Skýrsla Vigdísar og Guðlaugs er ekki skýrsla Alþingis

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, segir að sam­an­tekt meiri­hluta fjár­laga­nefndar hafi ekki verið unnin í sam­ræmi við þing­sköp og hann líti því svo á að hún sé ekki skýrsla í skiln­ingi þing­skapa og hafi ekki verið afgreidd úr fjár­laga­nefnd.

Sam­an­tekt meiri­hluta fjár­laga­nefndar, „Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ari“ er ekki skýrsla í skiln­ingi þing­skapa, enda hefur hún ekki hlotið form­lega með­ferð í fjár­laga­nefnd.

Þetta sagði Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, á þing­fundi í dag. Hann seg­ist líta svo á að málið sé enn í umfjöllun fjár­laga­nefndar og hafi ekki verið afgreitt úr nefnd­inni.

„Það er afstaða for­seta að sam­an­tekt sú, sem kynnt var í fjár­laga­nefnd og með frétta­mönnum í nafni meiri­hluta fjár­laga­nefndar, Einka­væð­ing bank­anna hinna síð­ari, sé ekki skýrsla í skiln­ingi þing­skapa enda hefur sam­an­tektin ekki hlotið form­lega með­ferð í fjár­laga­nefnd í sam­ræmi við ákvæði þing­skapa. Ég lít því svo á að skýrslan sé enn til umfjöll­unar í fjár­laga­nefnd og hafi ekki hlotið afgreiðslu nefnd­ar­innar.“

Miklar umræður hafa skap­ast um þessa yfir­lýs­ingu for­seta Alþingis í þing­sal. Stjórn­ar­and­stæð­ingar hafa kraf­ist þess að meiri­hluti fjár­laga­nefndar biðj­ist afsök­unar á mál­inu.

Eins og Kjarninn greindi frá fyrr í dag kemur til greina af hálfu Jóhann­esar Karls Sveins­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns að málið farið fyrir dóm­stóla vegna mjög alvar­legra æru­meið­inga á hendur honum og fleirum í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár