Fólk með vanlíðan hverfur í kanínuholur gervigreindar

Pétur Maack Þorsteinsson, formaður Sálfræðinga­félags Íslands, varar við notkun gervi­greindar í stað sálfræðings. Hún sé hönnuð til að halda fólki á spjalli og hafi ekki þjálfun heilbrigðis­starfsmanns. Óljóst sé hvar leita eigi réttar síns og spurningum um trúnað og aðstoð í neyð er ósvarað.

Pétur Maack Þorsteinsson
Pétur Maack Þor­steins­son Formaður Sál­fræð­inga­fé­lags­ins segir gervi­greind ekki þekkja rauð flögg og því ekki vísa fólki til þar til bærra með­ferð­ar­að­ila.

Foreldrar 16 ára drengs í Banda­ríkjunum sem svipti sig lífi hafa kært fyrir­tækið OpenAI, sem rekur spuna­greindar­forritið ChatGPT, fyrir að hafa stutt hann í fyrir­ætlan sinni. Málið hefur vakið spurningar um hvort spjall­forrit af þessu tagi geti leitt fólk sem upplifir vanlíðan eða einmana­leika í ógöngur.

Samkvæmt kæru foreldranna ráðlagði ChatGPT drengnum um hvernig best væri að stytta sér aldur, bauðst til þess að skrifa fyrir hann fyrstu drög að sjálfsmorðs­bréfi og varaði hann við að láta aðra vita af því sem hann hugðist gera.

Pétur Maack Þorsteinsson, formaður Sálfræðinga­félags Íslands, segir gervi­greind sem slíka ekki vera slæma og líklega fæsta sálfræðinga hafa þá skoðun. „En hún hefur ekki innbyggða dómgreind, hún er ekki þjálfuð eins og heilbrigðis­starfsmaður og þar af leiðandi má fólk fyrst og fremst gæta sín að hafa ekki þær væntingar,“ segir hann.

„Stóru mállíkönin, sem við köllum gervi­greind, virka þannig að það eru …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið undanfarið ár