Cameron birtir skattaskýrslur og tekur ábyrgð á upplýsingaklúðri

David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, segir að hann verði að taka á sig sök­ina á því hvernig tekið var á upp­ljóstr­unum um tengsl hans við aflands­fyr­ir­tæki föður hans. Hann ætlar að birta skatta­skýrslur sínar aftur í tím­ann til þess að vera „full­kom­lega gegn­sær og opinn með þessa hluti. Ég verð fyrsti for­sæt­is­ráð­herr­ann, fyrsti leið­togi stórs stjórn­mála­flokks, til þess að gera það, en ég held að það sé það rétta í stöð­unni.“

Þetta kom fram í ræðu Cameron á vor­fundi Íhalds­flokks­ins í morgun. Hann við­ur­kenndi þar að vikan hefði ekki verið sér­stak­lega góð fyrir hann. „Ég veit að ég hefði átt að höndla þetta betur. Ég hefði getað gert þetta betur. Ég veit að ég hef lex­íur að læra og ég mun læra þær. Og ekki kenna Downing Stræti 10, eða nafn­lausum ráð­gjöfum, um þetta. Kennið mér um þetta. Og ég mun læra mína lexíu.“

Bæði Cameron og ráðu­neyti hans hafa verið gagn­rýnd harð­lega fyrir það hvernig tekið var á þessum málum eftir að greint var frá því að Ian Cameron, faðir hans, stýrði fjár­fest­inga­sjóði sem kom sér undan að greiða skatt í Bret­landi. Sjóð­ur­inn var á Bahama-eyjum og sá um stórar fjár­fest­ingar fyrir efna­miklar fjöl­skyldur í Bret­landi. Meðal ann­ars voru gefnar út margar yfir­lýs­ingar þar sem því var neitað að for­sæt­is­ráð­herr­ann, kona hans eða börn, ættu nokkurn hlut í sjóðnum né að þau myndu hagn­ast á honum. Á blaða­manna­fundi á þriðju­dag­inn, full­yrti hann, og ítrek­aði raunar síðar um dag­inn sömu­leiðis, að hann „tengd­ist með engum hætti aflands­fé­lagi“.

Cameron við­ur­kenndi þetta svo í fimmtu yfir­lýs­ing­unni, á fimmtu­dag, og er nú lentur undir mik­illi pressu í breska þing­inu, sem boðað hefur rann­sókn á öllum fjár­málum Cameron og ann­arra þing­manna sem tengj­ast aflands­fé­lögum með einum eða öðrum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár