1,3 milljarða skattaundanskot tengdust Íslandi

HSBC bank­inn aðstoð­aði sex aðila tengda Íslandi við að koma um 9,5 millj­ónum Banda­ríkja­dala, jafn­virði tæp­lega 1,3 millj­arða íslenskra króna, undan skatti. Þetta kemur fram í gögnum ICIJ um málið.

Samkvæmt nákvæm­ari gögnum sem voru birt um málið í morgun voru þrettán ein­stak­lings­reikn­ingar opn­aðir hjá bank­anum milli áranna 1995 og 2005 og tengd­ust þeir átján banka­reikn­ingum. Sex aðilar tengdir Íslandi áttu reikn­ing­ana, og hæsta upp­hæð tengd einum þeirra nemur 8 millj­ónum dala.

Sviss­neski bank­inn HSBC aðstoð­aði þús­undir manna um allan heim, en þó einkum í gegnum útibú í Bret­landi, við að skjóta fé undan skatti með því að fela pen­inga­legar eignir fyrir skatta­yf­ir­völdum.

Á meðal fjöl­miðla sem hafa birt ítar­legar umfjall­anir úr gögn­unum eru The Guardian, Bild, Le Monde og rann­sókn­ar­blaða­mennsku­þátt­ur­inn BBC Panorama. Meðal þess sem fram kemur í gögn­unum er að sterk­efnað þekkt fólk, ekki síst sem teng­ist afþrey­ingar- og tísku­iðn­aði, Formúlu 1 kappakstri og stjórn­málum, hafi kerf­is­bundið svikið undan skatti með leyni­legum reikn­ingum sem HSBC aðstoð­aði við að koma upp og reka. Meðal þeirra sem þetta gerðu voru spænski Formúlu 1 öku­þór­inn Fernando Alonso, fyr­ir­sætan Elle McPherson, tón­list­ar­mað­ur­inn Phil Collins, leik­ar­inn Christan Slater og Hosnai Mubarak, fyrr­ver­andi ein­ræð­is­herra Egypta­lands, að því er fram kemur í Bild. Tug­þús­undir ann­arra við­skipta­vina HSBC í London gerðu slíkt hið sama.

Þessi frétt er í vinnslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár