Frekar tíðindalítið fjárlagafrumvarp án mikilla stefnubreytinga

Frestun á hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu sparar geir­anum níu millj­arða, veiði­gjöld verða tíu millj­arðar og byrjað verður á nýjum Lands­spít­ala. Framlög til vel­ferð­ar­mála hækka um 31 millj­arð. Kjarninn fer yfir aðal­at­riði nýs fjár­laga­frum­varps.

Um er að ræða fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar.
Um er að ræða fyrsta fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Meg­in­verk­efni rík­is­stjórnar og Alþingis á næsta ári er að varð­veita þann góða árangur í efna­hags­málum sem náðst hefur á und­an­förnum miss­erum.“ Þetta kemur fram í fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2017. Það end­ur­speglar það sjón­ar­mið rík­is­stjórn­ar­innar að í efna­hags­legu til­liti sé staðan hér mjög góð, og að henni megi lítið raska. Þess vegna er lítið um stefnu­breyt­ingar, og hvað þá kúvend­ingar, í þessu fyrsta fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­son, sem Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, kynnti í morgun.

[links]Stóru tíð­indin eru ann­ars vegar þau að haf­ist verður handa við bygg­ingu nýs Lands­spít­ala á seinni hluta næsta árs og að heitið sé 2,8 millj­örðum króna í það verk­efni. Hins vegar hefur fyr­ir­hug­aðri hækkun á virð­is­auka­skatti í ferða­þjón­ustu verið frestað vegna þess að ferða­þjón­ustu­geir­inn gagn­rýndi hana harð­lega. Nú verður skatt­ur­inn hækk­aður 1. jan­úar 2019 í stað þess að hækka um mitt næsta ár. Við þetta lækka tekjur rík­is­sjóðs á árinu 2018 um níu millj­arða króna. Með öðrum orðum verða níu millj­arðar króna, sem ann­ars hefðu farið til rík­is­sjóðs, áfram hjá fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu.

Útgjöld eru aukin um 4,1 pró­sent á milli ára. Þar munar lang­mest um að útgjöld vegna heil­brigðis- og vel­ferð­ar­mála hækka um 17,6 millj­arða króna, eða 4,4 pró­sent.

Veiðigjöld verða tíu milljarðar

Á tekju­hlið­inni er fátt sem kemur mikið á óvart. Gert er ráð fyrir því að veiði­gjöld verði um tíu millj­arðar króna, en þau voru 6,4 millj­arðar króna í ár. Sjáv­ar­út­veg­ur­inn þarf því að greiða 3,6 millj­örðum krónum meira í sam­neysl­una á næsta ári að óbreyttu.

Áætlaðar arð­greiðslur og hlut­deild í tekjum rík­is­fyr­ir­tækja eru áætl­aðar 18,7 millj­arðar króna. Það er umtals­vert minna en í ár og skýrist það að mestu vegna þess að að áætl­aðar arð­greiðslur banka í rík­i­s­eigu munu verða lægri. Alls lækkar sá liður um 21 millj­arð króna.

[adspot]Tekjur rík­is­sjóðs vaxa sam­tals um 33 millj­arða króna á milli ára og verða 834 millj­arðar króna. Þær hafa aldrei áður verið jafn háar. Þar skiptir lyk­il­máli að skattar á vörur og þjón­ustu eiga að skila 30 millj­örðum krónum meira í kass­ann en í á, þar af mun aukn­ing á inn­heimtum virð­is­auka­skatti skila 20 millj­örðum króna. Þá aukn­ingu má rekja að mestu til fjölg­unar ferða­manna og auk­innar einka­neyslu lands­manna. Tekju­skattur ein­stak­linga á að skila um 15 millj­örðum króna til við­bótar á næsta ári. Þá verða tekjur rík­is­sjóðs um níu millj­örðum krónum lægri en rík­is­fjár­mála­á­ætlun gerði ráð fyrir, í ljósi þess að hækkun virð­is­auka­skatts á ferða­þjón­ustu verður frestað fram til byrjun árs 2019.

Áætlaður afgangur af rekstri rík­is­sjóðs er 44 millj­arðar króna.

Tekjur til velferðarmála aukast um 31,3 milljarða

Á útgjalda­hlið­inni eru helstu tíð­indin að fram­lög til vel­ferð­ar­mála eru aukin veru­lega. Alls verða fram­lög til heil­brigð­is­mála 208 millj­arðar króna á árinu 2018, eða 13,5 millj­örðum krónum meiri en í ár. Það er aukn­ing upp á 6,9 pró­sent.

Mestu munar um 2,8 millj­arða króna fram­lag til þess að hefja bygg­ingu á nýjum Lands­spít­ala við Hring­braut. Þá munu um 200 millj­ónir króna fara í rekstur jáeindaskanna sem Íslensk erfða­grein­ing gaf Lands­spít­al­anum fyrir nokkru síðan. Framlög til sjúkra­húss­þjón­ustu, heil­brigð­is­þjón­ustu utan sjúkra­húsa, hjúkr­unar- og end­ur­hæf­ing­ar­þjón­ustu og til kaupa á lyfjum og lækna­vöru hækka öll.

Þá munu fram­lög til félags­mála hækka um 17,8 millj­arða króna. Þar skiptir mestu að bætur almanna­trygg­inga og atvinnu­leys­is­bóta hækka um 4,7 pró­sent um kom­andi ára­mót og að fram­færslu­við­mið líf­eyr­is­þega sem búa einir verður fært úr 280 þús­und króna í 300 þús­und krónur, sem er aukn­ing um sjö pró­sent. Alls nemur aukn­ing útgjalda vegna almanna­trygg­inga 12,5 millj­örðum króna.

Þá á að hækka hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði úr 500 þús­und krónum í 520 þús­und krónur. Stefnt er að því að þær fari í 600 þús­und krónur árið 2020. Hámarks­greiðslur voru hækk­aðar úr 370 þús­und krónur í 500 þús­und krónur í októ­ber í fyrra. Þær munu því hafa hækkað um 40 pró­sent á rúmu ári þegar nýja hækk­unin tekur gildi um næstu ára­mót. Alls mun rík­is­sjóður greiða 11,6 millj­arða króna í kostnað vegna fæð­ing­ar­or­lofs á næsta ári, sem er 1,2 millj­arði krónum meira en áætlað er að hann greiði til mála­flokks­ins í ár.

Þá er ótalið mikið hita­mál, rekstr­ar­fram­lög til útlend­inga­mála. Þau verða 3,7 millj­arðar króna á næsta ári, en sá liður var ekki til staðar á fjár­lögum árs­ins 2017. Í nýbirtu upp­gjöri rík­is­sjóðs fyrir fyrstu sex mán­uði árs­ins 2017 kemur fram hins vegar fram að hrein útgjöld vegna rétt­inda ein­stak­linga hafi verið 2,2 millj­arðar króna sem var 1.251 millj­ónum meira en áætlað var. Þar seg­ir: „Í fjár­heim­ildum vegna árs­ins 2017 voru veru­lega van­á­ætl­aðar í fjár­laga­gerð fyrir árið 2017 í ljósi for­dæma­lausrar fjölg­unar hæl­is­um­sókna á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2016. Kostn­aður vegna þess­ara umsókna hefur að mestu leyti fallið til á yfir­stand­andi ári.“

Þá verða vextir af lánum áfram stór hluti af útgjöldum rík­is­sjóðs, eða 73 millj­arðar króna á árinu 2018. Hinn umtals­verði afgangur sem er áætl­aður af rekstri rík­is­sjóðs á næsta ári, 44 millj­arðar króna, mun verða ráð­stafað til nið­ur­greiðslu skulda og lækka þar með vaxta­kostnað rík­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár