Goodfellas lifnar við í raunveruleikanum - Þagnareiðurinn ofar öllu

Mafíu­lífið í und­ir­heimum New York borgar er til umfjöll­unar í dóms­máli í Brooklyn þessa dag­ana. Hinn átt­ræði Vincent Asuro er sak­aður um að taka þátt í mafíu­glæpum, þar á meðal ráninun á JFK 1978.

„Skjól­stæð­ingur minn hefur starfað eftir ströngum aga þagn­að­areiðs, í ára­tugi. Það er ekki að fara breyt­ast hér í dóm­salnum.“ Svona hófst málsvörn Vincent Asuro, átt­ræðs Banda­ríkja­manns af ítölskum ættum, sem und­an­farnar vikur hefur verið í dóm­salnum í Brooklyn, að svara fyrir alvar­legar ásak­anir sem á hann eru bornar með ákæru sak­sókn­ar­ans í New York. Asuro tjáði sig ekki sjálfur heldur lög­maður hans, John Mer­ingolo, sem jafn­framt er aðstoð­ar­pró­fessor við laga­deild Pace Háskól­ans.

Hughrifin af Goodfellas

Hann sagð­ist sér­stak­lega hafa áhyggjur af einu, þegar rétt­ar­höldin hófust. Það væri sú staða, að dóm­ur­inn yrði fyrir hug­hrifum vegna þess að málið byggði á ásök­unum um að Asuro væri tengdur við glæpi sem frægar kvik­myndir hafa verið gerðar um, og bækur sömu­leiðis. Einna helst Goodfellas, meist­ara­verk Martin Scorsese frá árinu 1990, og bókin Wiseguys eftir Nicholas Pileggi. Þar er saga glæpa­manns­ins Henry Hill, sem síðar vann með yfir­völdum að upp­ræt­ingu skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi, rakin í gegnum hörð­ustu og ofbeld­is­hneigð­ustu mafíu New York borgar á sjö­unda og áttaunda ára­tug síð­ustu aldar. Lucchesse fjöl­skyldan er mið­punkt­ur­inn í henni en hún hafði einnig tengsl við aðrar klíkur og fjöl­skyldur þar sem ítal­skætt­aður kjarni réð ríkjum með ofbeldi og kúg­unum. Á meðal þeirra var Bonnano fjöl­skyldan. Asuro stýrði henni, sam­kvæmt máli yfir­valda. Hann er sak­aður um morð, hrotta­legt ofbeldi, stýr­ingu á við­skiptum í svarta­mark­aðs­hag­kerfi borg­ar­innar, og skipu­lagn­ingu á ránum.

Ítalski mafíuheimurinn kemur upp á yfirborðið

Asuro var hand­tek­inn í jan­úar í fyrra, ásamt fjórum öðrum, og hefur verið í haldi lög­reglu síðan. Hann hefur lítið sagt í yfir­heyrslum, en málið gegn honum þykir vel und­ir­byggt, í það minnst eins og því er lýst af þeim sem sitja rétt­ar­höldin. Ástæða þess að Asuro var hand­tek­inn í upp­hafi var skipu­lagn­ingin á hinu fræga Luft­hansa ráni á JFK flug­vell­inum 11. des­em­ber 1978. Þá komust ræn­ingjar undan með fimm millj­ónir Banda­ríkja­dala í reiðufé og skart­gripi sem voru metnir á 875 þús­und Banda­ríkja­dali. Að núverði er þetta meira en 20 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur nærri 2,5 millj­örðum króna. Þetta er enn þann dag í dag, stærsta rán sem framið hefur verið í Banda­ríkj­unum í dög­unni. Ræn­ingj­arnir eru allir meira og minna dánir í dag, þar sem einn þeirra sem var á meðal ræn­ingj­anna, Jimmy Burke að nafni - fyr­ir­mynd karakt­ers­ins sem Robert De Niro leikur í Goodfellas - lét drepa flesta þá sem komu að rán­inu til að fela slóð sína og hindra að nokkur gæti kjaftað frá. Burke lést úr lungna­krabba­meini í fang­elsi.

Asuro fór huldu höfði í mörg ár eftir ránið, en leidd­ist smám saman aftur út í glæpa­lífið.

Inn að beini

Sak­sókn­ar­inn í mál­inu, Lindsey Gerdes, hefur lýst Asuro sem glæpa­manni „alveg inn að beini“. Þáttur hans í rán­inu er sagður snúa að skipu­lagn­ing­unni og því að koma pen­ing­unum sjálfum undan og þvætta þá í gegnum fyr­ir­tækja­rekstur. Pen­ing­arnir voru órekj­an­legir og hafa aldrei fund­ist, enda má gera ráð fyrir að þeim hafi verið eytt hratt og örugg­lega.

Eins og við var að búast fyrir fram, hefur Asuro ekki látið mikið uppi um hans gjörðir fyrir ára­tugum. Hann neitar alfarið sök, og vitnin í mál­inu, þar á meðal menn­irnir sem hand­teknir voru á sama tíma og Asuro, eru ekki búnir að segja til hans beint. Eitt vitni, Gaspare Valenti, frændi Asuro og sam­starfs­maður á mafíu­ár­unum, hefur þó tengt Asuro við Luft­hansa-ránið og sagt hann hafa komið að skipu­lagn­ingu þess. Valenti hefur þegar gert sam­komu­lag við banda­rísk yfir­völd um að vinna með þeim að upp­ræt­ingu skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi.

Gögn, og úrvinnslu úr gömlum máls­gögnum með nútíma­að­ferðum, svo sem mynd­grein­ingu og DNA prófum, eru þó það sem sak­sókn­ar­inn byggir mál sitt á að miklu leyti. Tæplega 37 árum eftir ránið fræga.

Beinar sann­anir fyrir ofbeldi og morðum liggja ekki fyrir, en boðað hefur verið að vitni munu styðja mál sak­sókn­ara enn betur við mála­rekst­ur­inn, en þau hafa ekki komið öll enn í vitna­stúk­una. Eitt er vafa­lítið öruggt, sé mið tekið af lýs­ingum þeirra sem hafa fylgst með rétt­ar­höld­unum. Asuro mun sitja með sting­andi augna­ráð í sæti sínu á meðan vitnin verða leidd fyrir rétt­inn, eitt af öðru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár