðum sem ÚR lagði fram í vörn sinni en ekki sú helsta. Rétt er geta þess að sú málsástæða byggir á niðurstöðu þriggja matsgerða sem lágu fyrir í málinu sem sýna að Glitnir hagnaðist um tugi milljarða á gengisfalli íslensku krónunnar árið 2008 og að uppistaðan í ávinningi Glitnis var stöðutaka með afleiðusamningum viðskiptavina Glitnis. Með vísun til laga um verðbréfaviðskipti þar sem segir að fjármálastofnun skuli forðast hagsmunaárekstra við viðskiptavini og upplýsa viðskiptavini um alla hagsmunaárekstra er það óskiljanlegt fyrir undirritaðan að lesa það í dómi héraðsdóms sem segir á bls 54 : „Jafnvel þótt gögn málsins bendi til þess að Glitnir hafi hagnast, amk. til skamms tíma litið , af lækkandi gengi íslensku krónunnar telur dómurinn ekki fram komið að Glitnir hafi markvisst stuðlað að lækkun íslensku krónunnar eða búið yfir sértækum upplýsingum um þróun gengis hennar sem honum var skylt að upplýsa viðskiptavini sína um.“ ÚR hefur ekki haldið því fram sem þarna segir heldur einungis að Glitnir hafi verið skylt að upplýsa um hagsmunaárekstra sem eru bannaðir samkvæmt gr. 8. í verðbréfalögum no. 108/2007. Þá er jafnframt rétt að geta þess að í ofangreindum matsgerðum kemur fram að Glitnir var í raun orðinn gjaldþrota í október 2008 þegar samningarnir sem deilt er um áttu að hafa verið gerðir. Því eru þeir ógildir því bankinn hafði rangt við í sínum uppgjörum.
Aðal málsástæðan siem ÚR hefur byggt á í þessu máli er að ekki nokkur starfsmaður ÚR hvorki bað um, gerð né staðfesti 23 af 31 samningum sem deilt er um og mynda þeir samningar um 90% af heildarkröfu Glitnis á hendur ÚR. Í 8 ár eða frá 2008 til 2016 hélt Glitnir því fram að fyrrverandi starfsmaður ÚR sem lét af störfum í september 2008 hefði gert afleiðusamninga í október 2008. Þegar ÚR fékk loksins eftir langan málarekstur afrit af samtölum sem staðfestu að Glitnir var með allar upplýsingar og starfsmenn Glitnir vissu að umræddur maður var ekki starfsmaður ÚR, lét Glitnir vísa málinu frá með því að mæta ekki í fyrirtöku. Málinu var stefnt aftur í maí 2016 og þá hélt Glitnir því fram að ungur maður sem var ný byrjaður að vinna hjá ÚR hefði gert þessa samninga. Lögmaður Glitnis hafði í hótunum við unga manninn en háttsemi lögmanns Glitnis var kærð til Lögmannafélagsins sem ávítti lögmanninn. Glitnir lagði fram einn tug samtala af nokkur hundruðum slíkra sem Glitnir átti við starfsmenn ÚR. Af þessum 10 samtölum sem voru hljóðrituð og lögð fram var ekkert sem staðfestir gerð umræddra samninga. Bæði starfsmenn Glitnis og starfsmenn ÚR staðfestu það fyrir dómi.
[adspot]Ein af mikilvægari málsástæðum í vörn ÚR og vikið er að í fréttaskýringu Kjarnans er það mat ÚR að Glitnir sé ekki aðili málsins sökum þess að þrotabúið hafði afsalað kröfurnar með undirritun stöðugleikasamning við ríkissjóð ári áður en málið var höfðað að nýju 2016. Sökum þess að umræddur samningur er ekki opinber voru tveir menn sem þekkja til hans kallaðir sem vitni í héraðsdómi, þ.e. þeir Haukur C. Benediktsson núverandi starfsmaður Seðlabanka Íslands og Steinar Þór Guðgeirsson forsvarsmaður eignaumsjónafélagsins Lindarhvols. Þeir sögðu báðir að umræddar kröfur væru eign Glitnis þó svo þeirra væri ekki getið í ársreikningi Glitnis sem lá fyrir dóminum. Eftir að umræddir menn báru vitni fyrir dómi hefur undirritaður aflað sér meiri upplýsinga ma. úr ríkisreikningi 2016 og þar segir á bls 95: „ Á árinu 2016 eru að fullu tekju- og eignfærð stöðugleikaframlög samkvæmt nauðasamningum fallinna fjármálafyrirtækja sem staðfestir voru af héraðsdómi undir lok árs 2015 og í janúar 2016. Í heild voru stöðugleikaframlög frá þrotabúum metin á um 384.209 millj. kr. í upphafi árs sem var tekjufært að fullu. Þessar eignir skiptast í 95% eignarhlut í Íslandsbanka 184.771 millj. kr., skuldabréf Kaupþings 84.000 millj. kr., afkomuskiptasamning vegna Arion banka hf. 19.500 millj. kr., ýmsar hlutafjáreignir 10.909 millj. kr. og aðrar eignir 85.030 millj. kr.”
Í fyrirspurn til Ríkisendurskoðanda sem undirritaður sá eftir að málflutningi lauk segir: „Það liggur skýrt fyrir að svokallaðar eftirstæðar eignir (retained assets) voru hluti af eignasafninu sem slitabú Glitnis framseldi ríkinu með samningi, dags. 10. desember 2015, um uppgjör á stöðugleikaeignum.„Um þessar eignir sagði starfsmaður Ríkisendurskoðanda ennfremur: „Eftirstæðar eignir, þ.m.t. afleiðusamningar, hafa allar verið metnar og færðar upp til eignar í efnahagsreikningi ríkissjóðs…”
Framburður Hauks C og Steinars Þórs er því ekki í samræmi við ársreikninga Glitnis 2015 til 2019, Ríkisreiknings 2016 og svar frá Ríkisendurskoðanda eftir að málið var dómtekið.
Það er rétt í fréttaskýringu Kjarans sem segir „Því blasir við að Útgerðarfélagið hefur getu til þess að greiða skuldina við Glitni HoldCo, sem mun að óbreyttu renna í ríkissjóð sem hluti af stöðugleikaframlaginu”. Ástæðan fyrir því að Héraðsdómur átti að vísa málinu frá er að Glitnir er annað hvort rangur aðili máls eða málið var svo stórlega vanreifað að dómur átti aldrei að falla í málinu.
Höfundur er framkvæmdastjóri ÚR.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir