Áhrif mislinga á ónæmiskerfið

Árið 1963 var bólu­efni gegn misl­ingum búið til af rann­sókn­ar­hópi sem var leiddur af John F Enders. Reyndar varð til betri og end­ur­bætt útgáfa ein­ungis fimm árum seinna sem enn er notuð í dag til að bólu­setja bróð­ur­part allra barna á Vest­ur­löndum gegn þeirri skæðu veiru sem veldur misl­ingum.

Þessi upp­götvun olli straum­hvörfum í hinum vest­ræna heimi. Áður en bólu­efnið varð til er talið að nær öll börn hafi smit­ast af veirunni fyrir 15 ára aldur og þónokkur fjöldi þeirra lést í bar­áttu sinni við veiruna. Með tíð og tíma hefur sjúk­dóm­ur­inn sífellt orðið sjald­gæfari. Þar til nýlega voru helstu til­felli hans að finna í fátæk­ari löndum heims þar sem aðgengi að bólu­setn­ingum er ábóta­vant. 

Það sem hefur svo, því miður, valdið bakslagi í þessum góða árangri er rang­túlkuð vís­inda­rann­sókn sem benti til þess að bólu­setn­ingar valdi ein­hverfu. Fyrstu rann­sókn­irnar af þessum toga birt­ust í kringum alda­mótin en hafa marg­sinnis verið hraktar. 

Rit­stjórn Lanchet dró grein­ina til baka árið 2004 eftir að í ljós kom að Andrew Wakefield, fyrsti höf­undur grein­ar­innar, hafði þegið greiðslur frá lög­fræð­ingum sem stóðu að und­ir­bún­ingi mál­sóknar gegn fram­leið­endum MMR bólu­efn­is­ins. Greinin byggði auk þess á mjög litlu úrtaki og nið­ur­stöð­urnar sem voru birtar úr rann­sókn­inni voru gaum­gæfi­lega valdar og þeim hag­rætt svo þær hent­uðu vel styrkt­ar­að­ilum Wakefields. 

Fjár­hags­legur ávinn­ingur sem Wakefield hafði af rann­sókn­unum kom ekki í ljós fyrr en löngu eftir að greinin hafði verið birt og afleið­ing­arnar af full­yrð­ingum Wakefields í kringum birt­ing­una voru þegar farnar að koma í ljós.

Mislinga- eða MMR bólusetning

Reyndar var það svo í kringum alda­mótin að Wakefield var ekki að ráð­leggja for­eldrum gegn bólu­setn­ingum heild­rænt. Hans hags­munir sner­ust um að draga úr notkun svo­kall­aðrar MMR bólu­setn­ingar, þar sem bólu­sett er gegn misl­ingum, rauðum hundum og hettu­sótt. Wakefield ráð­lagði for­eldrum opin­ber­lega að láta bólu­setja börn sín við einum þess­ara sjúk­dóma í einu með um það bil árs milli­bili. 

Einhvern veg­inn hafa þessi skila­boð Wakefields umturn­ast í and­stöðu fólks gegn bólu­setn­ingum og hefur nú fjöldi for­eldra sem hafna bólu­setn­ingum fyrir börnin sín marg­fald­ast. Þessar mistúlk­uðu nið­ur­stöður Wakefields og útúr­snún­ingur á skila­boðum hans hafa leitt til þess víða um hinn vest­ræna heim. 

Mislingar – langtímaáhrif

Eins og fram hefur komið hér að framan eru misl­ingar veiru­sjúk­dómur. Veiran smit­ast mjög auð­veld­lega á milli manna og því hefur reynst erfitt að halda aftur af sjúk­dómnum sé hann á annað borð kom­inn upp. Hlutfall þeirra sem deyja af völdum sýk­ing­ar­innar er kannski ekki óhugn­an­lega hátt, en hvert og eitt líf er einu lífi of mikið, sér­tak­lega þegar horft er til þess hve auð­velt er að koma í veg fyrir sjúk­dóm­inn.

Afleið­ingar misl­inga fel­ast ekki bara í dauðs­föllum. Margir glíma við eft­ir­köst sýk­ing­ar­innar ævi­langt, þó algeng­ust séu eft­ir­köst sem end­ast í 3–6 mán­uði. Þekkt er að ein­stak­lingar sem hafa barist við misl­inga eru útsett­ari fyrir öðrum sýk­ingum, jafn­vel í nokkur ár eftir misl­inga­smit.  

Enn sem komið er hefur engin skýr­ing fund­ist á þess­ari auka­verkun. Vaxandi fjöldi óbólu­settra ein­stak­linga hefur þó búið til þörf fyrir meiri þekk­ingu á þessu sviði. Í rann­sókn sem var birt í Science í byrjun nóv­em­ber er því að finna vís­bend­ingar um það hvað er að ger­ast í lík­am­anum eftir misl­inga­smit.

Minni ónæmiskerfisins

Ónæm­is­kerfið er ótrú­lega flókið og flott kerfi. Þegar við höfum einu sinni kynnst sýkli býr ónæm­is­kerfið nefni­lega til mótefni sem gera það að verkum að við erum fljót að bregð­ast við og eyða sýklunum ef þeir koma aftur. Enn sem komið er höfum við ekki skil­greint hversu mörgum sýklum ónæm­is­kerfið getur munað eftir, en þeir eru ótrú­lega margir. Með þessu móti erum við ónæm fyrir sýklum sem ónæm­is­kerfið hefur þegar hitt, jafn­vel ævi­langt.  

Bólu­setn­ingar eru not­aðar til að vekja þetta minni. Með því að hitta hluta af sýkli eða veikl­aðan sýkil í gegnum bólu­setn­ingu búum við til minn­ingu um hann í ónæm­is­kerf­inu. Þessi minn­ing dugar okkur svo til að hindra sýk­ingu ef lif­andi sýk­ill kemur til sög­unnar seinna.

Hægt er að mæla mótefni okkar í blóð­inu til að stað­festa hvort ónæm­is­kerfið þekki ákveðna sýkla. Til að meta hversu mikið af minni ónæm­is­kerf­is­ins við erum að nota er hægt að mæla öll mótefnin í blóði okkar með tækni sem heitir VirScan. 

Mislingar valda (ónæmis)minnisleysi

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn sem stendur á bak við grein­ina í Science, sem sam­anstendur af vís­inda­fólki frá Banda­ríkj­unum, Hollandi og Finn­landi, not­aði þessa tækni (VirScan) til að meta minni ónæm­is­kerfis barna fyrir og eftir misl­inga­smit. Þau söfn­uðu blóð­sýnum úr óbólu­settum hol­lenskum börnum áður en þau fengu misl­inga og fengu svo leyfi til að skoða mótefnin í blóði barn­anna með frek­ari blóð­sýnum eftir að börnin höfðu veikst af misl­ingum. 

Mæl­ing­arnar leiddu í ljós að eftir misl­inga­smit var minnkun um allt að 73% mótefna í blóði barn­anna. Fækkun mótefn­anna var mis­jöfn eftir ein­stak­lingum, hjá sumum var minnkunin ekki nema 11%. Þrátt fyrir það var mark­tækt meiri minnkunin hjá börnum sem smit­uð­ust af misl­ingum. Til sam­an­burðar skoð­aði rann­sókn­ar­hóp­ur­inn mótefni í börnum fyrir og eftir bólu­setn­ingu gegn misl­ingum, en þar sáust ekki sömu afleið­ingar. 

Rýrnun í vopnabúri ónæmiskerfisins

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn dregur þá ályktun af þessum rann­sóknum að misl­inga­veiran ræðst á ónæm­is­kerfið og fækkar þannig minn­is­fru­munum, þ.e. fru­munum sem muna eftir sýklunum. Próf sem fram­kvæmt var í öpum stað­festi þessa til­gátu þar sem rann­sak­endur mældu veiruna í eitlum og bein­merg apanna en þar búa full­vaxta minn­is­frumur og nýjar verða til. 

Þegar við myndum ónæmi gegn ákveðnum veirum eða bakt­er­íum þekkir ónæm­is­kerfið marga mótefna­vaka á sama sýkl­inum, þess vegna er ekki endi­lega sama­sem­merki á milli fækk­unar á mótefnum í blóði og þess að við erum algjör­lega ber­skjölduð fyrir sýkl­inum. Það er þó þannig að með færri vopnum á ónæm­is­kerfið erf­ið­ara með að þekkja óvin­inn og ná nið­ur­lögum hans. 

Þessar nið­ur­stöður stað­festa hversu mik­il­vægt það er að hlífa ónæm­is­kerf­inu fyrir erf­iðum sýk­ingum eins og misl­ingum. Bólu­setn­ingar eru nefni­lega ekki bara hættu­litlar heldur bjarga þær manns­lífum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár