Kunningjar
Kunn­ingjar Ársæll og Gunnar hitt­ast á bóka­safn­inu. Mynd: Golli

Bókasöfn: Margir sem koma daglega en taka aldrei út bækur

Á Borgar­bókasafninu í Sólheimum kemur fólk á hverjum degi sem tekur aldrei út bækur. Þau sækja í kaffi, félags­skap, andrúms­loftið, blöðin og bækurnar. Á Borgar­bókasafninu í Úlfars­árdal er amma með dótturson sinn sem er ekki enn kominn með pláss á leikskóla og bókasafns­vörður sem finnst virðing vera mikil­vægari en þögn á safninu.

Við borð eitt á Borgar­bókasafninu í Sólheimum situr Gunnar Lúðvíksson og flettir í gegnum Morgun­blaðið. Þarna hefur hann setið í klukku­tíma að „leiðrétta Moggann“ eins og hann orðar það og er ekki alveg búinn enn enda tekur það sinn tíma að hans sögn. Þetta gerir hann flesta morgna, flettir í gegnum blöðin og blaðar í bókum. Hann tekur ekki mikið af bókum í láni, hann les þær bara hér á safninu. Hann telur mikilvægi bókasafna felast í fróð­leiknum sem þar er að finna.  

Hann er ekki mættur á slaginu þegar bóka­safnið er opnað, sem er klukkan tíu, en svona næstum því. Gunnar á heima í hverfinu og að hans sögn er þetta eini staðurinn, opinbera rýmið, sem hann nýtir sér, í raun eini staðurinn utan heimilisins sem hann ver miklum tíma á. Gunnar er orðinn níræður. 

Hann er ekki sá eini sem mætir á hverjum degi en …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Bókasöfn eru ómissandi, þar á meðal Sólheimasafn sem er gimsteinn
    og hefur alltaf verið, reglulegt barnasetur frá fyrstu tíð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár