Aflétting nú eins og að byggja „verksmiðju nýrra afbrigða“

Breskir vís­inda­menn hafa margir hverjir varað við hraðri aflétt­ingu tak­mark­ana vegna COVID-19 og segja slíkt eins og að hefja bygg­ingu „verk­smiðju nýrra afbrigða“ kór­ónu­veirunnar. Boris Johnson er sagður ætla að aflétta flestum aðgerðum 19. júlí.

Sajid Javid tók við embætti heilbrigðisráðherra Bretlands nýverið.
Sajid Javid tók við emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra Bret­lands nýverið. Mynd: EPA

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, er sagður ætla að til­kynna síðar í dag aflétt­ingu flestra tak­mark­ana vegna COVID-19 frá 19. júlí. Boðað hefur verið til blaða­manna­fundar síð­degis og sam­kvæmt heim­ildum dag­blaðs­ins Guardian og fleiri miðla mun hann til­kynna fyrir hönd rík­is­stjórnar sinnar að bráð­lega verði aðgerðir sem setja höft á athafnir fólks vegna veiru­far­ald­urs­ins ekki lög­bundnar eins og verið hefur heldur á ábyrgð hvers og eins. Vís­inda­menn hafa margir hverjir varað við því að aflétta öllum aðgerðum og sagt það vera eins og að byggja „verk­smiðju fyrir ný afbrigði“ veirunnar. Aðrir vís­inda­menn hafa sagt aflétt­ingu skyn­sam­lega á þessum tíma­punkti þó áfram þurfi að rekja smit til að reyna að koma í veg fyrir stærri hóp­sýk­ingar.

Um 86 pró­sent full­orð­inna í Bret­landi hafa fengið að minnsta kosti fyrri skammt bólu­efnis. Engu að síður hefur fjöldi greindra smita ekki verið meiri síðan í jan­úar er önnur bylgja far­ald­urs­ins skall á landið.

Grímuskyldan afnumin?

Meðal þeirra breyt­inga á tak­mörk­unum sem eru sagðar í far­vatn­inu er að bólu­settir þurfi ekki lengur að fara í sótt­kví við heim­komu eftir dvöl erlendis. Einnig er talið að grímu­skylda verði að mestu leyti aflétt (nema inni á heil­brigð­is­stofn­unum) og hverjum og einum í sjálfs­vald sett hvort að þeir beri slíkan hlífð­ar­búnað. Þá er einnig talið, sam­kvæmt heim­ildum Guardian, að bólu­settum verði ekki gert skylt að fara í sótt­kví, verði þeir útsettir fyrir veirunni, þ.e. verið í nánum sam­skiptum við smit­aða. Eitt af því sem einnig er á stefnu­skránni eftir tvær vikur er að leyfa opnun næt­ur­klúbba á ný.

Heim­ildir Guardian herma einnig að í skólum þurfi hópar nem­enda ekki lengur að fara í sótt­kví grein­ist einn í þeirra hópi smit­aður.

Sajid Javid, sem tók við emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra í Bret­landi nýverið, hefur viðrað þau við­horf sín að ekki sé hægt að útrýma sjúk­dómnum COVID-19 heldur verði að finna leiðir til að „lifa með honum“, rétt eins og inflú­ensu. Hann sagði einnig um helg­ina að vís­inda­leg rök fyrir því að aflétta tak­mörk­unum væru „óyggj­andi“ en við­ur­kenndi á sama tíma að ný afbrigði veirunnar gætu komið fram sem bólu­efni sem þegar hafa verið fram­leidd dugi síður gegn.

Í grein eftir Javid sem birt var í Mail on Sunday sagði að besta leiðin til að vernda lýð­heilsu Breta væri að aflétta tak­mörk­unum. „Reglur þær sem við höfum orðið að setja á hafa orðið til þess að heim­il­is­of­beldi hefur auk­ist mikið og þær hafa haft skelfi­legar afleið­ingar á and­lega heilsu fólks.“

Skynsamlegt plan

Skrif heil­brigð­is­ráð­herr­ans féllu ekki í góðan jarð­veg hjá sumum vís­inda­mönnum. Stephen Reicher, pró­fessor við St. Andrews-háskóla, sem situr í ráð­gjafa­ráði bresku rík­is­stjórn­ar­innar í sótt­varna­að­gerðum, segir það „ógn­vekj­andi“ að hafa heil­brigð­is­ráð­herra sem haldi enn að COVID-19 sé eins og flensa. Hann segir ráð­herr­ann ekki átta sig á að það sem við gerum til að verja heilsu sé einnig gert til að verja efna­hags­lífið. Ráð­herr­ann vilji afnema tak­mark­anir þótt aðeins um helm­ingur full­orð­inna sé full­bólu­settur.

Susan Michie, sér­fræð­ingur í atferl­is­fræðum sem einnig á sæti í ráð­gjafa­ráð­inu, skrif­aði á Twitter: „Að leyfa sam­fé­lags­smitum að fjölga er eins og að byggja hratt verk­smiðjur fyrir ný afbrigði [veirunnar].“

Michie og tveir aðrir sér­fræð­ingar skrif­uðu grein í lækna­tíma­ritið British Medical Journal í síð­ustu viku. Í henni sögðu þau að ef heil­brigð­is­ráð­herr­ann ætlist til að hver og einn gæti sinna sótt­varna – að þær verði ekki lengur bundnar í lög og reglur – yrðu stjórn­völd fyrst að hafa upp­fyllt sínar skyldur og tryggja að það sé öruggt fyrir fólk til fram­tíðar.

Aðrir vís­inda­menn eru hins vegar mun jákvæð­ari hvað áform um síð­ustu skref aflétt­inga varðar. Paul Hunter, sem er pró­fessor í lækn­is­fræði, telur að full­bólu­settir ein­stak­lingar séu ólík­legri til að sýkj­ast og þá mun ólík­legri til að bera smit og sýkja aðra. Hann telur aflétt­ingu grímu­skyldu á flestum stöðum ekki hafa stór­aukna áhættu í för með sér þó að hann ráð­leggi „við­kvæmum hópum“ að bera grímur í miklum mann­fjölda.

Lýð­heilsu­fræð­ing­ur­inn Allyson Pollock telur áform Johnson og rík­is­stjórnar hans, skyn­sam­leg. Hún segir hjarð­ó­næmi við það að nást. Einn helsti óvissu­þátt­ur­inn nú um stundir sé hversu lengi vörn sú sem bólu­efni gefi vari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár