Ágúst Ólafur: Þetta fjárlagafrumvarp er „svik við kjósendur“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir Vinstri græn hafa selt sig ódýrt í skiptum fyrir þrjá ráð­herra­stóla.

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, gagn­rýnir fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar og segir aug­ljóst á því, að Vinstri græn hafi „selt sig ódýrt“ í skiptum fyrir ráð­herra­stóla.

Í við­tali við Frétta­blaðið í dag, segir Ágúst Ólafur að fjár­laga­frum­varpið sé 98 pró­sent eins og frum­varp Bene­dikts Jóhann­es­sonar, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, sem Vinstri græn gagn­rýndu harð­lega.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, not­aði orðið „svelti­stefna“ um það frum­varp og fjár­mála­á­ætl­un­ina sem Benedikt og rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar lagði fram. „Það er alveg ljóst að Vinstri græn hafa selt sig afskap­lega ódýrt til að fá þrjá ráð­herra­stóla. Það er engin inn­spýt­ing í inn­viði eins og Vinstri græn lof­uðu,“ segir Ágúst Ólafur. „Þetta er 98 pró­sent eins og fjár­laga­frum­varp síð­ustu rík­is­stjórnar sem Vinstri græn gagn­rýndu harð­lega [...] Það eru engar tekjur af erlendum ferða­mönnum, sjáv­ar­út­veg­ur­inn er áfram stikk­frí, það er ekki talað um auð­legð­ar­skatt eins og Vinstri græn lögðu áherslu á. Auknar arð­greiðslur úr bönk­unum sjást hvergi. Þannig að það er ekki bara að vel­ferð­ar­málin og mennta­málin fá lítið heldur eru tekju­leið­irnar ekki nýttar eins og ætti að gera á hátindi upp­sveifl­unnar. Þannig að þetta fjár­laga­frum­varp er bara ein stór svik við kjós­endur og fær algjöra fall­ein­kunn.“

Samkvæmt frum­varp­inu, sem Bjarni Bene­dikts­son lagði fram í gær, er gert ráð fyrir að rík­is­sjóður verði rek­inn með 35 millj­arða afgangi. Frum­varps Bene­dikts gerði ráð fyrir 44 millj­arða afgangi.

Nýja rík­is­stjórnin ætlar að eyða 15 millj­örðum krónum meira en til stóð að eyða í fjár­laga­frum­varp­inu sem Benedikt Jóhann­es­son lagði fram í sept­em­ber.

Að hluta til koma þeir pen­ingar til vegna þess að svig­rúm til eyðslu er meira en áður var áætlað, vegna þess að tekjur rík­is­sjóðs verða sex millj­örðum krónum hærri en talið var að þær yrðu í sept­em­ber. Alls eiga inn­heimtar tekjur að verða 840 millj­arðar króna sem er það mesta sem ríkið hefur nokkru sinni haft í tekjur á einu ári.

Frum­varpið tekur að miklu leyti mið af því að staða efna­hags­mála er traust um þessar mundir, eftir mikið hag­vaxt­ar­skeið und­an­farin sex ár. Bjarni sagði þó í kynn­ingu sinni á frum­varp­inu að margt benti til þess að Ísland væri nú á toppi hag­sveifl­unnar og næstu árin yrði ekki jafn mik­ill hag­vöxtur eins og verið hefur und­an­farið. Engu að síður væri staðan sterk, atvinnu­leysi lítið og við­var­andi afgangur af utan­rík­is­verslun lands­ins. Þar vegur upp­gangur ferða­þjón­ust­unnar ekki síst þungt, en mik­ill afgangur hefur verið af þjón­ustu­við­skiptum við útlönd, að mestu vegna ferða­þjón­ust­unnar, en að sama skapi hefur verið halli á vöru­við­skiptum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár