Ríkissjóður rekinn með 44 milljarða afgangi á næsta ári

Virð­is­auka­skattur á ferða­þjón­ustu verður ekki hækk­aður fyrr en 2019 og ríkið mun borga 73 millj­arða króna í vexti á næsta ári. Nýtt fjár­laga­frum­varp var kynnt í morgun.

Benedikt Jóhannesson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­sjóður verður rek­inn með 44 millj­arða króna afgangi á næsta ári sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi árs­ins 2018 sem var kynnt í morgun. Afgangur fyrir vexti verður 104 millj­arðar króna en rík­is­sjóður mun greiða 73 millj­arða króna í vexti á árinu 2018. Á móti hefur ríkið einnig vaxta­tekjur upp á 12 millj­arða króna. Alls verða tekur rík­is­sjóðs 834 millj­arðar króna en gjöld 790 millj­arðar króna. Þar kemur einnig fram að ferða­þjón­usta fari í almennt þrep virð­is­auka­skatts í jan­úar 2019, en áður hafði verið gert ráð fyrir að það myndi ger­ast um mitt næsta ár. Á sama tíma mun almenna virð­is­auka­skatts­þrepið lækka úr 24 pró­sentum í 22,5 pró­sent.

Á meðal helstu áherslu­mála í fjár­laga­frum­varp­inu eru að tekju­trygg­ing hækkar, stofn­styrkir til bygg­ingar almennra íbúða verða þrír millj­arðar króna og stuðn­ingur við fyrstu íbúð­ar­kaup verður festur í sessi. Hæstu greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi munu hækka úr 500 í 520 þús­und krónur og fram­lög vegna mót­töku flótta­manna verða þre­földuð.

Í til­kynn­ingu segir að hugað verði sér­stak­lega að geð­heil­brigð­is­málum í kerf­inu og að bygg­ing nýs Land­spít­ala muni hefj­ast á seinni hluta árs­ins 2018 þegar vinna við með­ferða­kjarna við Hring­braut hefst. Framlög til bygg­ingar spít­al­ans munu verða 2,8 millj­arðar króna á næsta ári og alls munu heil­brigðis- og vel­ferð­ar­út­gjöld hækka um 4,6 pró­sent umfram launa- og verð­lags­þróun.

Grænir skattar verða lagðir á kolefn­is­út­blástur en íviln­anir til kaupa á vist­vænum bílum verða fram­lengdar í þrjú ár. Aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum lítur dags­ins ljós á næst­unni með fjöl­þættum aðgerðum víða í stjórn­kerfi og hjá stofn­unum rík­is­ins. Á árinu 2018 verða skref stigin í átt að sam­ræmdu kerfi grænna skatta. Kolefn­is­gjald er hækkað og gjald­taka af bens­íni og dísilolíu jöfnuð. Íviln­anir vegna kaupa á raf­bílum, sem hefðu fallið niður, verða fram­lengdar í þrjú ár.

Tæplega 18 millj­arðar króna fara í fram­kvæmdir og við­hald vega. Meðal stærstu verk­efna verða Dýra­fjarð­ar­göng, nýr kafli hring­veg­ar­ins í Beru­fjarð­ar­botni og ný Vest­manna­eyja­ferja.

Í til­kynn­ing­unni segir: „Heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs hafa lækkað fyrri hluta árs 2017 um nálægt 200 millj­arða króna. Áfram eru vaxta­greiðslur afar stór útgjalda­liður og munu nema 73 ma.kr. á árinu 2018 að með­töldum reikn­uðum vöxtum vegna líf­eyr­is­skuld­bind­inga sem nema 14 ma.kr. Á móti koma vaxta­tekjur upp á 12 ma.kr. Gert er ráð fyrir að skuldir lækki áfram hratt á árinu 2018, eða um 36 millj­arða en ráð­gert að skuldir hins opin­bera fari niður fyrir 30% árið 2019.“

Nánar verður fjallað um fjár­laga­frum­varpið á Kjarn­anum í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár